14:03
Á tónsviðinu
Átthagasöngvar

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Í þessum þætti eru fluttir átthagasöngvar, en það orð er notað um söngva sem mæra einhvern tiltekinn stað á landinu. Oftast eru höfundar slíkra ljóða að yrkja um átthaga sína, landsvæðið þar sem þeir hafa alist upp eða átt heima í mörg ár. Meðal frægra íslenskra átthagasöngva eru „Skín við sólu Skagafjörður“ eftir Sigurð Helgason við ljóð Matthíasar Jochumssonar, „Blessuð sértu sveitin mín“ eftir Bjarna Þorsteinsson við kvæði Sigurðrar Jónssonar frá Arnarvatni, og „Átthagaljóð“, lag Inga T. Lárussonar við ljóð Sigurðar Arngrímssonar. Þessir söngvar verða fluttir í þættinum, og margir fleiri, sumir alkunnir, en aðrir lítt þekktir.

Er aðgengilegt til 15. júlí 2026.
Lengd: 49 mín.
e
Endurflutt.
,