Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Kosningar fara fram í Bretlandi í dag, meðal annars er kosið til þings í Skotlandi og Wales og til sveitarstjórna víða á Englandi. Bogi Ágústsson ræddi um kosningarnar þegar hann settist við Heimsgluggann. Gestur hans var Sólveig Jónsdóttir rithöfundur og blaðamaður.
Við fræddumst svo um Landgræðsluskóla GRÓ, en á tæpum tuttugu árum hafa 240 manns komið hingað til lands frá þróunarlöndum sem standa frammi fyrir landeyðingu og afleiðingum hennar í heimalöndunum. Nína Björk Jónsdóttir og Guðrún Guðjónsdóttir sögðu frá.
Fyrr í vikunni var tilkynnt að Alzheimersamtökin fái fé frá stjórnvöldum til að opna ný dagþjálfunarrými fyrir fólk með heilabilun. Tilgangurinn er að mæta fólki með fyrstu einkenni heilabilunar þjónustu, og ekki er vanþörf á. Guðlaugur Eyjólfsson, framkvæmdastjóri samtakanna, kom í heimsókn.
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-05-07
Joni Mitchell - The Last Time I Saw Richard.
Uppáhellingarnir - Vor í Reykjavík.
Carpenters - Yesterday Once More.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Frumvarp dómsmálaráðherra um brottfarastöð hefur hlotið gagnrýni, meðal annars vegna heimildar til að vista þar börn. Umboðsmaður barna segir frumvarpið vera andstætt Barnasáttmálanum og brjóta gegn réttindum barna. Yfir tvö þúsund manns hafa skrifað nöfn sín á undirskriftarlista á Ísland.is til að mótmæla þessu frumvarpi. Í gær bárust fréttir af breytingartillögu á frumvarpinu og mátti skilja á fréttum að börn yrðu ekki vistuð á brottfararstöðinni, en Alma Mjöll Ólafsdóttir, sem kom í þáttinn í dag, segir að það líti samt út fyrir að ekki sé næg breyting, það sé aðeins verið að færa til úrræðið fyrir börn, en að það muni vera frelsissvipting engu að síður. Alma sagði okkur frá þessu í dag, en hún er ábyrgðarmaður undirskriftarlistans.
Á ráðstefnunni Að finna taktinn koma saman bæði alþjóðlegir fræðimenn og starfandi leikskólakennarar til að varpa ljósi á hæglæti í leikskólastarfi frá ólíkum sjónarhornum. Meðal fyrirlesara eru íslenskir leikskólakennarar sem segja frá eigin reynslu af þróunarverkefninu Stilla, þar sem hæglæti hefur verið innleitt í daglegt starf fjögurra leikskóla. Niðurstöðurnar sýna meðal annars að þegar börn fá meiri tíma og rými eykst sjálfstjórn þeirra, félagsfærni og sköpun og leikur þeirra verður dýpri og merkingarbærari. Anna Lilja Sævarsdóttir, leikskólastjóri á Iðavöllum Akureyri og Agnes Gústavsdóttir, leikskólastjóri Aðalþings í Kópavogi komu í þáttinn í dag.
Jónatan Garðarson, okkar gamli samstarfsfélagi, ætlar að koma til okkar næstu fimmtudaga og fræða okkur um íslenskt tónlistarlíf, hljómsveitir, lög, tónlistarfólk og fleira. Það eru ekki margir sem vita meira um íslenska tónlist en Jónatan og því mikil forréttindi að fá að ausa úr hans viskubrunni hér í Mannlega þættinum. Hann byrjaði í dag á því að segja okkur frá Önnu Vilhjálms, það eru ekki til mörg lög hljóðrituð með henni, en Jónatan mun fræddi okkur um hana og hennar feril í dag.
