Í þáttunum Steypiregn kynnir Margrét Kristín Blöndal tónlistarmenn og tónlistarkonur sem hafa átt ríkan þátt í gera heiminn enn betri og fegurri. Í hverjum þætti er einn listamaður tekinn fyrir og verk hans kynnt fyrir hlustendum.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2014.
Komiði sælir hlustendur góðir og verið ævinlega velkomnir að þættinum Steypiregni..sem sannarlega hefur verið viðeigandi svona allavegana að nafninu til nú í sumartíðinni. En sólin hefur engu að síður skinið á okkur hér í þættinum og þá helst í gegnum tónlistina, því frá Brasilíu höfum við þegið undurfagra geislandi tóna úr barka hinnar goðum líku Elis Regina og sagt af henni nokkur deili um leið.
Oriente - Elis Regina
Ladeira da Preguica - Elis Regina og Gilberto Gil
Travessia - Elis Regina
O mestre sala dos mares - Elis Regina
Caca a raposa - Elis Regina
4 dois pra lá, dois pra ca - Elis Regina
Aguas de Marco - Elis Regina/Tom Jobim
Þátturinn var fyrst á dagskrá 19. júlí 2014.
Staðlaðar setningar eru hluti af lífi okkar allra án þess að við veltum því mikið fyrir okkur. „Góðan dag“ og „gleðileg jól“ eru til dæmis staðlaðar setningar, einnig má nefna setninguna „Eigðu góðan dag“, sem afgreiðslufólk notar oft til að kveðja viðskiptavininn. Sumar staðlaðar setningar lifa öldum saman, aðrar eiga sér styttra líf, og þær geta þannig hjálpað sagnfræðingum að ákvarða aldur texta. Þetta á til dæmis við um setninguna „Eigðu góðan dag“ sem ekki heyrðist á Íslandi fyrr en eftir 1990. Sumar staðlaðar setningar eru áletranir á skiltum. Lengi vel var algengt að í lystigörðum væru skilti með áletruninni „Gangið ekki á grasinu“, en slík skilti eru nú orðin sjaldgæf. Þessi áletrun rataði hins vegar inn í söguna „Palli var einn í heiminum“ sem Jens Sigsgaard samdi árið 1942. Staðlaðar setningar hafa oftar orðið hluti af skáldskap og sönglögum, og um þetta verður fjallað í þættinum „Gangið ekki á grasinu“. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Kristján Franklín Magnús.
Hvernig horfum við á nútíðina og hvernig spáum við í framtíðina? Getum við litið til baka og greint fortíðina? Getum við komist að því hver viðhorf ungs fólks voru árið 1940? En árið 2011? Hvernig hafa hugmyndir fólks breyst á 50 árum? Og hvernig sér það þróunina fyrir sér næstu 50 ár?
Í þáttunum Kynslóðir mætast verður rætt við þrettán Íslendinga sem fæðast og alast upp á ólíkum tímum. Eldri viðmælendurnir eiga það sameiginlegt að hafa fæðst áður en Ísland varð lýðveldi og yngri viðmælendurnir fæddust allir eftir að Gleðibankinn var orðinn að klassík og Perlan að kennileiti í Reykjavík. Í eldri hópnum er yngsti viðmælandinn 73 ára og sá elsti 90 og í yngri hópnum er sá elsti 18 ára gamall og þeir yngstu 14 ára gamlir. Á milli elsta og yngstu viðmælendanna eru 76 ár.
Hvaða hugmyndir hafa þessir einstaklingar um menntun, störf, byggðarþróun, náttúruna, auðlindir, alþjóðamál, íslenska tungu og íslenskan mat? Hverju myndu þeir vilja breyta í íslensku samfélagi? Endurspegla tvær kynslóðir tvö ólík viðhorf? (Áður á dagskrá 2011)
Hvað eiga kynslóðirnar sameiginlegt? Hvað greinir þær að? Hvaða breytingar hafa orðið á hugmyndum fólks á hálfri öld? Hvernig sjá þessar tvær kynslóðir framtíðina fyrir sér? Umsjón: Gerður Jónsdóttir.
Í þriðja þætti Kynslóðir mætast svara viðmælendur þáttarins spurningum um Ísland og umheiminn. Hvaða aðgang höfðu Íslendingar að alþjóðaheiminum fyrir 60 árum síðan? Hvað með ungt fólk nú, þegar hægt er að fylgjast með því hvað er að gerast í alþjóðaheiminum í rauntíma, sitjandi út í móa með símann fyrir framan sig? Skiptir máli fyrir ungt fólk að fylgjast með því sem gerist utan landsteinanna? Hver verður staða Íslands eftir 50 ár? Munum við halda sjálfstæði okkar? Hvernig mun tungumálið okkar þróast?
