Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 11. desember 2016: Þátturinn er helgaður vísindum í öllum sínum dásamlegu birtingamyndum. Tekinn er snúningur á því sem nokkrir vísindamenn þessa lands eru að bauka. Umbreyta fitu í eitthvað nytsamlegt, nýta orku úr vatni og beita hugarorkunni til nytsamlegra verka.
Dagskrárgerð: Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson, Rögnvaldur Már Helgason og Þórgunnur Oddsdóttir.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Útvarpsfréttir.

frá Veðurstofu Íslands.
Í þáttaröðinni fjallar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður um fyrstu fótboltamennina frá gömlu Júgóslavíu sem komu til Íslands á árunum 1989-1992 til að spila fótbolta og settust svo hér að. Framleiðandi: Þorgerður E. Sigurðardóttir. Hljóðmynd: Jón Þór Helgason.
Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
Allir þeir átta sem við höfum rætt við í þessum þáttum fóru út í þjálfun eftir að leikmannaferlinum lauk. Sumir byrjuðu jafnvel að þjálfa á meðan þeir voru enn að spila. Flestir hafa náð eftirtektarverðum árangri í þjálfun og gefið mikið af sér. Í þessum þætti eru Balkanbræður sem fótboltakennarar til umfjöllunar. Rætt er við Goran Kristófer Micic, Luka Lúkas Kostic, Milan Stefán Jankovic, Zoran Daniel Ljubicic, Salih Heimi Porca, Izudin Daða Dervic, Ejub Purisevic og Hajrudin Cardaklija.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna voru Kristján Ingi Mikaelsson, sjóðsstjóri hjá Visku sjóðum og fjárfestir, Nichole Leigh Mosty, leikskólastjóri og fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar og Vilhjámur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Tónlist héðan og þaðan
Útvarpsfréttir.
Tugir manna og kvenna sem voru á vistheimilum sem börn, hafa leitað til lögmanns eftir þátt Kveiks um aðstæður barna í Bakkakoti. Sumir eru að segja sögu sína í fyrsta sinn í áratugi. Lögmaðurinn segir fleiri heimili til skoðunar en Bakkakot.
Úkraínumönnum og Rússum hefur verið boðið að funda um stríðslok í Bandaríkjunum í næstu viku, að sögn forseta Úkraínu. Bandaríkjamenn vilja að stríðinu verði lokið í júní.
Hvorki er hægt að tryggja öryggi starfsfólks né sjúklinga á bráðamóttöku í núverandi ástandi, að mati formanns læknafélagsins. Tímabært sé að setja í gang neyðaráætlun í heilbrigðiskerfinu.
Töluvert landrof hefur orðið í Reynisfjöru og stór bakki hrunið úr hlíðum Reynisfjalls alveg að viðvörunarskiltunum við fjöruna. Landeigandi segist aldrei hafa séð svo mikið landrof í fjörunni.
Hjónin Bill og Hillary Clinton vilja að vitnisburður þeirra fyrir þinginu um tengsl við Jeffrey Epstein verði fyrir opnum tjöldum. Repúblíkanar eru sakaðir um að reyna að koma höggi á pólitíska andstæðinga Donalds Trump Bandaríkjaforseta með skýrslutökunum.
Bryggjustöðin verður opnuð á Þingeyri í dag en hún er eina verslunin í þorpinu sem opin verður allan ársins hring. Engin búð hefur verið í þorpinu í um hálft ár.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Það er ekki skortur á umfjöllun um Bandaríkin og bandaríska ráðamenn í fréttum þessi misserin. Mest ber á ákvörðunum Bandaríkjastjórnar á alþjóðasviðinu en minna er fjallað um það sem er að gerast innanlands. Það hefur stundum verið talað um að ráðamenn í Bandaríkjunum séu flinkir í því að snúa athyglinni annað þegar erfið mál koma upp - hefja árásir eða stríð einhvers staðar til að draga athyglina frá þeim. Og við ætlum að fjalla um mál sem hafa kannski fallið í skuggann af stærstu fréttamálunum: bólusetningar barna, stríð gegn háskólum og krafa ríkisstjórnar Trumps um aðgang að upplýsingum um kjósendur. Ólöf Ragnarsdóttir fer með okkur til Bandaríkjanna.
