Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Við töluðum um hamingjuna í dag. Sem kunnugt er eru Finnar og Íslendingar hamingjusamastir allra þjóða og því lá beinast við að tala um hamingju við Satu Ramö rithöfund sem er bæði finnsk og íslensk.
Borgþór Arngrímsson kom til okkar og fór yfir það sem er efst á baugi í Danmörku og Vera Illugadóttir sagði okkur frá merkilegri konu, Birute Galdikas, sem lést á dögunum; hún helgaði líf sitt rannsóknum á frændum okkar órangútunum.
Tónlist:
Ellen Kristjánsdóttir, Mannakorn - Einhvers staðar einhvern tímann aftur.
Erik Paaske - Katinka katinka.
Jean Sibelius - Etýða no.2 op. 76
Björgvin Halldórsson - Himinn og jörð.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Páskahelgin er á næsta leyti og margir sem verða á faraldsfæti. Sumir fara í sumarbústað, aðrir til útlanda og svo eru margir sem fara vestur Ísafjörð, þar sem fram fer skíðavika og auðvitað tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður. Við töluðum við skíðagarp, frá Ísafirði sem margoft hefur troðið upp á þessari ágætu hátíð fyrir vestan - þó hann hafi sig hægan núna um páskana. Helgi Björnsson tónlistarmaður kom í þáttinn í dag.
Blúshátíð í Reykjavík er í gangi yfir páskana eins og undanfarin ár og áratugi. Hátíðin verður í sínum stað á Hilton Reykjavík Nordica og á dagskránni eru bæði erlendar og innlendar blússtjörnur og að lokinni formlegri dagskrá verður Klúbbur Blúshátíðar þar sem tónleikagestir geta notið lifandi tónlistar í afslöppuðu umhverfi. Guðmundur Pétursson kom til okkar í dag.
Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í lok þáttar í sitt reglubundna vísindaspjall. Hún fjallaði um nýjar rannsóknir á rafrettum og níkótíninntöku. Og okkur skildist að þetta hafi ekki verið alslæmar fréttir sem hún færði okkur í dag.
Tónlist í þættinum í dag:
Blús í G / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
Allt ljómar / Helgi Björnsson
Ég trúi á þig / Múgison og Blúskompaníið
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Bandaríkjaforseti íhugar alvarlega að draga Bandaríkin úr Atlantshafsbandalaginu. Hann hefur ítrekað lýst yfir óánægju með að aðrar bandalagsþjóðir taki ekki þátt þátt í stríðinu gegn Íran.
Fjármálaráðherra segir vel hafa gengið að innleiða kílómetragjald. Formlegri innleiðingu lýkur í dag. Um 35 þúsund hafa skrifað undir kröfu um afnám gjaldsins.
Brýnt er að hefja heyrnarskimanir í grunnskólum sem allra fyrst, segir formaður landssamtaka heyrnarskertra. Stjórnvöld vanmeti fjölda barna með ógreinda heyrnarskerðingu.
Fyrsta mannaða tunglferðin í nær sextíu ár verður farin í kvöld. Eftir síendurteknar frestanir, segja yfirmenn NASA að allt sé til reiðu.
Átján ófærðardagar voru á Fjarðarheiði í mars. Seyðfirðingar segja ástandið hættulegt og lýjandi.
Við ræðum við veðurfræðing um útlitið næstu daga á vegum landsins.
Ítalía verður ekki með í lokakeppni heimsmeistaramóts karla í fótbolta í sumar. Í gær réðst hvaða 48 landslið keppa. Ítalir eru fjórfaldir heimsmeistarar en hafa ekki komist á HM frá 2014.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Samtök aðgerðasinna sem berjast gegn herforingjastjórninni í landinu Myanmar í Asíu vilja að íslensk stjórnvöld afturkalli nýlega skipun ræðismanns fyrir Ísland í landinu.
Ræðismaðurinn heitir Ko Ko Latt og telja samtökin að hann vinni með herforingjastjórninni og hjálpi til við að fjármagna. Samtökin kalla sig Justice for Myanmar eða Réttlæti fyrir Myanmar og sendu þau bréf með þessari kröfu til utanríkisráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, þann 27. mars.
Í svari frá aðstoðarmanni utanríkisráðherra, Ingileifar Friðriksdóttur, kemur fram að bréfið hafi borist í síðustu viku og að málið sé í skoðun í utanríkisráðuneytinu.