Tónlistin í dag:
Á berjamó / Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir (Gunnar Þórðarsson, texti Stefán Jónsson)
Jamaica Farewell / Harry Belafonte (Irving Burgie og Burgess)
Ég bíð við bláan sæ / Anna Vilhjálms og Vilhjálmur Vilhjálmsson (Phil Spector, texti Jón Sigurðsson)
Fráskilin að vestan / Anna Vilhjálms (Kolbrún Hjartardóttir og Linda Björk)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Flugmaðurinn Ágúst Håkansson starfaði hjá Icelandair í 43 ár, frá því 1983 og þar til í febrúar á þessu ári.
Hann hefur skrifað grein um fyrirætlanir Icelandair að fjárfesta í flugrekstrarleyfi á Mötlu. Hann mu birta greinina á næstunni í fréttabréfi Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA).
Ágúst segir í greininni og viðtali við Þetta helst að helsta ástæðan fyrir Möltuviðskiptum Icelandair sé líklega að flugfélagið ætli sér að stunda félagsleg undirboð til að lækkka starfsmannakostnað.
Hann segir að eitt sem veki mikla athygi sé að aðeins eitt annað evrópskt flugfélag sem bera má saman við Icelandair sé með starfsemi á Möltu.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í maímánuði er tilvalið að staldra við krúnudjásnið í garðinum, lyngrósir eða rhododendron. Rætt er við Ólaf Sturlu Njálsson eða Óla í Nátthaga um lyngrósir sem hann hefur ræktað frá ungingsárum. Þá er rætt um brauðryðjendastarf Óla þegar kemur að þeim tegundum sem komust á legg hér á landi eftir stóra fræsöfnunarleiðangurinn til Alaska 1985. Um er að ræða tegundir sem margar þykja vera sjálfsagður staðalbúnaður á gróðrarstöðvum í dag, svo sem ýmsa úrvalskóna af alaskavíði, jörfavíði, sitkavíði og fjöldi skrautrunnayrkja eins og hélurifs 'Rökkva' og sveighyrnir 'Roði' svo örfá dæmi séu tekin. Undir lok þáttar er nokkuð ítarlegt yfirlit gefið yfir alla þá klóna sem Óli hlúði að og valdi til framleiðslu.
Viðmælendur eru Ólafur Sturla Njálsson, Steinar Björgvinsson og Guðríður Helgadóttir.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þessum þætti er það norrænt vor sem ræður ríkjum. Flutt verða tónverk sem tengjast vorinu eftir tónskáld frá Norðurlöndum. Verkin sem flutt verða eru „Vorþytur“ eftir Christian Sinding, „Vor“ úr Sinfóníu nr.2 eftir Natanael Berg, „Vorið“ eftir Edvard Grieg, „Vor í hjarta mínu“ eftir Leif Þórarinsson og „Vordraumar“ úr hljómsveitarverkinu „Myndir frá Finnlandi“ eftir Selim Palmgren. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 22. mars 2014.
Umsjón: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Steinunn Ólina Þorsteinsdóttir leikur tónlist að eigin vali.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Lady Lazarus, tónleikar sópransönkonunnar Álfheiðar Erlu Guðmundsdóttur og píanistans Kunal Lahiry, eru lokatónleikar á svokallaðri ECHO Rising Stars tónlistarhátíð, sem fer fram í Hörpu um helgina. ECHO Rising Stars er verkefni á vegum samtaka evrópskra tónleikahúsa sem gefur ungu og framúrskarandi tónlistarfólki færi á að koma fram á bestu tónleikasviðum Evrópu, þar á meðal í Hörpu. Við heyrum nánar af verkefninu og tónleikum þeirra Álfheiðar Erlu og Kunan í þætti dagsins. Við tökum einnig á móti Ásu Bríeti Brattaberg, fata og textílhönnuði, en hún býr í París þar sem hún starfar við prjónadeild Dior tískuhússins. Ása Bríet sýnir og segir frá masterslínu sinni frá París í tengslum við Hönnunarmars í Norræna húsinu á morgun, en sú lína er innblásin af tímabili í Íslandssögunni sem við köllum Ástandið. En við hefjum þáttinn á því að hringja til Feneyja, þar sem allt iðar af lífi, myndlist og spennu því stærsti myndlistarviðburður heims opnar dyr sínar á laugardag, 9.maí. Ásta Fanney Sigurðardóttir er fulltrúi okkar á æringnum, en við hringjum í fulltrúa menningarþátta Rásar 1 á svæðinu, Kristján Guðjónsson, til að heyra af stemningunni í aðdraganda opnunar.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Hinsegin bókmenntir, langborðsumræður, fræðadagskrá og fjölbreyttur hópur alþjóðlegra höfunda, er það sem gestir bókmenntahátíðarinnar Queer Situations geta átt von á í næstu viku. 14.-17. maí fer hátíðin fram í annað sinn, og þær Eva Rún Snorradóttir og Halla Þórlaug Óskarsdóttir, skipuleggjendur, eru gestir Lestarinnar í dag.