Þátturinn var fyrst á dagskrá 25. september 2011.

frá Veðurstofu Íslands.
Helgi Seljan kynnir sér lífið í öryggisfangelsinu Litla-Hrauni.
Í fyrsta þætti Letigarðsins mjökum við okkur hægt og rólega inn fyrir tvöfalda öryggisgirðinguna umhverfis öryggisfangelsið á Litla Hrauni. Hittum móttökustjórann sem verið hefur í fangelsinu í 40 ár og forvitnumst um þrjá ættliði sem setið hafa inni samtímis. Hvers vegna var ákveðið að byggja fangelsi á Eyrarbakka fyrir næstum 90 árum? Af hverju voru einu fangarnir sem þar dvöldu fyrstu áratugina, ýmist smáglæpamenn eða geðveikir? Hvers vegna heyrist svo hátt í viftunni í einangrunarklefunum í gæsluvarðhaldsálmunni og afhverju eru öskubakkarnir úr gúmmíi? Hvað fær maður fyrir að sitja saklaus og að óþörfu í einangrun á annan mánuð? Hvert er vinsælasta lesefni gæsluvarðhaldsfanga?
Umsjón Helgi Seljan
Tæknimaður Hrafnkell Sigurðsson.
Guðsþjónusta dagsins er send út frá Bústaðakirkju í Reykjavík.
Séra Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Sigríði Kristínu Helgadóttur.
Sæluboð Fjallræðunnar verða tónuð eftir tónlagi séra Bjarna Þorsteinssonar.
Félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju syngja undir stjórn Jónasar Þóris organista.
Bernadett Hegyi og Sæberg Sigurðsson syngja einsöng.
Barnakór Fossvogs syngur undir stjórn Auðar Guðjohnsen.
Guðspjall dagsins er bæn Jesú fyrir lærisveinunum, að Guð faðir varðveiti lærisveinanna frá hinu illa og helgi þá í sannleikanum.
TÓNLIST Í MESSUNNI:
Fyrir predikun
Forspil: Hve margt er það líf Spuni við sálm nr. 449-Hjálmar H. Ragnarsson
307 Þú ert Drottinn Per Harling/Jón Ragnarsson
Cantar – Barnakór Jay Althouse
Írsk bæn Írskt þjóðlag/Olga Guðrún Árnadóttir
Eftir predikun
Númer Heiti lags/sálms Höfundar
Fögnuður Jónas Þórir/Matthías Johannessen
763 Ó Guð ég veit hvað ég vil Torgny Erséus/Kristján Valur Ingólfsson
760 Nú heilsar vorsins Nathan Söderblom/Sigurbjörn Einarsson
Eftirspil: Nú er sumar Spuni – Steingrímur Thorsteinsson
Útvarpsfréttir.
Sjálfstæðisflokki og Miðflokki gekk best í sveitarstjórnarkosningum í gær. Kjörnum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins fjölgaði um 15 á landsvísu og Miðflokkurinn bætti við sig sautján fulltrúum. Kjörsókn var tæplega 67%.
Sjálfstæðismenn verða níu í borgarstjórn Reykjavíkur, Samfylkingin heldur sínum fimm en fékk minna fylgi hlutfallslega en fyrir fjórum árum.
Formaður Miðflokksins segir flokk sinn nýtt afl í sveitarstjórnum. Formaður Samfylkingarinnar er meðvituð um ákall um breytingar í borginni. Formaður Framsóknarflokksins telur einn borgarfulltrúa varnarsigur og kosninganiðurstöðurnar fóru fram úr vonum formanns Sjálfstæðisflokksins.
Ebólufaraldurinn í lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hefur breiðst út til nágrannaríkja og fjöldi þeirra sem smitast gæti aukist verulega, segir Alþjóða heilbrigðismálastofnunin. Á þriðja hundrað manns hefur smitast og um áttatíu eru látin.
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum þætti Krakkaheimskviða heldur Karitas upp á þjóðhátíðardag Noregs sem er í dag. Við skoðum líka aðra þjóðhátíðardaga, hvers vegna þeir eru þegar þeir eru og um hvað þeir snúast.