Fjallað er um þessa kröfu gegn íslenskum stjórnvöldum í sögulegu ljósi valdaránsins í Myanmar árið 2021 og borgarastríðsins sem geisað hefur þar síðastliðin ár.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.
Í þessum þætti verður farið í Þjóðminjasafn Íslands við Suðurgötu í Reykjavík, þar sem við ræðum við fjóra sérfræðinga safnsins, kynnumst starfseminni í gegnum þeirra verkefni og heyrum um helstu áskoranir sem fylgja varðveislu og miðlun á þjóðminjum landsins.
Viðmælendur: Atli Freyr Kristófersson, Ágústa Kristófersdóttir, Helga Vollertsen og Karólína Stefánsdóttir.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Harald Ægi Guðmundsson bassaleikara og tónsmið um hvernig plöturnar hans verða til og hvað drífur hann í tónlistinni.
Tónlistin í þættinum er öll eftir Harald Ægi:
Camino a la Cumbea
Along the river
Svefndans
Dance with me
When it Rains
Líkt og stöndum hér
Fimm þættir um þjóðarleiðtoga sem aðhyllast þjóðernispopúlisma.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.
Fimm þættir um þjóðarleiðtoga sem aðhyllast þjóðernispopúlisma.
Í öðrum þætti er fjallað um Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Viðmælendur eru stjórnmálaprófessoranri Eiríkur Bergmann og Silja Bára Ómarsdóttir.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Þáttur dagsins er tileinkaður aprílgabbinu. Rifjuð eru upp nokkur góð aprílgöbb, auk þess sem uppruni aprílgabbsins og skyldra hefða er kannaður.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Hann er heimspekingur í Kísildal, en hann er ekki heimspekingur Kísildalsins. Þvert á móti þá sker hann sig úr og gerir í því að aðgreina sig frá öðrum tæknifyrirtækjum Kísildalsins.
Við fjöllum um Alex Karp, framkvæmdastjóra Palantir. Áður en hann varð framkvæmdastjóri og síðar milljarðamæringur, þá var hann doktorsnemi í heimspeki við Goethe-háskóla í Frankfurt.
Palantir er eitt umdeildasta fyrirtæki Bandaríkjanna í dag, enda tækni þess notuð af útlendingaeftirlitinu (ICE) til að finna innflytjendur sem stendur til að reka úr landi og til að finna heppilegustu skotmörkin í Íran. Karp sem talar um sig sem vinstrimann og hefur stutt Demókrataflokkinn í áratugi, hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir þáttöku fyrirtækisins í herskárri stefnu Donalds Trump.
Það efni sem nýttist við gerð þáttarins var meðal annars eftirfarandi
The Technological Republic: Hard Power, Soft Belief, and the Future of the West (2025) eftir Alexander C. Karp og Nicholas W. Zamiska
The Philosopher in the Valley: Alex Karp, Palantir, and the Rise of the Surveillance State eftir Michael Steinberger (2025)
Viðtöl
A16z - https://www.youtube.com/watch?v=Wj6ttdIeBnE&t=62s
All In hlaðvarpið - https://www.youtube.com/watch?v=Y-IH7EVrBbQ
Free Press https://www.youtube.com/watch?v=QdqHf71Tep0
New York Times https://www.youtube.com/watch?v=8i-ys9faa74
Greinar
Minningargrein Karp um Habermas https://www.politico.com/news/magazine/2026/03/20/karp-habermas-remembrance-00838398
Rýnt í doktorsritgerð Karp
https://www.boundary2.org/2020/07/moira-weigel-palantir-goes-to-the-frankfurt-school/
Stúlknaskólinn í Íran og Maven
https://www.theguardian.com/news/2026/mar/26/ai-got-the-blame-for-the-iran-school-bombing-the-truth-is-far-more-worrying
Fréttir
Fréttir
Utanríkisráðherra segir Atlantshafsbandalagið farsælt fyrir öll aðildarríkin - þar á meðal Bandaríkin. Bandaríkjaforseti segist íhuga alvarlega að draga Bandaríkin úr NATÓ.
Donald Trump segist hafa rætt við Írani um vopnahlé, en þar á bæ kannast enginn við slíkar viðræður.
Það styttist í stórar ákvarðanir um uppbyggingu iðnaðarsvæðis í Finnafirði við Langanes. Stórskipahöfn er enn á teikniborðinu.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Icelandair upplýsti í morgun að félagið ætti í viðræðum um kaup á 49 prósenta hlut í Fly Play Europe þar sem helstu verðmætin eru flugrekstrarleyfi á Möltu. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir kaupin geta falið í sér tækifæri til aukins sveigjanleika í starfseminni og til að einfalda flota Icelandair hér á landi.
