13:00
Aflúsun með orðsins brandi og pólitísk sápa. (4 af 5)
Sjálfstætt fólk í Jökuldalsheiði og grennd

Í þættinum er dreginn fram samanburður á verkum eftir Halldór Laxness og prentuðum heimildum um Jökuldalsheiði frá svipuðu tímaskeiði.

Hjörtur Pálsson les nokkra kafla úr Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness: Heimkoman, Útirauðsmýri, Dagur, Gæðingurinn og Hundurinn og sál o.fl.

Guðrún Birna Hannesdóttir les úr Völuskjóðu eftir Guðfinnu Þorsteinsdóttur (Erlu).

Baldvin Halldórsson les úr Tímariti Máls og menningar 1955 - Heiðin, bókmenntagrein eftir Peter Hallberg.

Rúrik Haraldsson les kaflann Pólitísk sápa úr Ævisögu Benedikts Gíslasonar frá Hoftegi.

Umsjón: Gunnar Valdimarsson

Þátturinn var fyrst á dagskrá 24. júlí 1977.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 8 mín.
e
Endurflutt.
,