Kolbeinn Rastrick rýnir í tvær nýjar bíómyndir, Apex í leikstjórn Baltasars Kormáks, sem skartar Charlize Theron í aðalhlutverki, og Michael, nýja myndin um poppstjörnuna Michael Jackson.
Einar Már Jónsson, sagnfræðingur, flytur pistil um byltingu frjálshyggjunar og hvernig hugmyndir Antonio Gramsci höfðu þau áhrif að Ayn Rand, Milton Friedman og Friedrich Hayek, voru gerð að spámönnum þeirrar hugmyndafræði.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Eldri atvinnuleytendur telja sig verða fyrir fordómum vegna aldurs en vinnumiðlanir og rannsakendur segjast ekki kannast við aldursfordóma. Atvinnumarkaðurinn sé flókinn og atvinnuleit krefjist vinnu.
Hanta-veiran dreifist allt öðru vísi en Covid og inflúensa, og smitast ekki nema við náið samneyti um lengri tíma. Þetta eru skilaboð Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar sem vill slá á ótta við heimsfaraldur.
Það gengur hægt að ná til baka skemmtiferðaskipum sem strikuðu Ísland út af siglingakortinu í kjölfar innviðaskatts sem lagður var á skipafélögin fyrir tveimur árum. Útlitið er þó skárra eftir að gjaldið var lækkað.

frá Veðurstofu Íslands
Hljóðritun frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands 24. apríl þar sem fram komu sigurvegarar úr einleikarakeppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands.
Á efnisskrá:
*Flautukonsert eftir Jacques Ibert.
*Fiðlukonsert í a-moll op. 82 eftir Alexander Glazunov.
*Aríur eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Giacomo Puccini, Franz Lehár og Leonard Bernstein.
*Píanókonsert í F-dúr eftir George Gershwin.
Einleikarar:
Halldóra Ósk Helgadóttir söngkona, Lilja Hákonardóttir flautuleikari, Matthildur Traustadóttir fiðluleikari og Mariann Rähni píanóleikari.
Stjórnandi: Baldur Brönnimann.
Umsjón: Pétur Eggertsson.
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í maímánuði er tilvalið að staldra við krúnudjásnið í garðinum, lyngrósir eða rhododendron. Rætt er við Ólaf Sturlu Njálsson eða Óla í Nátthaga um lyngrósir sem hann hefur ræktað frá ungingsárum. Þá er rætt um brauðryðjendastarf Óla þegar kemur að þeim tegundum sem komust á legg hér á landi eftir stóra fræsöfnunarleiðangurinn til Alaska 1985. Um er að ræða tegundir sem margar þykja vera sjálfsagður staðalbúnaður á gróðrarstöðvum í dag, svo sem ýmsa úrvalskóna af alaskavíði, jörfavíði, sitkavíði og fjöldi skrautrunnayrkja eins og hélurifs 'Rökkva' og sveighyrnir 'Roði' svo örfá dæmi séu tekin. Undir lok þáttar er nokkuð ítarlegt yfirlit gefið yfir alla þá klóna sem Óli hlúði að og valdi til framleiðslu.