Um helgina lágu fyrir úrslit í kosningum um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps og var sameiningin samþykkt í báðum sveitarfélögum. Íbúakosning um sameininguna stóð frá 14. til 28. mars. Þetta eru fámenn sveitarfélög, tvö af fimm fámennustu sveitarfélögum landsins, en íbúar sameinaðs sveitarfélags verða 177 miðað við íbúafjölda 1. janúar.
Í dag hófst austur á Indlandi viðamesta - og metnaðarfyllsta - manntal sem gert hefur verið í mannkynssögunni. Þar eiga yfir þrjár milljónir karla og kvenna, að telja um 1,4 milljarða landa sinna og afla um leið alls kyns upplýsinga um aðstæður þeirra, trú, efnahag, stétt og fleira. Áætlað er að þetta risaverkefni taki eitt ár og ljúki 31. mars á næsta ári.

frá Veðurstofu Íslands

Hljóðritun frá tónleikum Kammerkórs Sumartónleikanna á tónlistarhátíðinni Sumartónleikum í Skálholti 2025.
Á efnisskrá:
*Jóhannesarpassía eftir Heinrich Schütz - frumflutningur á Íslandi.
Í hlutverki guðspjallamannsins er Benedikt Kristjánsson, tenór.
*Missa Papae Marcelli, messa eftir Giovanni Pierluigi Palestrina.
Umsjón: Pétur Eggertsson.
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um landið og kemur víða við – í þéttbýli, dreifbýli, borg og bæjum – og kynnir sér hin ýmsu málefni á hverjum stað.
Í þessum þætti verður farið í Þjóðminjasafn Íslands við Suðurgötu í Reykjavík, þar sem við ræðum við fjóra sérfræðinga safnsins, kynnumst starfseminni í gegnum þeirra verkefni og heyrum um helstu áskoranir sem fylgja varðveislu og miðlun á þjóðminjum landsins.
Viðmælendur: Atli Freyr Kristófersson, Ágústa Kristófersdóttir, Helga Vollertsen og Karólína Stefánsdóttir.
Skáldsaga Halldórs Laxness um hinn 18 ára gamla Stein Elliða kom út árið 1927 þegar Halldór var sjálfur 25 ára gamall.
Þessi saga um leit ungs manns að eigin lífsskoðunum þótti marka tímamót í íslenskri bókmenntasögu.
Valdimar Örn Flygenring las söguna fyrir útvarpið árið 1991.
Í 5., 6. og 34. lestri les Bára Lyngdal Magnúsdóttir ásamt Valdimar Erni og í 7. og 8. lestri les Guðrún S. Gísladóttir ásamt Valdimar.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Páskahelgin er á næsta leyti og margir sem verða á faraldsfæti. Sumir fara í sumarbústað, aðrir til útlanda og svo eru margir sem fara vestur Ísafjörð, þar sem fram fer skíðavika og auðvitað tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður. Við töluðum við skíðagarp, frá Ísafirði sem margoft hefur troðið upp á þessari ágætu hátíð fyrir vestan - þó hann hafi sig hægan núna um páskana. Helgi Björnsson tónlistarmaður kom í þáttinn í dag.
Blúshátíð í Reykjavík er í gangi yfir páskana eins og undanfarin ár og áratugi. Hátíðin verður í sínum stað á Hilton Reykjavík Nordica og á dagskránni eru bæði erlendar og innlendar blússtjörnur og að lokinni formlegri dagskrá verður Klúbbur Blúshátíðar þar sem tónleikagestir geta notið lifandi tónlistar í afslöppuðu umhverfi. Guðmundur Pétursson kom til okkar í dag.
Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í lok þáttar í sitt reglubundna vísindaspjall. Hún fjallaði um nýjar rannsóknir á rafrettum og níkótíninntöku. Og okkur skildist að þetta hafi ekki verið alslæmar fréttir sem hún færði okkur í dag.
Tónlist í þættinum í dag:
Blús í G / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
Allt ljómar / Helgi Björnsson
Ég trúi á þig / Múgison og Blúskompaníið
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Hann er heimspekingur í Kísildal, en hann er ekki heimspekingur Kísildalsins. Þvert á móti þá sker hann sig úr og gerir í því að aðgreina sig frá öðrum tæknifyrirtækjum Kísildalsins.
