18:00
Kvöldfréttir útvarps
Viðbrögð lögreglu við sjálfsíkveikju, meirihlutaviðræður, ebóla og Evrópusambandsviðræður

Fréttir

Fréttir

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum telur að lögreglumenn á vettvangi þar sem maður kveikti í sér í gær hafi brugðist rétt við aðstæðum.

Meirihlutaviðræður eru komnar á skrið víða um land. Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur eru langt komnir með myndun nýs meirihluta í Reykjanesbæ. Flokkarnir eru samálla um að taka ekki á móti fleiri hælisleitendum í bæinn.

Ebólutilfellum fjölgar hratt í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og tveir hafa einnig greinst í Úganda. Alþjóðaheilbrigðisstofunin telur að faraldurinn geti varað í minnst tvo mánuði.

Samþykki Íslendingar að hefja aðildarviðræður við ESB á ný er talið að þær muni taka um eitt og hálft til tvö ár og kosta um einn komma níu milljarða króna. Þingsályktunartillaga um aðildarviðræður er á dagskrá þingfundar á morgun

Umsjón: Ásta Hlín Magnúsdóttir

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,