Einir vinsælustu og mest umtöluðu sjónvarpsþættir samtímans heita Heated Rivalry. Þessi fremur ódýra framleiðsla á sjónvarpsþáttunum sex hefur borgað sig svo um munar. Aðalleikararnir tveir eru orðnir stórstjörnur, annar þeirra verður gestgjafi í Saturday Night Live síðar í mánuðunum. Og þeir voru meðal kyndilbera fyrir Ólympíuleikana, sem hófust einmitt í gær. En þeir leika í þáttunum elskendur, sem eru tveir bestu íshokkíspilarar heimsins. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir segir okkur allt um þættina vinsælu og áhrifin sem þeir hafa haft.
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Það eru nokkrir hópar samfélagsins sem eru ekki mikið fyrir tilfinningatjáninguna og þar má sem dæmi nefna karlmenn. Karlar elska að tala um tilfinningar með því að tala ekki um þær, sú pæling um að kæfa tilfinningarnar með einhverju öðru. Klassískt dæmi um þetta má nefna golfklúbba, bumbubolta, pöbbaröltið eða nokkrir fótboltaleikir yfir einum köldum, en hvar leynast lausnir karla til að tjá sig?
Umsjón: Salvör Mist Sigurðardóttir Melsteð
Veturinn 2009-2010 fékk Ævar Kjartansson Pál Skúlason, heimspeking og fyrrverandi háskólarektor, til liðs við sig til þess að fjalla um grunnhugmyndir í okkar samtíma. Í fyrsta þættinum spjölluðu þeir um eðli hugmynda almennt en fengu síðan til sín fræðimenn á ýmsum sviðum til þess að ræða hugmyndina um þjóðina, ríkið, samfélagið, hamingjuna, frelsið svo eitthvað sé nefnt.
Hugmyndin um heilbrigði. Ólafur Ólafsson fyrrverandi landlæknir verður gestur Páls Skúlasonar og Ævars Kjartanssonar
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Í þættinum í dag verðum við bæði í festum og á flakki.
Við byrjum á suðurnesjunum í bát við bryggjuna og leitum að skeljaskrímslum með Steinunni G. Helgadóttur rithöfundi og myndlistarmanni. Steinunn var að gefa út sína fjórðu skáldsögu, Síðustu dagar skeljaskrímslisins.
Svo höldum við suður á bóginn til Parísar og Pamplóna og lendum í hrakningum með Ernest Hemingway. 100 ár eru frá því að fyrsta skáldsaga nóbelshöfundarins og hrakfallabálksins bandaríska kom út 1926; The Sun Also Rises eða Og sólin rennur upp. Lilja Sigurðardóttir rithöfundur hefur lengi haft mikinn áhuga á Hemingway og segir frá lygilegri ævi hans.
Viðmælendur: Steinunn G. Helgadóttir og Lilja Sigurðardóttir.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Hauk Gröndal saxófón/klarinettleikara og tónsmið um tónlistina í lífi hans,ferilinn og hvað drífur hann.
Tónlistin í þættinum
Tíbet - Haukur Gröndal - Frelsissveit Íslands 2022
Pikku Kinalaisia - Jarko Hakala - Norrænn kvintett 2005
Evil Beaver - Haukur Gröndal - Rodent 2004
Ether - Haukur Gröndal - Frelsissveit Íslands 2022

frá Veðurstofu Íslands
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Steen Vig og Bluesicians leika lögin We Sure Do Need Him Now, Memphis Blues, Blue Turning Grey Over You, Taps Miller, Kansas City Blues, Foo Foo Blues og Tee. Jimmy Knepper Gee Baby Ain't I Good To You, Close As Pages In A Book og Irresistible You. Tríó Bill Evans og Frank Minon flytja lögin So What, Flamenco Skethces og Round Midnight. Charles Mingus og hljómsveit flytja lögin Fifty Street Blues, Conversation, East Coasting, West Coast Ghost, Celia og Memories Of You.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir, Atli Sigþórsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Þáttur um íslenskt mál og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
Rætt var við Finn Friðriksson, félagsmálfræðing og dósent við Háskólann á Akureyri, um málbreytingar og stöðugleika íslenskrar tungu.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Daníel Bjarnason, tónskáld og hljómsveitarstjóri, segir frá sínu uppáhalds tónverki.
