07:03
Morgunútvarpið
Páskaveðrið, ný grínplata, Daði Freyr í heimsókn og páskahugvekja frá Davíð Þór

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Mörg eru á ferð og flugi um páskana og þá er vissara að líta til veðurs. Við heyrðum í Einari Sveinbjörnssyni veðurfræðingi og fórum yfir stöðuna. Hvernig verður færðin? Er eitthvað sem þarf að varast? Hvernig verður veðrið á Tene? Þetta og meira til í Morgunútvarpinu.

Grínplatan virðist vera í ákveðinni útrýmingarhættu en fáar slíkar hafa komið út hér á landi undanfarin misseri. Úr þessu hyggst grínistinn Grettir Valsson bæta og sendir frá sér plötuna Ekki láta plata þig. Hann gaf út lagið Á typpinu fyrir tveimur árum og sendi síðast frá sér danslagið Skiptámér. En hvert sækir þessi ungi grínisti innblástur og af hverju ákvað hann að skella í heila plötu? Grettir leit við í Morgunútvarpinu.

Okkar allra besti Daði Freyr skaut óvænt upp kollinum í þættinum Góðir Íslendingar á RÚV á laugardaginn. Hann hefur látið nokkuð lítið fyrir sér fara undanfarið en sendi engu að síður frá sér lagið Hot Damn á dögunum og leggur drög að tónleikaferð um Bandaríkin næsta vetur. En hvað er meira að frétta af þessum frábæra tónlistarmanni? Daði Freyr sagði okkur það í Morgunútvarpinu.

Páskarnir eru á næsta leyti og af því tilefni leitaði Morgunútvarpið inn á við með Davíð Þór Jónssyni, presti í Laugarneskirkju.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,