Í þáttunum Steypiregn kynnir Margrét Kristín Blöndal tónlistarmenn og tónlistarkonur sem hafa átt ríkan þátt í gera heiminn enn betri og fegurri. Í hverjum þætti er einn listamaður tekinn fyrir og verk hans kynnt fyrir hlustendum.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2014.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Haustið 2024 fundust á söfnum áður óþekkt tónverk eftir tvo af mestu tónsnillingum sögunnar. Á Tónlistarsafninu í Leipzig fannst Serenaða í C-dúr eftir Wolfgang Amadeus Mozart, verk fyrir tvær fiðlur og bassa. Verkið hefur verið kallað „Ganz kleine Nachtmusik“ (Mjög lítið næturljóð) í stíl við hið fræga tónverk Mozarts „Eine kleine Nachtmusik“ (Lítið næturljóð), en hið nýtundna verk er samið mun fyrr, sennilega á árunum 1766-69. Á Morgan-bóka- og minjasafninu í New York fannst áður óþekktur Vals í a-moll eftir Frédéric Chopin, stuttur vals fyrir píanó. Tónverkin verða bæði flutt í þættinum „Á tónsviðinu“ auk annarra verka eftir tónskáldin. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
Leikin eru lög eftir dægurlagahöfunda sem hafa annarsvegar verið samin sem dans- og dægurlög en síðan hlotið útbreiðslu sem kórlög, kvartettasöngvar eða einsöngslög. Hinsvegar eru leikin lög eftir dægurlagahöfunda sem eru sérstaklega hugsuð af þeirra hálfu sem einsöngslög eða kórlög. Lögin eru eftir Gunnar Þórðarson, Magnús Kjartansson, Jóhann G. Jóhannsson, Jón Jónsson frá Hvanná, Jónas Jónasson, Hörð G. Ólafsson, Geirmund Valtýsson, bræðurna Jónas og Jón Múla Árnasyni, Spilverk þjóðanna og Finn Torfa Stefánsson.
Ennfremur er endurflutt erindi sem Magnús Thoroddsen, þáverandi borgardómari og formaður Stúdentafélags Reykjavíkur, hélt 1. desember 1969. Hann fjallar um sögu félagsins og helstu áhrifamenn félagsins frá stofnun þess, auk þess sem hann ræðir það sem efst er á baugi árið 1969, s.s. virkjunarmál, stóriðjumál, inngönguna í EFTA o.fl.
Umsjón hefur Jónatan Garðarsson.
(Áður á dagskrá 1999)

frá Veðurstofu Íslands.
Að „sampla“ í tónlist merkir að fá að láni hljóðbrot úr eldra lagi. Þessi aðferð hefur tíðkast í rúm fjörutíu ár, sérstaklega í hipphoppi, þar sem bassalínur og hljómar úr eldri diskólögum og fönki voru lengi grunnurinn að tónlistinni sem var rappað við, en er útbreidd í nær allri popptónlist samtímans.
Í þessari þáttaröð segir Atli Bollason sögu þessarar aðferðar - tónklippilistarinnar -
frá árdögum hennar í módernískri tónlist fimmta áratugarins, gegnum hipphopp níunda áratugarins
Velt er upp lögfræðilegum álitamálum, en tónklippilistin hefur reynt mjög á
höfundarréttarlög. Tónklippilistin er einnig sett í samhengi við póstmódernískar kenningar um textatengsl og spurt hvort endurvinnsla af þessu tagi sé leikur að innantómum vísunum
sem endurspegli óhæfi til að fást við eigin samtíma, eða hvort hún komi á hugmyndafræðilegum tengslum við verkin sem á undan fóru í því skyni að varpa nýju, fersku og merkingarbæru ljósi á nútíðina.
Hvernig kallast tónklippilistin á við sambærilegar aðferðir í myndlist og bókmenntum? Hver er munurinn á því að nota þekkt hljóðbrot og óþekkt? Hver er framtíð tónklippilistar þegar hægt er að framleiða „ímynduð hljóðbrot“ í einni svipan með aðstoð gervigreindar?
Hugmyndin um fundin hljóð kom upp í akademískri samtímatónlist fljótlega eftir seinna stríð og kallast á við „ready-made“ hugmynd Marcels Duchamps. Verk fyrir hljómsveitir og segulband. Dúkkaði líka upp síðar í hápródúseraðri popptónlist Bítlanna og Beach Boys.