Við fjöllum um Alex Karp, framkvæmdastjóra Palantir. Áður en hann varð framkvæmdastjóri og síðar milljarðamæringur, þá var hann doktorsnemi í heimspeki við Goethe-háskóla í Frankfurt.
Palantir er eitt umdeildasta fyrirtæki Bandaríkjanna í dag, enda tækni þess notuð af útlendingaeftirlitinu (ICE) til að finna innflytjendur sem stendur til að reka úr landi og til að finna heppilegustu skotmörkin í Íran. Karp sem talar um sig sem vinstrimann og hefur stutt Demókrataflokkinn í áratugi, hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir þáttöku fyrirtækisins í herskárri stefnu Donalds Trump.
Það efni sem nýttist við gerð þáttarins var meðal annars eftirfarandi
The Technological Republic: Hard Power, Soft Belief, and the Future of the West (2025) eftir Alexander C. Karp og Nicholas W. Zamiska
The Philosopher in the Valley: Alex Karp, Palantir, and the Rise of the Surveillance State eftir Michael Steinberger (2025)
Viðtöl
A16z - https://www.youtube.com/watch?v=Wj6ttdIeBnE&t=62s
All In hlaðvarpið - https://www.youtube.com/watch?v=Y-IH7EVrBbQ
Free Press https://www.youtube.com/watch?v=QdqHf71Tep0
New York Times https://www.youtube.com/watch?v=8i-ys9faa74
Greinar
Minningargrein Karp um Habermas https://www.politico.com/news/magazine/2026/03/20/karp-habermas-remembrance-00838398
Rýnt í doktorsritgerð Karp
https://www.boundary2.org/2020/07/moira-weigel-palantir-goes-to-the-frankfurt-school/
Stúlknaskólinn í Íran og Maven
https://www.theguardian.com/news/2026/mar/26/ai-got-the-blame-for-the-iran-school-bombing-the-truth-is-far-more-worrying

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Mörg eru á ferð og flugi um páskana og þá er vissara að líta til veðurs. Við heyrðum í Einari Sveinbjörnssyni veðurfræðingi og fórum yfir stöðuna. Hvernig verður færðin? Er eitthvað sem þarf að varast? Hvernig verður veðrið á Tene? Þetta og meira til í Morgunútvarpinu.
Grínplatan virðist vera í ákveðinni útrýmingarhættu en fáar slíkar hafa komið út hér á landi undanfarin misseri. Úr þessu hyggst grínistinn Grettir Valsson bæta og sendir frá sér plötuna Ekki láta plata þig. Hann gaf út lagið Á typpinu fyrir tveimur árum og sendi síðast frá sér danslagið Skiptámér. En hvert sækir þessi ungi grínisti innblástur og af hverju ákvað hann að skella í heila plötu? Grettir leit við í Morgunútvarpinu.
Okkar allra besti Daði Freyr skaut óvænt upp kollinum í þættinum Góðir Íslendingar á RÚV á laugardaginn. Hann hefur látið nokkuð lítið fyrir sér fara undanfarið en sendi engu að síður frá sér lagið Hot Damn á dögunum og leggur drög að tónleikaferð um Bandaríkin næsta vetur. En hvað er meira að frétta af þessum frábæra tónlistarmanni? Daði Freyr sagði okkur það í Morgunútvarpinu.
Páskarnir eru á næsta leyti og af því tilefni leitaði Morgunútvarpið inn á við með Davíð Þór Jónssyni, presti í Laugarneskirkju.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Þó það hafi verið miðvikudagur þá var sannkallaður föstudagur í loftinu og heyrðist það vel á lagavali þáttarins. Guðni Tómasson kom svo og róaði mannskapinn niður og ræddi um Sinfó og kvikmyndina E.T.
Lagalisti þáttarins:
GRÝLURNAR – Maó gling
NOTORIOUS B.I.G. – Juicy
TOM PETTY – I Won’t Back Down
JAKOB FRÍMANN MAGNÚSSON – Bein leið
LILY ALLEN – Pussy Palace
ÁSGEIR TRAUSTI EINARSSON – Ferris Wheel
MEMFISMAFÍAN – Syngdu
SPACESTATION – Loftið
DOOBIE BROTHERS – Jesus Is Just Alright
ROLLING STONES – You Can’t Always Get What You Want
OUTKAST – Hey Ya!
