19:20
Lagalistinn
Brynja Péturs

Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.

Brynja Pétursdóttir oft kennd við Danskóla Brynju Péturs mætir í hljóðver með stútfullan poka af lögum sem hjálpa okkur að fleyta kellingar í gegnum lífshlaupið hennar þar sem við förum yfir stöðugar ferðir til New York og til baka, Yo! MTV Raps, Jimi Hendrix og margt fleira.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 38 mín.
,