* Musique concréte, ítalski fútúrisminn, Pierre Schaeffer, Karlheinz Stockhausen, John Cage,
Bítlarnir, Beach Boys, ready-made, collage
Æskulýðsdagurinn
Sr. Jónína Ólafsdóttir
Organisti: Kári Þormar
Barna- og unglingakór Hafnarfjarðarkirkju, stjórnandi Helga Sigríður Kolbeins
Hljóðfæraleikur er í höndum nemenda í tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Á selló leikur Salome Santoni Grétudóttir, Gítarsveit skipa: Bjarki Þór Ólafsson, Bjargar Jón Sigþórsson, Halldór Magnús Guðbjartsson, Ísól Eyja Brown og Mikael Máni Bjarnason. Á fiðlu leikur Hilmir Sveinsson og um meðleik sjá Kári Þormar og Jón Rafnsson. Söngur er í höndum Barna- og unglingakórs Hafnarfjarðarkirkju og félaga úr Kór Öldutúnsskóla. Um lestur ritningarlestra sjá: Magni Þór Karlsson, Baldur Helgi Einarsson, Salome Santoni Grétudóttir, Eyþór Ingi Gunnarsson og Freyja Lillý Danielsdóttir.
Tónlistin í messunni:
Fyrir predikun:
Forspil: Svanurinn, lag: Camille Saint – Saéns. Salome Santoni Grétudóttir leikur á selló.
1) Sálmurinn um fuglinn, Lag og texti Olga Guðný Árnadóttir,
2) Takk, Lag og texti Hafdís Huld Alisdair Wright,
3) Ég vil dvelja í skugga vængja þinna, Lag Debbie McNeil og texti Gunnar Böðvarsson
4) Ákall,Ralf Siegel Menunger og texti Jónbjörg S. Eyjólfsdóttir
Eftir predikun:
1) Ständchen eftir Franz Schubert. Nemendur úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar leika á gítara.
2) Megi gæfan þig geyma/ Lag og texti: Nickomo Clarke
Eftirspil: Sónata í F-dúr, 1. Kafli, Adagio, Höfundur: G.F Handel. Hilmir Sveinsson leikur á fiðlu.
Útvarpsfréttir.
Stjórnvöld í Íran hóta Bandaríkjunum og Ísrael hefndum eftir dráp á æðstaklerk landsins, Khamenei, í gær. Íranir komu saman í nótt og í morgun, ýmist til að syrgja hann eða fagna falli hans. Við ræðum við utanríkisráðherra í hádegisfréttum.
Norðvestan hríð eða stórhríð er spáð norðaustanverðu landinu eftir hádegi á morgun. Færð spillist líklega á fjallvegum. Appelsínugular og gular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út.
Dómsmálaráðherra segir ótímabært að segja hvort lögreglustjóranum á Vestfjörðum verði vikið frá störfum, eftir að kvartað var undan hegðun hans á þorrablóti Flateyringa
Haukar urðu í gærkvöld bikarmeistarar karla í handbolta eftir öruggan sigur á ÍR.
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðist Karitas um ramadan með fréttamanninum Ólöfu Ragnarsdóttur og Embla Bachmann kíkir í Stórmoskuna í Reykjavík og ræðir við unga múslima um hátíðina.
Í þættinum er dreginn fram samanburður á verkum eftir Halldór Laxness og prentuðum heimildum um Jökuldalsheiði frá svipuðu tímaskeiði.
Hjörtur Pálsson les nokkra kafla úr Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness: Heimkoman, Útirauðsmýri, Dagur, Gæðingurinn og Hundurinn og sál o.fl.
Guðrún Birna Hannesdóttir les úr Völuskjóðu eftir Guðfinnu Þorsteinsdóttur (Erlu).
Baldvin Halldórsson les úr Tímariti Máls og menningar 1955 - Heiðin, bókmenntagrein eftir Peter Hallberg.
Rúrik Haraldsson les kaflann Pólitísk sápa úr Ævisögu Benedikts Gíslasonar frá Hoftegi.
Umsjón: Gunnar Valdimarsson
Þátturinn var fyrst á dagskrá 24. júlí 1977.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Farið yfir ævi og störf raftónlistarkonunannar Eliane Radigue í tónum og tali.
