07:03
Morgunvaktin
Lífið í Grímsey, varðstaða um landaheitið Ísland, evrópsk tíðindi og ál

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Grímseyingar (og bæjarráð Akureyrar) eru ósáttir við ákvörðun Vegagerðarinnar að fækka ferðum Grímseyjarferjunnar Sæfara fyrri hluta árs úr fimm í fjórar. Halla Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri Arctic Trip í Grímsey segir að stjórnvöld verði að gera upp við sig hvort áfram skuli búið í Grímsey eða ekki.

Standa á sérstakan vörð um landaheitið Ísland/Iceland á alþjóðlegum mörkuðum. Samkomulag þess efnis var undirritað á dögunum. Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, sagði frá.

Björn Malmquist í Brussel flutti fréttir af vettvangi Evrópusamstarfs. Hann ræddi m.a. við Lilju Björk Guðmundsdóttur, yfirlögfræðing Samtaka iðnaðarins, um mikilvægi þess að íslenskar framleiðsluvörur falli undir væntanlega skilgreiningu sambandsins á evrópskum iðnaði.

Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað mjög að undanförnu og er talsvert hærra nú en á síðasta ári. Margt ræður álverði og þróun þess, líkt og Guðríður Eldey Arnardóttir, framkvæmdastjóri Samáls, rakti. Hún sagði raforkukostnað íslenskra álvera hækkað mjög; talsvert meira en annars staðar í álfunni. Ísland stendur undir fjórðungi allrar álframleiðslu í Evrópu en aðeins einu til tveimur prósentum þegar kemur að heiminum öllum.

Tónlist:

Sunnudagsmorgunn - Jón Ólafsson,

Ísland er land þitt - Magnús Þór Sigmundsson,

Sports - Aaaron Parks.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,