Viðmælendur eru Ólafur Sturla Njálsson, Steinar Björgvinsson og Guðríður Helgadóttir.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Frumvarp dómsmálaráðherra um brottfarastöð hefur hlotið gagnrýni, meðal annars vegna heimildar til að vista þar börn. Umboðsmaður barna segir frumvarpið vera andstætt Barnasáttmálanum og brjóta gegn réttindum barna. Yfir tvö þúsund manns hafa skrifað nöfn sín á undirskriftarlista á Ísland.is til að mótmæla þessu frumvarpi. Í gær bárust fréttir af breytingartillögu á frumvarpinu og mátti skilja á fréttum að börn yrðu ekki vistuð á brottfararstöðinni, en Alma Mjöll Ólafsdóttir, sem kom í þáttinn í dag, segir að það líti samt út fyrir að ekki sé næg breyting, það sé aðeins verið að færa til úrræðið fyrir börn, en að það muni vera frelsissvipting engu að síður. Alma sagði okkur frá þessu í dag, en hún er ábyrgðarmaður undirskriftarlistans.
Á ráðstefnunni Að finna taktinn koma saman bæði alþjóðlegir fræðimenn og starfandi leikskólakennarar til að varpa ljósi á hæglæti í leikskólastarfi frá ólíkum sjónarhornum. Meðal fyrirlesara eru íslenskir leikskólakennarar sem segja frá eigin reynslu af þróunarverkefninu Stilla, þar sem hæglæti hefur verið innleitt í daglegt starf fjögurra leikskóla. Niðurstöðurnar sýna meðal annars að þegar börn fá meiri tíma og rými eykst sjálfstjórn þeirra, félagsfærni og sköpun og leikur þeirra verður dýpri og merkingarbærari. Anna Lilja Sævarsdóttir, leikskólastjóri á Iðavöllum Akureyri og Agnes Gústavsdóttir, leikskólastjóri Aðalþings í Kópavogi komu í þáttinn í dag.
Jónatan Garðarson, okkar gamli samstarfsfélagi, ætlar að koma til okkar næstu fimmtudaga og fræða okkur um íslenskt tónlistarlíf, hljómsveitir, lög, tónlistarfólk og fleira. Það eru ekki margir sem vita meira um íslenska tónlist en Jónatan og því mikil forréttindi að fá að ausa úr hans viskubrunni hér í Mannlega þættinum. Hann byrjaði í dag á því að segja okkur frá Önnu Vilhjálms, það eru ekki til mörg lög hljóðrituð með henni, en Jónatan mun fræddi okkur um hana og hennar feril í dag.
Tónlistin í dag:
Á berjamó / Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir (Gunnar Þórðarsson, texti Stefán Jónsson)
Jamaica Farewell / Harry Belafonte (Irving Burgie og Burgess)
Ég bíð við bláan sæ / Anna Vilhjálms og Vilhjálmur Vilhjálmsson (Phil Spector, texti Jón Sigurðsson)
Fráskilin að vestan / Anna Vilhjálms (Kolbrún Hjartardóttir og Linda Björk)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Hinsegin bókmenntir, langborðsumræður, fræðadagskrá og fjölbreyttur hópur alþjóðlegra höfunda, er það sem gestir bókmenntahátíðarinnar Queer Situations geta átt von á í næstu viku. 14.-17. maí fer hátíðin fram í annað sinn, og þær Eva Rún Snorradóttir og Halla Þórlaug Óskarsdóttir, skipuleggjendur, eru gestir Lestarinnar í dag.
Kolbeinn Rastrick rýnir í tvær nýjar bíómyndir, Apex í leikstjórn Baltasars Kormáks, sem skartar Charlize Theron í aðalhlutverki, og Michael, nýja myndin um poppstjörnuna Michael Jackson.
