23:10
Lestin
Brunað milli kvikmyndahátíða: Cannes, Zürich, Patreksfjörður

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Við ætlum að flakka milli kvikmyndahátíða í Lestinni í dag. Við verðum Í Suður-Frakklandi, í Sviss og á Patreksfirði. Við hringjum til Cannes þar sem einhver þekktasta kvikmyndahátíð heims stendur nú yfir, þar er Lóa Björk stödd og við tökum stöðuna á henni.

Við heyrum líka í Kristínu Andreu Þórðardóttur sem er einn skipuleggjenda heimildamyndahátíðarinnar Skjaldborg sem fer fram venju samkvæmt á Patreksfirði um Hvítasunnuhelgina.

Og svo heyrum við um svissnesku hátíðina Videoex sem er tileinkuð tilraunakenndri kvikmyndagerð, en íslenskar myndir verða í sérstökum brennidepli á hátíðinni í ár. Rithöfundurinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Sjón segir frá, en hann sá um valið á tilraunakenndum islenskum myndum sem sýndar eru á hátíðinni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,