Guðsþjónusta dagsins er send út frá Bústaðakirkju í Reykjavík.
Séra Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Sigríði Kristínu Helgadóttur.
Sæluboð Fjallræðunnar verða tónuð eftir tónlagi séra Bjarna Þorsteinssonar.
Félagar úr Kammerkór Bústaðakirkju syngja undir stjórn Jónasar Þóris organista.
Bernadett Hegyi og Sæberg Sigurðsson syngja einsöng.
Barnakór Fossvogs syngur undir stjórn Auðar Guðjohnsen.
Guðspjall dagsins er bæn Jesú fyrir lærisveinunum, að Guð faðir varðveiti lærisveinanna frá hinu illa og helgi þá í sannleikanum.
TÓNLIST Í MESSUNNI:
Fyrir predikun
Forspil: Hve margt er það líf Spuni við sálm nr. 449-Hjálmar H. Ragnarsson
307 Þú ert Drottinn Per Harling/Jón Ragnarsson
Cantar – Barnakór Jay Althouse
Írsk bæn Írskt þjóðlag/Olga Guðrún Árnadóttir
Eftir predikun
Númer Heiti lags/sálms Höfundar
Fögnuður Jónas Þórir/Matthías Johannessen
763 Ó Guð ég veit hvað ég vil Torgny Erséus/Kristján Valur Ingólfsson
760 Nú heilsar vorsins Nathan Söderblom/Sigurbjörn Einarsson
Eftirspil: Nú er sumar Spuni – Steingrímur Thorsteinsson