Einar Már Jónsson, sagnfræðingur, flytur pistil um byltingu frjálshyggjunar og hvernig hugmyndir Antonio Gramsci höfðu þau áhrif að Ayn Rand, Milton Friedman og Friedrich Hayek, voru gerð að spámönnum þeirrar hugmyndafræði.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Sarpur Minninganna: þegar þau vorum við er áhugaverð innsetning og upplifunarkvöldverður á Hönnunarmars. Verkið er byggt afa Thijs Fisser sem syrgir eiginkonu sína og hvernig hann finnur sig knúinn til að syrgja í veraldlegum hlutum og athöfnum, til að finna fyrir nærveru hennar. Stóllinn þeirra, kápan hennar, kommóðan sem þau völdu saman, ljósmyndir og heimavídjó. Þetta eru ekki leikmunir heldur hlutir knúnir merkingu. Vöruhönnuðurinn Valgerður Birna Jónsdóttir kom til okkar og sagði okkur frá sýningunni.
Nú styttist í sveitarstjórnarkosningar en frambjóðendur hafa herjað á væntanlega kjósendur úr öllum áttum undanfarnar vikur. Flokkarnir eru misduglegir við að nýta sér samfélagsmiðla til að koma skilaboðum sínum á framfæri en hvernig gengur þeim að nýta þessa tækni, sem getur hæglega ráðið úrslitum? Ingunn Lára Kristjánsdóttir er samfélagsmiðlasérfræðingur fréttstofu RÚV og hún rýndi með okkur í málið.
Fermingarbörn landsins sitja mörg á háum fjárhæðum og velta skiljanlega fyrir sér hvað þau eigi að gera við allan þennan pening. Er best að leggja hann inn á bók? Fjárfesta? Kaupa rafmyntir fyrir allt saman. Fjármálaráðgjafinn Björn Berg Gunnarsson kom til okkar og fór yfir möguleikana sem eru í boði.
Einar Örn Jónsson mætti eldhress með sjóðandi heitan mola úr heimi íþróttanna.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Skrúfur hafa jafnvel losnað í kolli bassaleikarans Alex James, Mick Jagger segir sögu, Paula Abdul syngur í sturtu, leðjan og vandræðapésinn Wilson Pickett.
Lagalisti þáttarins:
FÁLKAR – Flugufrelsarinn
JUSTIN TIMBERLAKE – Rock your body
PAULA ABDUL – Straight up
K7 – Come baby come
MARVIN GAYE – Got To Give It Up (Part 1)
JÚLÍ HEIÐAR HALLDÓRSSON, RAGGA HOLM, RAGNHILDUR JÓNASDÓTTIR – Líður vel
LILY ALLEN – Not Fair
EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON – Ég Lifi Í Draumi
BUBBI MORTHENS – Við föllum
STEREOPHONICS – Maybe Tomorrow
MIIKE SNOW – Genghis Khan
CORNERSHOP – Brimful of Asha (Norman Cook Remix)
LIFUN – Ein stök ást
KRUMMI – Smile till it ends
SNOW PATROL – Chasing Cars
ASH – Goldfinger
BOTNLEÐJA – Slóði
WILCO – I Might
KACEY MUSGRAVES – Dry Spell
EAGLES – Take it easy
ISSI – Bararara
BECK – Colors
MEN WITHOUT HATS – The Safety Dance
MT JONES – I Don't Understand
LENNY KRAVITZ – Belive
GDRN – Vorið
THE ROLLING STONES – Miss You
BEYONCÉ – Irraplacable
CRYSTAL WATERS – Gypsy Woman (La da dee la da da)
BEASTIE BOYS – Intergalactic
THE EMOTIONS – Best Of My Love
LEVEL 42 – Something About You (80)
TWENTY ONE PILOTS – Drag Path
VALDIMAR GUÐMUNDSSON & MEMFISMAFÍAN – Okkar eigin Osló
WILSON PICKETT – Mustang Sally
BLUR – For Tomorrow
THE BEACH BOYS – Wouldn't It Be Nice
10CC – Good morning judge
ÁSGEIR TRAUSTI EINARSSON – Ferris Wheel
BOBBY VINTON – Blue Velvet
LIGHTS OF THE HIGHWAY - Heart Of Moon

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Lovísa Rut var Popplandsvörður þennan fimmtudaginn. Árni Matthíasson gerði upp plötu vikunnar, Too Much Not Enough með Daða Frey, nýtt frá Honey Dijon, GDRN, Royel Otis, Issa og fleirum.