Clifford Curzon leikur 2. kafla úr Píanókonsert nr. 1 eftir Johannes Brahms, ásamt London Symphony Orchestra, stjórnandi er Georg Szell.
Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009
Í Sagnaslóð Birgis Sveinbjörnssonar er rætt við Ellert Kárason fyrrverandi leigubílsjóra á Akureyri um starfið en Ellert var leigubílsjóri í 52 ár og þrjá mánuði og keyrði á þeim tíma um 2,7 miljón kílómetra eða eins og 67 sinnum kringum miðbaug. Þá er lesin frásögn af fyrstu póstferðinni sem farin var alla leið frá Reykjavík til Akureyrar á bíl en það var Guðmundur Albertsson sem fór þá ferð 1933.

frá Veðurstofu Íslands
Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Leiknar eru útvarpsupptökur með Hljómsveit Hauks Morthens, en nú er komið að upptökum frá áttunda áratugnum. Þeir sem leika í hljómsveitinni eru píanóleikarinn Carl Möller, gítarleikarinn Helgi Kristjánsson, trommuleikarinn Guðjón Ingi Sigurðsson og bassaleikarinn Ómar Axelsson. Einnig eru dregin fram lög að plötum sem Haukur gerði á sínum tíma.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna voru Kristján Ingi Mikaelsson, sjóðsstjóri hjá Visku sjóðum og fjárfestir, Nichole Leigh Mosty, leikskólastjóri og fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar og Vilhjámur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Gestur dagsins í FIMMUNNI var Nanna Hlíf Ingvadóttir tónlistarkennari og kórstjóri. Nanna talaði um fimm tónlistarkennara sem hafa haft áhrif á líf hennar og mótað. Það hófst með Jóni söngkennara í Æfingadeildinni og endaði á Kristínu Valsdóttur. Á milli heyrðum við sögur af ævintýralegri ævi.
Í síðari hluta þáttarins skoðaði umsjónarmaður atburði dagsins og spilaði tengda tónlist
Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.
Björgvin Franz kemur í hljóðverið til Söndru og Gísla Marteinn
GDRN - Áður en dagur rís (ft. Birnir).
EGÓ - Mescalin.
UMBERTO TOZZI - Gente di Mare.
ARON CAN - Flýg upp.
Izleifur, Elín Hall - Hugsa alltof mikið um þig.
VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON - Ég Fer Í Nótt.
Thee Sacred Souls - Lucid Girl
Hjálmar - Upp í sveit.
BRUNALIÐIÐ - Einskonar Ást.
START - Seinna Meir.
Parton, Dolly, Beyoncé - Tyrant.
Kristmundur Axel, Bubbi Morthens - Ég er kominn heim
ÍRAFÁR - Ég Sjálf.
Útvarpsfréttir.
Tugir manna og kvenna sem voru á vistheimilum sem börn, hafa leitað til lögmanns eftir þátt Kveiks um aðstæður barna í Bakkakoti. Sumir eru að segja sögu sína í fyrsta sinn í áratugi. Lögmaðurinn segir fleiri heimili til skoðunar en Bakkakot.
Úkraínumönnum og Rússum hefur verið boðið að funda um stríðslok í Bandaríkjunum í næstu viku, að sögn forseta Úkraínu. Bandaríkjamenn vilja að stríðinu verði lokið í júní.
Hvorki er hægt að tryggja öryggi starfsfólks né sjúklinga á bráðamóttöku í núverandi ástandi, að mati formanns læknafélagsins. Tímabært sé að setja í gang neyðaráætlun í heilbrigðiskerfinu.
Töluvert landrof hefur orðið í Reynisfjöru og stór bakki hrunið úr hlíðum Reynisfjalls alveg að viðvörunarskiltunum við fjöruna. Landeigandi segist aldrei hafa séð svo mikið landrof í fjörunni.
