14:03
Sígild og samtímatónlist
Tónlist eftir Silvestrov, Shostakovitsj og Ligeti

Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.

Tónlistin í þættinum:

Meditation: Sinfónía fyrir selló og kammersveit eftir Valentin Silvestrov. Kammersveitin Musica Viva leikur ásamt sellóleikaranum Alexander Rudin. Stjórnandi er Nikolai Alexeyev. Útgefið á plötunni Valentin Silvestrov árið 1996.

Píanókonsert nr. 2 op. 102 í F-dúr eftir Dmitríj Shostakovitsj. Þættirnir verksins eru þrír : Allegro, Andante og Allegro. Alexander Melnikov leikur einleik á píanó með Mahler-kammersveitinni. Stjórnandi er Teodor Currentzis. Útgefið á plötunni Piano Concertos; Sonata for violin and piano op. 134 árið 2011.

Seinni þáttur af tveimur, Joc. Allegro vivace úr Ballöðu og dansi fyrir tvær fiðlur (1950) eftir György Ligeti. Flytjendur eru fiðluleikararnir Irvine Arditti og David Alberman. Útgefið á plötunni String Quartets und Duets árið 1996.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,