Flott - Tuttugu og eitthvað.
DAVID BOWIE - China Girl.
FLORENCE AND THE MACHINE - You've Got The Love.
Þormóður Eiríksson, GDRN - Manstu.
Honey Dijon, Lusk, Jacob - Satisfied (feat. Jacob Lusk).
Beam, Beyoncé - ENERGY (feat. Beam).
Madonna - I Feel So Free.
Minogue, Kylie - Spinning around.
BRITNEY SPEARS - Toxic.
Daði Freyr Pétursson - Wildfire.
Daði Freyr Pétursson - Why?.
Sycamore tree - Better call off the search for my soul.
Moses Hightower - Ráðahagur.
DUA LIPA - Dance The Night.
Helgi Björnsson - Lífið sem eitt sinn var.
LADY GAGA & BRADLEY COOPER - Shallow.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Gullauga.
Superserious - Island full of deadbeats (..OR SOMETHING).
Snorri Helgason, Bríet - Mexico.
KK - Lífið er.
Bubbi Morthens - Við föllum.
LEAVES - The Spell.
ELTON JOHN - Goodbye Yellow Brick Road.
Death Cab for Cutie - Riptides.
Fontaines D.C. - Favourite.
THE ALL AMERICAN REJECTS - Gives you hell.
Daði Freyr Pétursson - Me and You.
RetRoBot - Electric wizard.
Daði Freyr Pétursson - I'm Out and I Wanna Go Home.
DAÐI & GAGNAMAGNIÐ - Think About Things.
Daði Freyr Pétursson - P.E.R.F.E.C.T..
Daði Freyr Pétursson - Feel It.
SUGAR RAY - Every Morning.
Addison Rae - Headphones On.
Musgraves, Kacey - Dry Spell.
ROLLING STONES - Sympathy for the Devil.
Una Torfadóttir, Ágúst Þór Brynjarsson - Inn í síðustu nóttina.
QUEEN - I want to break free.
Carpenter, Sabrina - Manchild.
Royel Otis - Sweet Hallelujah.
GUSGUS & BIRNIR - Eða?
INSPECTOR SPACETIME - Party At my House.
HERCULES & LOVE AFFAIR - Blind.
MT JONES - I Don’t Understand.
GREININGARDEILDIN & BOGOMIL FONT & EMILÍANA TORRINI - Þú stendur alltaf með mér.
ST. PAUL & THE BROKEN BONES - Sushi and Coca-Cola.
ISSI - Bararara.
ROBYN - Talk To Me.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Hlaupadrottningin Karlotta Ósk Óskarsdóttir er nú stödd í Sofíu í Búlgaríu til að taka þátt í 10 daga hlaupi en enginn íslendingur hefur tekið þátt í svo löngu hlaupi áður en Karlotta er nú þegar íslandsmethafi í langhlaupi sem er 535 km. Hún hefur þegar slegið eigið íslandsmet í þriggja daga hlaupi þegar hún hljóp 302 km. Þá stefnir Karlotta á að hlaupa alls 800 km á þessum 10 dögum. Við heyrðum í Karlottu.
Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður kom til okkar og færði okkur nýjustu tíðindi af Hantaveirunni þ.e. hvað er nákvæmlega að gera í þeim málumá heimsvísu
Í gær kynnti símafyrirtækið Nova dótturfélag Nova klúbbsins, Kosmos sem er fyrsta farsímafélagið á Íslandi sem byggir þjónustu sína eingöngu á 5G tækni og rafrænum sim-kortum og nýtir sér gervigreind til að bjóða einfalda þjónustu. En hvað er hér um að ræða? Sverrir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Kosmos, kom til okkar.