Hjónin Bill og Hillary Clinton vilja að vitnisburður þeirra fyrir þinginu um tengsl við Jeffrey Epstein verði fyrir opnum tjöldum. Repúblíkanar eru sakaðir um að reyna að koma höggi á pólitíska andstæðinga Donalds Trump Bandaríkjaforseta með skýrslutökunum.
Bryggjustöðin verður opnuð á Þingeyri í dag en hún er eina verslunin í þorpinu sem opin verður allan ársins hring. Engin búð hefur verið í þorpinu í um hálft ár.
Rapparinn og plötusnúðurinn Ragga Holm á Rás 2 alla laugardaga með tónlistarþáttinn Smell. Frábær upphitun fyrir kvöldið!
Ragga Holm fór um víðan völl eins og vantarlega í Smelli dagsins. hún gaf 7. febrúar 1976 sérstaka athygli og fór yfir vinsældir laga það herrans ár. Allir smellirnir ykkar á einum stað alla laugardaga !
Lagalisti:
Júlí Heiðar & Dísa - Ástardúett
Lenny Kravitz - I'll Be Waiting
CMAT - Ready
George Michael & Aretha Franklin - I Knew You Were Waiting (For Me)
Bubbi Morthens - Bláu Ljósin
Snorri Helgason - Torfi Á Orfi
Chumbawamba - Tubthumping
Digital Ísland - Eh Plan?
Kate Bush - Wuthering Heights
Wet Leg - Ur Mum
Sinéad O'Connor - Mandinka
Elles Bailey - Growing Roots
GDRN - Næsta Líf
Bríet - Bang Bang
200.000 Naglbítar - Brjótum Það Sem Brotnar
Bob Dylan - Hurricane
Donna Summer - Love To Love You Baby
Brotherhood Of Man - Save Your Kisses For Me
Aerosmith - Dream On
Ohio Players - Love Rollercoaster
Kingfishr - Killeagh
Roxy Music - More Than This
FM Belfast - Underwear
Friðrik Ómar - Hvað Ef Ég Get Ekki Elskað
Árný Margrét - Hakk Og Spaghettí
Stealers Wheel - Stuck In The Middle With You
Jón Jónsson - Dýrka Mest

Fréttastofa RÚV.
Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Tónlistarkonan með marga hatta Rebekka Blöndal mætir í lagalistann með poka fullan af tónlist þar sem við förum yfir lífshlaupið á hundavaði en einbeitum okkur fyrst og fremst að tónlistinni sem um ræðir. Þar kennir ýmissa grasa, meðal annars Rammstein, Led Zeppelin, Björgvin Halldórsson og Ella Fitzgerald.
Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
Það var sko kósí stemmning á Næturvakt kvöldsins. Bóndinn lét heyra í sér og Björgvin er afmælisstrákurinn þennan laugardaginn!
Tónlistin í þættinum:
Snorri Helgason - Haustið '97.
FLEETWOOD MAC - Oh Well.
Geese - Cobra.
ARCANE ROOTS - A Wave, Across The Sea.
BEAR MCCREARY - The last of the old gods feat. Sigurjón Kjartansson.
THIN LIZZY - Whiskey In The Jar.
MUSE - Uprising.
HÖRÐUR TORFASON - Brekkan.
POST MALONE - Sunflower.
Waits, Tom - The heart of Saturday night.
Magnús Eiríksson - Komdu Í Partý.
SUPERGRASS - Alright.
SUPERTRAMP - The Logical Song.
INGÓ OG VEÐURGUÐIRNIR - Gestalistinn.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Gullauga.
Pónik og Einar - Viltu dansa.
Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar - Blíðasti blær.
RUSLANA - Wild Dance.
Gainsbourg, Charlotte, Gainsbourg, Serge - Lemon incest.
GIMMI - Þannig er nú það.
Gunnlaugur Reynisson - Þjóðarsálin (Live).
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sigfús Pétursson, Álftagerðisbræður - Rósin.
GEIRMUNDUR VALTÝSSON - Það er laugardagskvöld.
CROSBY STILLS & NASH - Almost Cut My Hair.
HALLI REYNIS - Tvær hendur tómar.
Trap Hljómsveit - Storms never last.