Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 8. janúar 2017: Þátturinn er helgaður upphafi, nýrri byrjun. Lífið getur stundum fært okkur nýtt upphaf. Við skoðum nýja byrjun þegar rof verður í hversdeginum. Innslög í þáttinn gerðu Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson og Halla Ólafsdóttir.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar er platan Fyrir sunnan Fríkirkjuna með Heimi og Jónasi.
Platan var gefin út af Fálkanum árið 1969 og inniheldur tólf lög, þar af sjö eftir þá Heimi Sindrason og Jónas Tómasson. Ljóðskáldin Davíð Stefánsson og Tómas Guðmundsson eiga hvor sín fjögur ljóð á plötunni. Með Heimi og Jónasi á plötunni syngja þær Vilborg Árnadóttir og Þóra Kristín Johansen og Páll Einarsson leikur á bassa auk þess sem hann útsetti nokkur laganna á plötunni.
Heimir Sindrason og Jónas Tómasson byrjuðu að syngja saman þegar þeir voru í Menntaskólanum í Reykjavík um miðbik sjöunda áratugar síðustu aldar. Fyrst í stað komu þeir fram á skólaskemmtunum en ekki leið á löngu þar til hróður þeirra barst út fyrir veggi skólans, og þeir voru fengnir til að koma fram á ýmsum opinberum stöðum, og þar á meðal bæði í útvarpi og sjónvarpi. Á bakhlið plötuumslags vínils vikunnar að þessu sinni er saga þeirra rakin stuttlega, og segir þar að hinn sérstæði söng- og spilamáti þeirra hafi strax vakið athygli. Þeir fluttu eigin lög og eins gamanvísur og þjóðlög úr ýmsum áttum við miklar vinsældir.
Dúettinn starfaði þó ekki lengi því að loknu stúdentsprófi árið 1967 skildu leiðir og Heimir hélt til Glasgow þar sem hann stundaði nám í tannlækningum. Jónas hóf á sama tíma nám í tónsmíðum og flautuleik við tónlistarskólann í Reykjavík. Skömmu áður en það gerðist sungu þeir félagar inn á hljómplötuna Fyrir sunnan Fríkirkjuna. Upptökum á plötunni stjórnaði Jón Þór Hannesson. Heimir og Jónas fengu til liðs við sig þrjú skólasystkini sín, þau Vilborgu Árnadóttur, Þóru Kristínu Johansen og Pál Einarsson, en þessi hópur hafði stundum komið fram saman á skólaárunum á ýmsum skemmtunum. Vilborg og Þóra héldu að þessu loknu í tónlistarnám, Vilborg lærði söng meðal annars í Bretlandi og Bandaríkjunum en Þóra lærði á píanó og sembal og hefur verið búsett í Hollandi í áratugi og sinnt þar tónlist með ýmsum tónlistarhópum. Páll Einarsson fór í allt aðra átt, lagði stund á nám í eðlisfræði og varð síðar landsþekktur jarðvísindamaður. Vilborg og Þóra sungu með Heimi og Jónasi en Páll spilaði á bassa auk þess að útsetja nokkur laganna á plötunni. Heimir og Jónas sungu og spiluðu á gítara auk þess sem Jónas spilaði á þverflautu.
Þó svo að platan hafi verið tekin upp árið 1967 liðu einhverra hluta vegna tvö ár þar til hún var gefin út hjá Fálkanum, en platan kom út haustið 1969. Heimir og Jónas höfðu vegna annarra verkefna ekkert komið saman í langan tíma og kom því plötuútgáfan mörgum á óvart. Engu að síður fékk platan glimrandi móttökur, enda geymir hún margar tónlistarperlur sem sumar hverjar lifa enn í dag góðu lífi, að ógleymdum ljóðunum sem þar eru sungin.
Vinsældir plötunnar urðu til þess að Fálkinn fékk þá félaga til að hljóðrita aðra plötu sem kom út árið eftir og innihélt þjóðlög og íslensk lög í þjóðlagastíl. Sú plata fékk sömuleiðis góðar viðtökur en auk þeirra félaga voru Páll Einarsson og Vilborg Árnadóttir einnig með þeim á seinni plötunni. Heimir og Jónas voru á þessum tíma hættir að koma fram sem tónlistarmenn að mestu, en komu þó saman árið 1974 í sjónvarpsþættinum Ugla sat á kvisti. Báðir áttu síðan farsælan feril hvor á sínu sviði, Heimir sem tannlæknir og tónlistarmaður í hjáverkum og Jónas sem tónskáld og tónlistarkennari á Ísafirði.
Fyrir sunnan Fríkirkjuna
A-hlið
1. Bréfið hennar Stínu
2. Einbúinn
3. Litla kvæðið um litlu hjónin
4. Namm namm
5. Laxfoss
6. Móðir mín í kví kví
B-hlið
1. Við Vatnsmýrina
2. Hótel Jörð
3. Fyrir átta árum
4. Húsin í bænum
5. Á skurðstofunni
6. Nautn
Umsjón: Stefán Eiríksson.

