08:03
Fram og til baka
Jón Sigurður Gunnarsson sirkuslistamaður

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Það er óhætt að segja að Jón Sigurður Gunnarsson sem er alltaf kallaður Nonni hafi marga hatta. Hann er fimleikameistari og Íslandsmeistari í kraftlyftingum en hefur hallað sér að listagyðjunni, bæði í tónlist og nú sirkuslistum en hann er meðlimur Sirkus Íslands og tekur þátt í mörgum sýningum bæði hér heima og erlendis. Hann klárar MA gráðu í sviðslistum frá LHí á árinu með fókus á sirkusinn.

Nonni kom í FIMMU og talaði um fimm ákvarðanir sem breyttu lífi hans.

Svo fjallaði Felix um það sem gerðist á deginum og sagði af magnaðir tónleikaupplifun en hann sá David Byrne á sviði í Berlín ásamt 11 manna hljómsveit á Who is this guy? tónleikaferðinni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 57 mín.
,