EIRÍKUR HAUKSSON – Gull
PÁLMI GUNNARSSON – Steini strætó
TAYLOR SWIFT – Elizabeth Taylor
KIM CARNES – Bette Davis Eyes
STEFÁN HILMARSSON – Líf
NIRVANA – Lithium
REM – Man On The Moon
OLIVIA DEAN – Nice To Each Other
TROGGS – Wild Thing
BEATLES – Tomorrow Never Knows
NEW RADICALS – You Get What You Give
FRIÐRIK DÓR JÓNSSON – Þessi kjóll
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS, PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON – Allt fyrir ástina
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS – Vertu ekki að plata mig
THE SMITHS – This Charming Man
BUZZCOCKS – Ever Fallen In Love (With Someone You Shouldn't've)
MEN WITHOUT HATS – The Safety Dance
TAME IMPALA – Dracula
DEEE-LITE – Groove is in the Heart
A TRIBE CALLED QUEST – Can I Kick It
LOU REED – Walk On The Wild Side
EMILÍANA TORRINI, GREININGARDEILDIN, BOGOMIL FONT – Þú stendur alltaf með mér
STRANGLERS – Always the Sun
LYKKE LI – Lucky Again
EGILL SÆBJÖRNSSON – I Love You So
BLUR – Good Song
DURAN DURAN – Planet Earth [Night Version 12 Inch]

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Bandaríkjaforseti íhugar alvarlega að draga Bandaríkin úr Atlantshafsbandalaginu. Hann hefur ítrekað lýst yfir óánægju með að aðrar bandalagsþjóðir taki ekki þátt þátt í stríðinu gegn Íran.
Fjármálaráðherra segir vel hafa gengið að innleiða kílómetragjald. Formlegri innleiðingu lýkur í dag. Um 35 þúsund hafa skrifað undir kröfu um afnám gjaldsins.
Brýnt er að hefja heyrnarskimanir í grunnskólum sem allra fyrst, segir formaður landssamtaka heyrnarskertra. Stjórnvöld vanmeti fjölda barna með ógreinda heyrnarskerðingu.
Fyrsta mannaða tunglferðin í nær sextíu ár verður farin í kvöld. Eftir síendurteknar frestanir, segja yfirmenn NASA að allt sé til reiðu.
Átján ófærðardagar voru á Fjarðarheiði í mars. Seyðfirðingar segja ástandið hættulegt og lýjandi.
Við ræðum við veðurfræðing um útlitið næstu daga á vegum landsins.
Ítalía verður ekki með í lokakeppni heimsmeistaramóts karla í fótbolta í sumar. Í gær réðst hvaða 48 landslið keppa. Ítalir eru fjórfaldir heimsmeistarar en hafa ekki komist á HM frá 2014.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Lovísa Rut var Popplandsvörður þennan miðvikudaginn. Arnar Eggert og Andrea gerðu upp plötu vikunnar, extended babe með rafpopptvíeykinu Amor Vincit Omnia, allskonar tónlist, tónlistarfréttir og góð stemning.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Fréttamiðlar, fyrirtæki, samstarfsfólk, vinir og fjölskyldur keppast við að gabba fólk því í dag er 1.apríl. En hvaðan kemur þessi hefð? Þjóðfræðingurinn Jón Jónsson var á línunni frá Hólmavík.
Donald Trump, bandaríkjaforseti, segist íhuga það alvarlega að Bandaríkin hætti í Atlantshafsbandalaginu. Hann hefur lengi talað gegn bandalaginu og sagt hin aðildarríkin ekki leggja nóg til NATO og nú hefur hann ítrekað hótanir sínar eftir að sum aðildaríkja NATO hafi ekki vilja veita bandarískum herafla afnot af herflugvöllum í árásum á Íran né ljáð máls á því að koma bandaríkjamönnum til aðstoða við Hormuz sund þar sem olíuflutningaskip fara um. Við hringdum í Albert Jónsson en hann er fyrrum sendiherra og sérfræðingur í öryggis- og varnamálum..
Páskarnir eru framundan og landsmenn á faraldsfæti eins og oft áður á þessum tíma. Höfuðstaður norðurlands er ávallt vinsæll þegar kemur að páskahelginni. Davíð Rúnar Gunnarsson hjá Viðburðarstofu Norðurlands var á línunni.
Hæst eru nýir íslenskir sjónvarpsþættir sem fjalla um menntaskólakennara sem taka sig saman og ræna nemendafélagið. Hannes Óli Ágústsson og Friðgeir Einarsson leika tvö aðal hlutverkin auk þess að skrifa þættina.