Umsjón: Elísabet Jökulsdóttir.
Lesarar: Þröstur Leó Gunnarsson og Vilborg Halldórsdóttir.
(frá árinu 2000)
Fjórði þáttur: Hann fann kvennaþefinn um alla kirkjuna.
Lesið úr bókum Halldórs Laxness.
Lesari Þröstur Leó Gunnarsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 25. september 2000.
Styrkt af Menningarsjóði útvarpsstöðva.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Guðni Kolbeinsson sagði „læks“ í stað hins hefðbundna „lækjar“ í eignarfalli orðsins lækur, í útvarpsþættinum Daglegu máli árið 1980. Sá þáttur hefur ekki varðveist en við heyrum annan þátt í umsjón Guðna þar sem lækur kemur óbeint við sögu; og rifjum upp hvað var skrifað um Guðna-málið svokallaða á síðum blaðanna.
Aldrei hefur gustað jafn kröftuglega um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og nú. En þó pallíetturnar og glimmerið glitri undan ljóskösturunum sprettur sjónarspilið úr rammpólitískum jarðvegi sem, þegar grannt er á litið, hefur alltaf sett sinn brag á keppnina.
Gæti keppnin sungið sitt síðasta 2026?
Gísli Marteinn Baldursson hagar seglum eftir vindvélunum og fylgir blæstri þeirra í gegnum átakasögu Eurovision.
Rússland hefur verið úthýst úr Eurovision. Úkraína treystir böndin við vestrið með tónlist. Ísrael fær að vera með og fimm lönd segja sig úr keppni. Mun Evrópa hrynja?

frá Veðurstofu Íslands
Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.
Lagalistinn:
Skapti Ólafsson, Hljómsveit Jan Morávek, Baldur Georgs Takács - Í sveitinni.
Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar - Afmæliskveðjan.
Haukur Morthens - Við freistingum gæt þín.
Ari Jónsson - Gróðabrall.
Richard, Cliff - Congratulations.
Ragnar Bjarnason - Hvert er farið blómið blátt?.
Grétar Geirsson - Laugardagspolki.
Elly Vilhjálms - Hvert er farið blómið blátt?.
Álftagerðisbræður - Við sólarylinn.
B.G. og Ingibjörg - Góða ferð.
Helgi E. Kristjánsson tónlistarm. - Laugardagspolki.
Daði og Gagnamagnið, Daði Freyr Pétursson - Think about things (Ísland).
Thomas, Fred, Mullov-Abbado, Misha, Zawadzki, Alice - Gentle lady.
Skapti Ólafsson, Hljómsveit Jan Morávek, Baldur Georgs Takács - Í sveitinni.
Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar - Afmæliskveðjan.
Haukur Morthens - Við freistingum gæt þín.
Richard, Cliff - Congratulations.
Ari Jónsson - Gróðabrall.
Grétar Geirsson - Laugardagspolki.
Ragnar Bjarnason, Elly Vilhjálms - Hvert er farið blómið blátt?.
Álftagerðisbræður - Við sólarylinn.
B.G. og Ingibjörg - Góða ferð.
Helgi E. Kristjánsson tónlistarm. - Laugardagspolki.
Jóhann Helgason Tónlistarmaður, Gammar - The way you look tonight.
SILFURTÓNAR - Töfrar.
KK band, KK band, KK band - Þjóðvegur 66.
Guthrie, Woody - This land is your land.
KK band - Þjóðvegur 66.
Tríó Guðmundar Ingólfssonar, Ragnar Bjarnason - Route 66.
Senghor, Sonar and his Troupe - Miva.
Banda Morisca - Por la Sierra de Ronda.
Energipsy - Chica bem.
Massi, Souad - Tant pis pour moi.
Nolave - Sombila = Notorious prisoner's name.
Kuyateh, Jaliba - Kuteh jongbulu.
Maganga, Luka - Musamuone.
BITOI - KE-TO-RO.
Ali Hassan Kuban - Henna.
IPCC - Tumelu.
Moré, Beny - Perdi la fé.
Vallé, Orlando 'Maraca', Bunnett, Jane, Vallé, Céline, Rojas, Juan Carlos 'El Peje', Egues, Richard, Rodriguez, Oscar, Duran, Hilario, Vizcaino, Roberto, Gonzalez, Adel - Oscar's descarga.
Bonga - Pio-pio.
BITOI - KE-TO-RO.
