Gömlu Grikkirnir kölluðu það ekfrasis þegar raunverulegu listaverki var lýst með orðum. Í Ilíonskviðu Hómers er skildi Akkilesar lýst í ljóði og rithöfundar hafa í þúsundir ára skrifað óteljandi texta sem lýsa eða túlka merkingu listaverka. Í þessari þáttaröð notar Þórdís Gísladóttir svipaða aðferð og segir frá fjórum myndum sem urðu til þess að hún heimsótti fólk og skjalasöfn og sökkti sér í heimildir um manneskjur sem hún hafði ýmist aldrei heyrt um eða vissi mjög lítil deili á. Myndirnar urðu kveikjan að því að hún raðaði saman fjölmörgum brotum úr fortíðinni og segir í þáttaröðinni Í upphafi var myndin sögur nokkurra Íslendinga sem fluttu til Danmerkur og Dana sem fluttu til Íslands. Allt lifði þetta fólk forvitnilegu lífi með gleði og sorgum, ævintýrum og leyndarmálum.
Umsjón: Þórdís Gísladóttir
Rakin er saga hótelstjóradóttur sem fæddist í Hafnarstrætinu í Reykjavík. Á unglingsárum sigldi hún til Kaupmannahafnar og lenti þar á refilstigum í strætum sem mörgum þóttu býsna vafasöm. Frá Danmörku flakkaði hún til fleiri landa, tókst á við leynilegt verkefni og komst ítrekað í kast við lögin. Viðmælandi í þættinum er Kristín Svava Tómasdóttir, sagnfræðingur.
