22:18
Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Leikin er allskonar sveiflutónlist, meðal annars með Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar. Þá heyrast lög með ýmsum söngkonum, þar á meðal Lenu Horn og hljómsveit Artie Shaw, Thelmu Carpenter og hljómsveit Coleman Hawkins, Marion Hutton og hljómsveit Glenn Milller, Maxine Sullivan og hljómsveit Benny Carter, Estelle Edson og hljómsveit Oscar Pettiford, Anitu O'Day og kvartett Oscar Peterson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 42 mín.
e
Endurflutt.
,