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Sigurlín Bjarney Gísladóttir kennari og rithöfundur. Við fengum hana til að segja okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigurlín talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Þúsund og einn hnífur og fleiri sögur frá Írak e. Hassan Blasim í þýðingu Sölva Björns Sigurðssonar
Þríleikur (Things I don't want to know, The cost of living og Real estate) e. Deborah Levy
The white road:Journey into an obsession e. Edmund de Waal
Mountains of the mind: A history of fascination e. Robert MacFarlane
Biblían, Þórarinn Eldjárn, Vigdís Grímsdóttir, Kristín Eiríksdóttir og Tomas Tranströmer
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Það er kjördagur og Heimskviður fjalla um samgöngumál, húsnæðismál og þjóðfélagsumræðuna, reyndar með sínu nefi.
Allra augu eru á Downingstræti 10 þessa dagana. Þetta hefur verið erfið vika hjá Keir Starmer forsætisráðherra Breta, og margir sem spá því að hann verði ekki langlífur í embætti. Ég ætla aðeins að skoða hvers vegna hann er svona óvinsæll og hvað taki við.
Kjördagur í dag og annar dagur síðar í sumar þar sem landsmenn þurfa að gera upp hug sinn og nýta kosningaréttinn. Það er raunhæft að óttast tilraunir utanaðkomandi aðila til að hafa áhrif á þjóðmálaumræðuna hér á landi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið. Þetta segja sérfræðingar sem fást við upplýsingaóreiðu og svokallaðar fjölþáttaógnir - sem eru sífellt stærri hluti af því sem öryggisstofnanir fást við. Ógnir af þessu tagi eru hins vegar daglegt brauð í ríkjum sem standa okkur tiltölulega nærri; til dæmis í Noregi - og Eistlandi - þangað sem Björn Malmquist ætlar að fara með okkur í Heimskviðum í dag.
Síðar á þessu ári verður hinn goðsagnarkenndi þjóðvegur 66 í Bandarikjunum hundrað ára og tímamótanna minnst með ýmsum hætti. Það má alveg halda því fram að hluti sögu Bandaríkjanna liggi í malbikinu á þessum 4000 km vegi sem liggur þvert yfir landið. Birta skoðaði sögu þessa líklega þekktasta þjóðvegar heims, sem lifir nú meira á fornri frægð en sem samgönguæðin sem honum var upphaflega ætlað að vera.
Helgi Seljan kynnir sér lífið í öryggisfangelsinu Litla-Hrauni.
Í fyrsta þætti Letigarðsins mjökum við okkur hægt og rólega inn fyrir tvöfalda öryggisgirðinguna umhverfis öryggisfangelsið á Litla Hrauni. Hittum móttökustjórann sem verið hefur í fangelsinu í 40 ár og forvitnumst um þrjá ættliði sem setið hafa inni samtímis. Hvers vegna var ákveðið að byggja fangelsi á Eyrarbakka fyrir næstum 90 árum? Af hverju voru einu fangarnir sem þar dvöldu fyrstu áratugina, ýmist smáglæpamenn eða geðveikir? Hvers vegna heyrist svo hátt í viftunni í einangrunarklefunum í gæsluvarðhaldsálmunni og afhverju eru öskubakkarnir úr gúmmíi? Hvað fær maður fyrir að sitja saklaus og að óþörfu í einangrun á annan mánuð? Hvert er vinsælasta lesefni gæsluvarðhaldsfanga?
Umsjón Helgi Seljan
Tæknimaður Hrafnkell Sigurðsson.

frá Veðurstofu Íslands
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Fantaisie pour flûte et piano en ut majeur, op.79 (fantasía fyrir flautu og píanó í C-dúr) eftir Gabriel Fauré. Michel Debost leikur á þverflautu og með honum á píanó leikur Jean-Philippe Collard. Útgefið á plötunni Musique de chambre: Vol. I (1979).
Sinfónía nr. 1, „Polyphonic“ eftir Arvo Pärt. Þættirnir eru: I. Kanon og II. Preludio e fuga. Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur, stjórnandi er Eva Ollikainen. Útgefið á plötunni Complete Symohonies (2026) (Útgáfudagur: 16.04.2026)
Chant de linos eftir André Jolivet. Emilía Rós Sigfúsdóttir leikur á þverflautu og Ástríður Alda Sigurðardóttir á píanó. Útgefið á plötunni Portrait (2013).