Ný lög um Menntasjóð námsmanna áttu að bæta stöðu námsmanna og gera kerfið sanngjarnara — en nú virðist sem breytingarnar hafi ekki skilað þeim árangri sem vonast var eftir. Meðal annars hefur verið bent á að vextir námslána hafi hækkað verulega eftir að Menntasjóðurinn tók við af LÍN. Við ræddum þetta við Lísu Margréti Gunnarsdóttur, forseta Landssamtaka íslenskra stúdenta.
Evrópsku minjaverndarverðlaunin, Europa Nostra Awards, eru virtustu verðlaun Evrópu á sviði menningararfs - og í ár fer ein viðurkenningin til Íslands. Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur verðlaun fyrir að varðveita torfhúsaarfinn og miðla þessari gömlu handverkshefð áfram. Og það má eiginlega líkja þessu við Eurovision minjaverndarinnar. Berglind Þorsteinsdóttir er safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga og við heyrðum í henni.
Það hefur verið kalt í veðri að undanförnu og vorið virðist ætla að láta bíða eftir sér. Við veltum því fyrir okkur hvort trjágróðri verði meint af í slíkum kulda og hvað þá þegar snjóar - Vilmundur Hanssen garðyrkjufræðingur leit við hjá okkur.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Eldri atvinnuleytendur telja sig verða fyrir fordómum vegna aldurs en vinnumiðlanir og rannsakendur segjast ekki kannast við aldursfordóma. Atvinnumarkaðurinn sé flókinn og atvinnuleit krefjist vinnu.
Hanta-veiran dreifist allt öðru vísi en Covid og inflúensa, og smitast ekki nema við náið samneyti um lengri tíma. Þetta eru skilaboð Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar sem vill slá á ótta við heimsfaraldur.
Það gengur hægt að ná til baka skemmtiferðaskipum sem strikuðu Ísland út af siglingakortinu í kjölfar innviðaskatts sem lagður var á skipafélögin fyrir tveimur árum. Útlitið er þó skárra eftir að gjaldið var lækkað.
Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Lagalistinn
Mugison - Kúrekinn (ég trúi á lygina)
Aldís Fjóla - Rauðarok
Auðunn Lúthersson - Californian! Danger! Woman!
Róshildur ásamt Iðunni Einars - Samferða
Wally The Kid - Anthem of a over thinker
Jóhannes Stefán - Sunday Morning Fairytale
Ragnarök Trio - A Slippery Slope

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Danni fór í gítargír þetta fimmtudagskvöldið tónlistarvalið litaðist af því.
Getraunin var á sínum stað sem og tímavélin. Huggulegt var það.
Lagalistinn:
Júníus Meyvant - Let it pass
KK - Kærleikur og tími
Jónfrí - Djúpfalsað efni
Brain Police - Jacuzzi Suzy
The Whitest Boy Alive - Burning
Daniil - Ef þeir vilja beef (feat. Joey Christ)
Kingkiller - Purple and Red
Mukka - So close
Weezer & Bethany Cosentino - Go Away
Arcade Fire - Sprawl II (Mountains Beyond Mountains)
Vök - In the Dark
Andervel - Þá komst þú
Massive Attack & Tom Waits - Boots on the Ground
Kælan Mikla - Nornalagið
Eagles of Death Metal - Miss Alissa
My Chemical Romance - Helena
Spouses - Beth
Big Thief - All Night All Day
Kvikindi - Okei
Ivar Klausen - Dreamer
Lúpína - Lifeline
Tenacious D - Tribute
Queens of the Stone Age - No one knows
Pixies - Debaser
Ensími - Atari
Tilbury - Tenderloin
KUSK & Óviti - Hjá mér
The Black Keys - Gold on the ceiling
Simon & Garfunkel - Baby driver
Lynyrd Skynyrd - Sweet home Alabama
Mugison - Kúrekinn (ég trúi á lygina)
AC/DC - Big gun
The Zombies - The way I feel inside