07:03
Morgunútvarpið
Flokkarnir á TikTok og hvað eiga fermingarbörn að gera við peninginn sinn?

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Sarpur Minninganna: þegar þau vorum við er áhugaverð innsetning og upplifunarkvöldverður á Hönnunarmars. Verkið er byggt afa Thijs Fisser sem syrgir eiginkonu sína og hvernig hann finnur sig knúinn til að syrgja í veraldlegum hlutum og athöfnum, til að finna fyrir nærveru hennar. Stóllinn þeirra, kápan hennar, kommóðan sem þau völdu saman, ljósmyndir og heimavídjó. Þetta eru ekki leikmunir heldur hlutir knúnir merkingu. Vöruhönnuðurinn Valgerður Birna Jónsdóttir kom til okkar og sagði okkur frá sýningunni.

Nú styttist í sveitarstjórnarkosningar en frambjóðendur hafa herjað á væntanlega kjósendur úr öllum áttum undanfarnar vikur. Flokkarnir eru misduglegir við að nýta sér samfélagsmiðla til að koma skilaboðum sínum á framfæri en hvernig gengur þeim að nýta þessa tækni, sem getur hæglega ráðið úrslitum? Ingunn Lára Kristjánsdóttir er samfélagsmiðlasérfræðingur fréttstofu RÚV og hún rýndi með okkur í málið.

Fermingarbörn landsins sitja mörg á háum fjárhæðum og velta skiljanlega fyrir sér hvað þau eigi að gera við allan þennan pening. Er best að leggja hann inn á bók? Fjárfesta? Kaupa rafmyntir fyrir allt saman. Fjármálaráðgjafinn Björn Berg Gunnarsson kom til okkar og fór yfir möguleikana sem eru í boði.

Einar Örn Jónsson mætti eldhress með sjóðandi heitan mola úr heimi íþróttanna.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,