23:10
Lestin
Queer Situations, bylting frjálshyggjunnar, Apex og Michael

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Hinsegin bókmenntir, langborðsumræður, fræðadagskrá og fjölbreyttur hópur alþjóðlegra höfunda, er það sem gestir bókmenntahátíðarinnar Queer Situations geta átt von á í næstu viku. 14.-17. maí fer hátíðin fram í annað sinn, og þær Eva Rún Snorradóttir og Halla Þórlaug Óskarsdóttir, skipuleggjendur, eru gestir Lestarinnar í dag.

Kolbeinn Rastrick rýnir í tvær nýjar bíómyndir, Apex í leikstjórn Baltasars Kormáks, sem skartar Charlize Theron í aðalhlutverki, og Michael, nýja myndin um poppstjörnuna Michael Jackson.

Einar Már Jónsson, sagnfræðingur, flytur pistil um byltingu frjálshyggjunar og hvernig hugmyndir Antonio Gramsci höfðu þau áhrif að Ayn Rand, Milton Friedman og Friedrich Hayek, voru gerð að spámönnum þeirrar hugmyndafræði.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,