Bein útsending úr hátíðarmessu í Hallgrímskirkju á hvítasunnudegi. Prestur er sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Kór Hallgrímskirkju syngur, stjórnandi er Steinar Logi Helgason. Eftir prédikun er flutt kórverkið„ Á hvítasunnudag“ eftir Finn Karlsson við ljóð Einars Sigurðssonar frá Eydölum. Verkið var samið vorið 2021 fyrir Kór Hallgrímskirkju, Steinar Loga Helgason og Björn Steinar Sólbergsson Messuþjónar lesa ritningarlestra og leiða almenna kirkjubæn.
Tónlistin í messunni:
Fyrir predikun
Forspil: Komm, Heiliger Geist, Herre Gott BuxWV 199 Dietrich Buxtehude
Sálmur 165 Skín á himni skír og fagur (1. vers) Philipp Nicolai / Valdimar Briem
Miskunnarbæn Kyrie eleison Missa de Angelis
Sálmur 474 Lofsyngið Drottni Georg F. Händel / Valdemar V. Snævarr
Kórsöngur Guð helgur andi, heyr oss nú úts. Róbert A. Ottóson / Luther – Helgi Hálfdánarson
Sálmur 170 Leiftra þú, sól Jón Ásgeirssson / Sigurbjörn Einarsson
Eftir predikun
Stólvers Á hvítasunnudag Finnur Karlsson / Einar Sigurðsson í Eydölum
496a Gegnum Jesú helgast hjarta John F. Wade / Hallgrímur Pétursson
Undir útdeilingu Adagio úr orgelsinfóníu nr. VI op. 42 Charles-Marie Widor
Sálmur 173 Kærleikseldur unaðsskæri William P. Roland / Þórir Jökull Þorsteinsson
Eftirspil: Toccata Jón Nordal