16:05
Víðsjá
Rót brúðusýning, Huldur Í fossgljúfri og Nína Hjálmars í Feneyjum

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Kammerkórinn Huldur var stofnaður fyrir um fimm árum síðan. Kórinn samanstendur að mestu af fyrrverandi meðlimum kórs Menntaskólans við Hamrahlíð en stofnandi kórsins og kórstjóri er Hreiðar Ingi Þorsteinsson. Huldur hefur nú gefið út plötu sem kallast Í fossgljúfri en meirihluti verkanna er saminn af meðlimum kórsins. Við fáum tvo þeirra til að segja okkur frá plötunni, þá Kormák Loga Bergsson og Arvid Ísleif Jónsson Schirmacher.

Rót er ný ljóðræn brúðuleiksýning fyrir alla fjölskylduna sem sýnd verður á Listahátíð í Reykjavík. Verkið er úr smiðju Handbendi, margverðlaunaðs brúðuleikhúss á Norðvesturlandi sem stofnað var árið 2016 af Gretu Clough leikstjóra, leikara og flytjanda. Þau Sigurður Arent Jónsson, leikari og brúðuleikari heimsækja hljóðstofu.

Nína Hjálmarsdóttir, menningarrýnir, segir okkur frá sinni upplifun af Feneyjatvíæringnum, en hún er nýkomin heim eftir að hafa verið á svæðinu að skoða myndlist í heila fimm daga.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,