18:00
Kvöldfréttir útvarps
Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands segir að verkferlum hafi verið fylgt og Samkeppniseftirlitið fylgist með bensínverði

Fréttir

Fréttir

Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands segir að verkferlum hafi verið fylgt, þegar beiðni um sjúkrabíl var hafnað um helgina. Maður frá Skagaströnd hringdi beint í stofnunina og óskaði eftir sjúkrabíl eftir að hann náði ekki sambandi við Neyðarlínu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

Samkeppniseftirlitið kannar enn hvort lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti fyrsta maí hafi skilað sér að fullu til neytenda. Forstjóri þess segir ótímabært að meta hvort olíufélög verði beitt sektum.

Verjendur fimm sakborninga í hoppukastalamálinu svokallaða fóru í dag fram á að málinu yrði vísað frá dómi. Meira en þrjú ár eru liðin síðan ákæra var gefin út.

Sviðsstjóri Netöryggismiðstöðvar Íslands vill sambærilegt bann hér á landi og bresk stjórnvöld kynntu í morgun, um samfélagsmiðlanotkun barna.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,