frá Veðurstofu Íslands.
Í þáttaröðinni fjallar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður um fyrstu fótboltamennina frá gömlu Júgóslavíu sem komu til Íslands á árunum 1989-1992 til að spila fótbolta og settust svo hér að. Framleiðandi: Þorgerður E. Sigurðardóttir. Hljóðmynd: Jón Þór Helgason.
Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
Í þessum sjötta og síðasta þætti skoðum við aðeins arfleifð þessara leikmanna, hvaða áhrif þeir höfðu á íslenskan fótbolta og hvað þeir eru að gera í dag. Rætt er við Hjörvar Hafliðason, Rúnar Kristinsson, Goran Kristófer Micic, Hajrudin Cardaklija, Luka Lúkas Kostic, Salih Heimi Porca, Izudin Daða Dervic, Milan Stefán Jankovic, Zoran Daniel Ljubicic, Ejub Purisevic, Heimi Karlsson
og Guðna Bergsson.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna voru Árni Snævarr sagnfræðingur, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, ráðgjafi, stjórnmálafræðingur og aðjúnkt við Háskólann á Bifröst, og Ingunn Lára Kristjánsdóttir samfélagsmiðlafréttamaður. Til umræðu voru Epstein-skjölin, öryggisráðstefnan í München, samskipti Evrópu og Bandaríkjanna og fleira.
Umsjón: Alma Ómarsdóttir
Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Tónlist héðan og þaðan

Útvarpsfréttir.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Það hefur gengið á ýmsu á vetrarólympíuleikunum sem nú standa yfir. Játningar um framhjáhald, fótbrot og ásakanir um svindl og typpastækkanir er meðal þess sem hefur verið í umræðunni. Í þættinum ætlum við að fjalla um mál Sydney Milani sem var meinuð þátttaka á leikunum eftir að sterar mældust í henni. Hún þvertekur fyrir að hafa tekið stera og segir efnin hafa mælst í henni vegna kærasta hennar, hann hafi tekið stera og hún hafi annað hvort fengið efnin í sig eftir sopa af drykk sem hann blandaði eða með sæði úr kærastanum. Bjarni Pétur Jónsson skoðar þetta áhugaverða mál og ræðir við Birki Sverrisson, framkvæmdastjóra lyfjaeftirlitsins.
Stjórnvöld í Rússlandi hafa kæft öll mótmæli gegn sér og allsherjarinnrásinni í Úkraínu. Fólk sem vogar sér að mótmæla á ekki von á góðu; hvort sem það eru almennir borgarar, hátt settir embættismenn eða auðmenn. Nokkur fjöldi þeirra þykir hafa dáið á dularfullan hátt síðustu ár, sumir eftir að hafa gagnrýnt árásir Rússlandshers á Úkraínu. Rússneskir milljarðamæringar eru fleiri en nokkurn tíma fyrr og þeir eru ríkari en áður. Embættismenn landsins, sem einnig teljast til elítunnar, óttast hvað gerist þegar stríðinu lýkur. Jafnvel þeir sem eru á móti allsherjarinnrásinni. Við skulum vinda okkur til Kremlar. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið.

Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Fjallað verður um hin byltingakennda og goðsagnakennda Norska listamann: Edvard Munch. Farið verður yfir líf hans og list en aðal umfjöllunarefni þáttarins verður um ást. Farið verður yfir konurnar í lífi Munchs, ástarlífinu hans og hvernig þetta tvennt birtist í þremur af verkum hans: Man and Woman I (1905), Girl and Death (1894) og Separation (1894).
Umsjón: Ásdís Eva Goldsworthy

Veturinn 2009-2010 fékk Ævar Kjartansson Pál Skúlason, heimspeking og fyrrverandi háskólarektor, til liðs við sig til þess að fjalla um grunnhugmyndir í okkar samtíma. Í fyrsta þættinum spjölluðu þeir um eðli hugmynda almennt en fengu síðan til sín fræðimenn á ýmsum sviðum til þess að ræða hugmyndina um þjóðina, ríkið, samfélagið, hamingjuna, frelsið svo eitthvað sé nefnt.
Ævar Kjartansson og Páll Skúlason ræða hugmyndina um sjálfræði við Guðmund Heiðar Frímannsson, prófessor við Háskólann á Akureyri

Útvarpsfréttir.

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Veigar Margeirsson um lífið og tónlistartilveruna og nýja plötu hans með Stórsveit Reykjavíkur. Five Birds.
Tónlistin í þættinum:
Between the Lines - VM - Stórsveit Rvk
Beyond the Limit - Bob Mintzer
Ambivalence - Vince Mendoza
Thirteen - VM - Stórsveit Rvk
It had to be you - Diana Schuur
Ballad for my Father - VM - Stórsveit Reykjavíkur

Fréttir
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um mál sem skók fornleifafræðaheiminn í Evrópu á ofanverðri nítjándu öld. Forngripasali frá Jerúsalem birtist þá í Lundúnum og sagðist hafa í fórum sínum þrjú þúsund ára gamalt eintak af fimmtu Mósebók. Nokkru síðar var forngripasalinn látinn og handritin hans horfin.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Anita O'Day syngur sjö lög með Buddy Bregman og hljómsveit hans: 'm Not Lonely, Sweet Georgie Brown, I Won't Dance, Let's Face The Music And Dance, The Getaway and the Chase, Stompin' At Savoy og We Laughed At Love. Kvintett Benny Golson flytur slögin Cherry, Park Avenue Petite, Terminal One, Caribbean Drifting, Blues March og Tough Me Lightly. Julian Joseph og tríó flytja sex lög: Boiling Point, Smoke Gets In Your Eyes, Doctorne Fried Bananas, All Or Nothing At All og Solar.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Orðið fataskápur merkir ekki bara hirsla undir föt heldur er hægt að nota orðið yfir fötin sjálf sem geymd eru í skápnum. Farið er yfir merkingarsögu orðsins og samsvarandi orðs í ensku auk þess sem skoðuð eru ýmis safnheiti um fatnað og vefnaðarvöru og orðatiltæki sem þeim tengjast.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Jóna G Kolbrúnardóttir segir frá sínu uppáhalds tónverki.
Maria Callas syngur Damor sur ali róse, eftir Verdi, úr óperunni Il trovatore. Herbert von Karajan stjórnar hljómsveit óperunnar í Scala. Upptakan er frá árinu 1956.
Í framhaldinu flytja tenórsöngvararnir Jonas Kaufmann og Giovanni Gregnanin, ásamt sópransöngkonunni Eriku Grimaldi, valdan kafla úr sömu óperu; Ah! si, ben mio... Di quella pira. Óperuhljómsveitin í Parma leikur, undir stjórn Pier Giorgio Morandi.

Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009
Í Sagnaslóð Birgis Sveinbjörnssonar er fjallað um Hjört Hjálmarsson kennara, skólastjóra og sparisjóðsstjóra á Flateyri og lesið úr Ársriti Önfirðingafélagsins í Reykjavík sem helgað er minningu hans. Lesari með umsjónarmanni er Bryndís Þórhallsdóttir


frá Veðurstofu Íslands

Svanhildur Óskarsdóttir les sálmana í hljóðritun frá árinu 1998.
Árið 1944 var tekinn upp sá siður hjá Ríkisútvarpinu að lesa alla Passíusálma Hallgríms Péturssonar á föstunni.

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Leikin er allskonar sveiflutónlist, meðal annars með Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar. Þá heyrast lög með ýmsum söngkonum, þar á meðal Lenu Horn og hljómsveit Artie Shaw, Thelmu Carpenter og hljómsveit Coleman Hawkins, Marion Hutton og hljómsveit Glenn Milller, Maxine Sullivan og hljómsveit Benny Carter, Estelle Edson og hljómsveit Oscar Pettiford, Anitu O'Day og kvartett Oscar Peterson.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna voru Árni Snævarr sagnfræðingur, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, ráðgjafi, stjórnmálafræðingur og aðjúnkt við Háskólann á Bifröst, og Ingunn Lára Kristjánsdóttir samfélagsmiðlafréttamaður. Til umræðu voru Epstein-skjölin, öryggisráðstefnan í München, samskipti Evrópu og Bandaríkjanna og fleira.
Umsjón: Alma Ómarsdóttir
Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Útvarpsfréttir.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Það er óhætt að segja að Jón Sigurður Gunnarsson sem er alltaf kallaður Nonni hafi marga hatta. Hann er fimleikameistari og Íslandsmeistari í kraftlyftingum en hefur hallað sér að listagyðjunni, bæði í tónlist og nú sirkuslistum en hann er meðlimur Sirkus Íslands og tekur þátt í mörgum sýningum bæði hér heima og erlendis. Hann klárar MA gráðu í sviðslistum frá LHí á árinu með fókus á sirkusinn.
Nonni kom í FIMMU og talaði um fimm ákvarðanir sem breyttu lífi hans.
Svo fjallaði Felix um það sem gerðist á deginum og sagði af magnaðir tónleikaupplifun en hann sá David Byrne á sviði í Berlín ásamt 11 manna hljómsveit á Who is this guy? tónleikaferðinni.
Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.
Vigdís Hafliðadóttir kemur í heimsókn til Gísla Marteins og Söndru Barilli.
Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Valentínus.
ICEGUYS - Stingið henni í steininn.
FLOTT - L'amour.
DAÐI FREYR - Whole Again.
Nýdönsk, Nýdönsk - Flugvélar.
Bad Bunny - DtMF.
Bríet - Bang Bang.
Dyrholm, Trine, Matti Lauri Kallio - Glor på vinduer.
Ásgeir Trausti Einarsson - Against the Current.
Laufey - Snow White.
Bubbi Morthens - Bláu ljósin.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Rapparinn og plötusnúðurinn Ragga Holm á Rás 2 alla laugardaga með tónlistarþáttinn Smell. Frábær upphitun fyrir kvöldið!

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Farið yfir vinsælustu lög Rásar 2 þessa vikuna.
Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir.

Fréttastofa RÚV.
Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Brynja Pétursdóttir oft kennd við Danskóla Brynju Péturs mætir í hljóðver með stútfullan poka af lögum sem hjálpa okkur að fleyta kellingar í gegnum lífshlaupið hennar þar sem við förum yfir stöðugar ferðir til New York og til baka, Yo! MTV Raps, Jimi Hendrix og margt fleira.

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