Háteigsvegur 59 hlaut evrópsk hönnunarverðlaun frá New European Bauhaus á dögunum í flokknum hringrásarsamfélagið. Í umsögn dómnefndar segir að í verkefninu sameinist „umhverfisábyrgð, samfélagsleg inngilding og hágæða arkitektúr”. Það er Arnhildur Pálmadóttir arkitekt sem hannaði húsið og ræddi þetta verðlaunahús.
Nói Siríus lenti í þeim leiðu mistökum að prenta óvart gervigreindar málshætti í hluta af páskaeggjum sín. Málshættir á borð við “Sá er glataður tíminn sem farið hefur í scroll” og “Ekki er allt sem trendar þess virði að fylgja”. Eða hvað? Rúnar Kristmundsson markaðsstjóri Nóa Siríus sagði okkur frá þessu aprílgabbi og hvernig málsháttagerð er háttað hjá súkkulaðiverksmiðjunni.
Siggi Gunnars var loks í beinni frá Ísafirði og rak inn nefið í Aldrei búðinni, sem selur varning tengdan Aldrei fór ég suður hátíðinni, en hún verður sett á föstudaginn.
Fréttir
Fréttir
Utanríkisráðherra segir Atlantshafsbandalagið farsælt fyrir öll aðildarríkin - þar á meðal Bandaríkin. Bandaríkjaforseti segist íhuga alvarlega að draga Bandaríkin úr NATÓ.
Donald Trump segist hafa rætt við Írani um vopnahlé, en þar á bæ kannast enginn við slíkar viðræður.
Það styttist í stórar ákvarðanir um uppbyggingu iðnaðarsvæðis í Finnafirði við Langanes. Stórskipahöfn er enn á teikniborðinu.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Icelandair upplýsti í morgun að félagið ætti í viðræðum um kaup á 49 prósenta hlut í Fly Play Europe þar sem helstu verðmætin eru flugrekstrarleyfi á Möltu. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir kaupin geta falið í sér tækifæri til aukins sveigjanleika í starfseminni og til að einfalda flota Icelandair hér á landi.
Um helgina lágu fyrir úrslit í kosningum um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps og var sameiningin samþykkt í báðum sveitarfélögum. Íbúakosning um sameininguna stóð frá 14. til 28. mars. Þetta eru fámenn sveitarfélög, tvö af fimm fámennustu sveitarfélögum landsins, en íbúar sameinaðs sveitarfélags verða 177 miðað við íbúafjölda 1. janúar.
Í dag hófst austur á Indlandi viðamesta - og metnaðarfyllsta - manntal sem gert hefur verið í mannkynssögunni. Þar eiga yfir þrjár milljónir karla og kvenna, að telja um 1,4 milljarða landa sinna og afla um leið alls kyns upplýsinga um aðstæður þeirra, trú, efnahag, stétt og fleira. Áætlað er að þetta risaverkefni taki eitt ár og ljúki 31. mars á næsta ári.

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Kalli spilaði nýtt efni frá Nick Cave & Flea, Future Islands, Central Cee, Mind Enterprises og Hemlocke Springs þetta miðvikudagskvöldið.
Smile Till It Ends - Krummi
Simulation Swarm - Big Thief
Wagwan - Central Cee
Verdansk - Dave
All I Did Was Dream Of You - Beabadoobie & The Marias
Shell (Of A Man) - Saya Gray
St. Agnes - The Cardinals
Archbishop Harold Holmes - Jack White
Mata Zyklek - Angine De Poitrine
Hot Damn - Daði Freyr
Illusion (Logic1000 remix) - Dua Lipa
The Great Divide - Noah Kahan
Goodbye Mr. Blue - Father John Misty
Ride - Jessie Ware
Tacchini - Mind Enterprises
Universal Soldier - Depeche Mode
Fascination In The Dark - Vance Joy
Go Down River - The Heavy Heavy
Be The Girl - Hemlocke Springs
Sugar - NoSo
Meira - Þormóður, Úlfur Úlfur & Huginn
F.C.K. - Birnir & Aron Can
I Know You're Hurting - RAYE
Sad Makeup - Yukimi
Island Full Of Deadbeats - Superserious
Our Swords - Band Of Horses
Wichita Lineman - Nick Cave & Flea
Strange - Bobby Gilespie & Yttling Jazz
Þessi kjóll - Friðrik Dór
Just A Western (Boy Harsher remix) - Nilufer Yanya
Fumes - Janus Rasmussen
Crosswalk - Totally Enormous Extinct Dinosaurs
Kominn heim - Kristmundur Axel & Bubbi
Pretty Pimpin - Kurt Vile
Sail - Future Islands
Allur tími í heiminum - Forgotten Lores