Serenaða fyrir strengjasveit (1978) eftir Valentin Silvestrov. Kammersveitin Musica Viva leikur undir stjórn Alexanders Rudin. Útgefið á plötunni Valentin Silvestrov 1996.
La lune blanche luit dans les bois úr ljóðaflokknum La Bonne Chanson op. 61 eftir Gabriel Fauré. Ljóðið er eftir Paul Verlaine. Anne-Sofie von Otter mezzósópran syngur. Með henni leika: Bengt Forsberg á píanó; Nils-Erik Sparf á fiðlu; Ulf Forsberg á fiðlu; Matti Hirvikangas á lágfiðlu og Mats Lidström á selló. Útgefið á plötunni The artist's album (1998). Útgefandi: Deutsche Grammophon.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Halldór Jónsson (1873-1953) var prestur að Reynifelli og tónskáld. Á efri árum veiktist hann á geði og þurfti að leggjast inn á geðspítalann Klepp um tíma. Frá því sagði hann svo í æviminningabók sem út kom skömmu fyrir andlát hans og nefndi Ljósmyndir 1. Mjög sjaldgæft var að fólk talaði um þær mundir opinskátt um glímu sín við geðsjúkdóma og því er hin hispurslausa frásögn Halldórs mjög óvenjuleg.

Útvarpsfréttir.
Hulda G. Geirsdóttir og Pétur Magnússon vöknuðu með hlustendum á sunnudagsmorgni að loknum sveitarstjórnarkosningum 2026 og rýndu í niðurstöður kosninganna um land allt.
Ragnar Jón Hrólfsson af fréttastofu RÚV fór yfir ýmsa tölfræði og niðurstöður og eftirtaldir viðmælendur voru á línunni eða litu við í hljóðveri:
Óðinn Svan Óðinsson
Vilhjálmur Árnason
Kristján Þór Kristjánsson
Valdimar Víðisson
Ásdís Kristinsdóttir
Hilmar Gunnarsson
Útvarpsfréttir.
Sjálfstæðisflokki og Miðflokki gekk best í sveitarstjórnarkosningum í gær. Kjörnum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins fjölgaði um 15 á landsvísu og Miðflokkurinn bætti við sig sautján fulltrúum. Kjörsókn var tæplega 67%.
Sjálfstæðismenn verða níu í borgarstjórn Reykjavíkur, Samfylkingin heldur sínum fimm en fékk minna fylgi hlutfallslega en fyrir fjórum árum.
Formaður Miðflokksins segir flokk sinn nýtt afl í sveitarstjórnum. Formaður Samfylkingarinnar er meðvituð um ákall um breytingar í borginni. Formaður Framsóknarflokksins telur einn borgarfulltrúa varnarsigur og kosninganiðurstöðurnar fóru fram úr vonum formanns Sjálfstæðisflokksins.
Ebólufaraldurinn í lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hefur breiðst út til nágrannaríkja og fjöldi þeirra sem smitast gæti aukist verulega, segir Alþjóða heilbrigðismálastofnunin. Á þriðja hundrað manns hefur smitast og um áttatíu eru látin.
Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!
Sportrásin á Rás 2, strax eftir hádegisfréttir.
Guðmundur Brynjólfsson og Hlín Bjarnadóttir mæta í heimsókn og segja okkur frá íslandsmótinu í Hópfimleikum sem fram fer um helgina.
Sögulegur leikur fór fram í Ice Lagoon höllinni á fimmtudaginn þegar Ungmennafélagið Sindri frá Höfn lagði Breiðablik oddaleik úrslitaeinvígis í fyrstu deild karla.
Með þessum sigri tryggði Sindri sér sæti í Bónus deildinni á næsta tímabili og fylgir þar með Hetti upp í efstu deild Þorgrímur Tjörvi, formaður körfuknattleiksdeildar
Karen Sævarsdóttir - formaður mótanefndar Golfsambandsins ræðir við okkur um golfsumarið.
Þór Bæring Ólafsson talar um áhuga íslendinga á neðrideildunum á Englandi
Stefán Pálsson svarar HM spurningum hlustenda, 2018.
Elvar Geir Magnússon, íþróttafréttamaður fræðir okkur um stóra Southamton njósnamálið á Englandi
Hallgrímur Indriðason, fréttamaður sagði frá nýjum leikvangi Brighton sem er hannaður fyrir konur. Pistillinn heyrðist fyrst í Heimskviðum á Rás 1
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-05-17
Nýdönsk - Ekkert mál.
The Stranglers - Let Me Down Easy.
MIKE OLDFIELD - To France.
Joe Frazier, Herra Hnetusmjör - Ég myndi líka hata mig.
Bríet - Takk fyrir allt.
Kneecap, Tempest, Kae - Irish Goodbye (Lyrics!).
Mars, Bruno - I Just Might.
Issi - Bararara.
Beck - Ride Lonesome.
Laufey - Madwoman.
Þormóður Eiríksson, GDRN - Manstu.
MT Jones - I Don't Understand.
Bubbi Morthens - Kossar án vara.
Madonna, Carpenter, Sabrina - Bring Your Love (Radio Edit).
Withers, Bill - Ain't no sunshine.
Mugison - Kúrekinn (ég trúi á lygina).
MGMT - Time To Pretend.
Salka Sól Eyfeld - Tímaglas.
ÖNNU JÓNU SON - Take these bones.
St. Etienne - You´re in a bad way
Myrká - Creature of habit.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.
Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.
Nokkur glæný íslensk lög í þætti kvöldsins en Litlasveit er hljómsveit ungra og upprennandi djassara sem eru í námi við MÍT og gáfu út sína fyrstu samnefndu plötu nú á dögunum. Fengum að heyra eitt lag af henni “Appelsín” og munum að sjálfsögðu fylgjast spennt með framtíð þeirra. Anya Shaddock er að gefa út plötu á næstunni en það var að koma út ný smáskífa, lagið “ Ég sver” sem fjallar um öfundsýki, um hvernig maður myndi hætta sínu eigin lífi og viljandi fórna sjálfum sér eða öðrum fyrir manneskjuna sem maður elskar segir Anya. Djassinn á sínum stað ásamt plötu þáttarins “ Sugar Girl” með Little Simz.
KK- Lífið er
The Bongo Hop - Sonora
FloFilz - Highroller
Litlasveit - Appelsín
Destin Conrad - Diamond Gold
Sai Galaxy - All day cool
Africa Express - -Morals
Gabriele Poso - Maraviglia
Creature of Habit - Myrká
Knowsum - The phase
Khruangbin feat Leon Bridges - Mariella
Dua Saleh - Callate
Widowspeak - No driver
The Womack Sisters - Chauffeur
Stevie Wonder - Boogie on reggae woman
Sparklmami - No te vayas
40 Winks - Catch the sky
Little Simz - Open arms
IZCO - Wonderluv
Babe Ruth - The Mexican
Nova Nova - Prisoners song ( Extended original mix )
Píla - Annað líf
Roni Size, Reprazent - Heroes
Mr. De´ - Sex on the beach
Anya Shaddock - Ég sver
Chairlift - Evident utensil
Little Simz - Telephone
Knackered - 3v3n th0
Álfgrímur ft. Kusk - Dreymi
Paul Simon - Late in the evening ( 1980 extended meow mix)
Chinese American Bear - Forever Lover (永远的爱人)
Hikaru Utada - Mine or yours ( Yaeji remix)
Little Sims feat JT - Game on
DJ Shadow - Building steam with a grain of salt
Spennandi tónar bergmála um göngugötuna í Mjóddinni. Indírokk, alternative, lo-fi, dreampop og margt annað áhugavert. Verið velkomin í Mjóddina, þar sem hjartað slær.
Umsjón: Björn Þór Björnsson
Fjör og ógleymanlegar minningar. Andlitsmálning fyrir börnin.
Lagalisti:
BKPM - Vafið í plasti
Kevin Morby - Die Young
White Fence - I Came Close, Orange for Luck
Carla dal Forno - Nighttime
Sunstack Jones - Make Your Own Way Out
Neal Francis - Hide
Good Flying Birds - Down on Me
Divers - The Great Tree
Nico Paulo - Time
Cindy - Procession
Bjarni Daníel - Dísel
Warahenege - For the Moment
Scott McMicken and the Ever Expanding - Take Me Where I Ain’t
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Í Plötu vikunnar fáum við í heimsókn Örn Eldjárn, sem ásamt systrum sínum, Ösp og Björk, myndar hljómsveitina Blood Harmony. Þau senda nú frá sér plötuna Simple Pleasures, sem varð til þegar systkinin fluttu öll norður í Svarfaðardal árið 2020. Við ræðum um „blóðböndin“ í raddsetningunum, áhrif frá kántrítónlist og sænskum vísum, og hvernig það er að vinna tónlist saman á æskuheimilinu í miðjum heimsfaraldri.