Eliane Radigue (f. 1932 - d. 2026) kom víða við í heimi raftónlistar á ævinni, vann með bæði segulbönd og hljóðgervla en eftir aldamótin sneri hún blaðinu við og samdi alfarið hljóðfæratónlist í tónverkaröð sem nefnist OCCAM. Verk Radigue eru íhugul, löng og breytast hægt en eru áhrifamikil og dáleiðandi. Um miðjan áttunda áratugin gerðist Radigue búddisti og voru verk hennar á síðari hluta 20. aldarinnar innblásin af tíbetskri búddaspeki. Í Tónhjólinu 1. mars er ævi þessa magnaða tónskálds rakin og leikin brot úr verkum af ýmsum tímabilum ferils hennar.
Tónlist í þættinum:
Etude (1969)
Stress Osaka (1970)
Chry-ptus (1971)
Biogenesis (1974)
Elimination of Desires (úr Songs of Milarepa) (1983) Flytjendur: Lama Kunga Rinpoche og Robert Ashley.
Kyema (úr Trilogie de la Mort) (1988)
L'ile Re-Sonante (1998)
Occam IV (2012) Flytjandi: Julia Eckhardt: Víóla. Hljóðön, 2021.
Occam Delta XIX (2018) Flytjendur: Yannick Guedon - Viola da Gamba og rödd, Carol Robinson - Birbinye, Bertrand Gauget - altsaxófónn.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Það kennir ýmissa grasa hjá Eiríki Hreini Finnbogasyni í Daglegu máli í febrúar 1956. Í tveimur þáttum tekur hann fyrir bréf frá áhugamönnum um íslenskt mál um til dæmis viðtengingarhátt í ef-setningum; orðin eldhúsbekkur og ginnkeyptur; notkunarsvið sagnarinnar byggja; og verkaskiptingu orðanna eitthvað og eitthvert.
Austurland á fimmta áratug síðustu aldar. Frásagnir tengdar hernámi Breta þar.
Atburðir sem aldrei liðu úr huga þeirra sem tókust á við lífið í kjölfar þeirra.
Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Íslenska ríkið skuldbatt sig til þess að greiða ekkjum sjómanna, sem létust á hafi úti af völdum stríðsátakanna, bætur. En hvað með bónda og börnin sem létust af völdum handvammar af hálfu breska hersins og hvernig metum við mannslíf?
Viðmælendur í þættinum eru: Friðþór Eydal, Guttormur Metúsalemsson og Ragnheiður Kristjánsdóttir.

frá Veðurstofu Íslands
Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.
Lagalistinn:
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sigfús Pétursson, Álftagerðisbræður - Rósin.
Pónik - Bíllinn minn og ég.
Guðrún Gunnarsdóttir Dagskrárgerðarm., Friðrik Ómar Hjörleifsson - Óbyggðaferð.
Cortes feðgar, Garðar Þór Cortes, Garðar Cortes - Kvæðið um fuglana.
MA Kvartettinn - Laugardagskvöld.
Ragnar Bjarnason, Lay Low - Þannig týnist tíminn.
Hljómar - Ástarsæla.
Edda Björg Sverrissdóttir - Heyr mína bæn.
Baggalútur - Allt fyrir mig.
Aladár Rácz, Karlakórinn Hreimur - Heyr mína bæn.
Ingibjörg Vagnsdóttir, Margrét Vagnsdóttir, Hrólfur Vagnsson, Soffía Vagnsdóttir, Pálína Vagnsdóttir, Haukur Vagnsson, Septa, Þórður Vagnsson - Æskuminning.
Björgvin Halldórsson, Baggalútur og Björgvin Halldórsson - Allt fyrir mig.
Kristjana Stefánsdóttir - Hlíðin mín fríða.
Hljómar - Ástarsæla.
Baggalútur - Allt fyrir mig.
Edda Björg Sverrissdóttir, Aladár Rácz, Karlakórinn Hreimur - Heyr mína bæn.
Ronstadt, Linda - High Sierra (edit).
Sylvian, David - Weathered wall.
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var svo Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni. Við fengum hann til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gunnar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Einn, tveir þrír, fjór... Bítlarnir í tímanna rás e. Craig Brown (Þýð. Helgi Ingólfsson)
Tune in e. Mark Lewisohn
Ævisögur Charles Mingus, Thelonious Monk og Chet Baker
Bækur Braga Ólafssonar, Braga Páls Sigurðsson og Ólaf Gunnarsson
Kokkáll e. Dóra DNA
Bjarmalönd e. Val Gunnarsson
Reyndu aftur, ævisaga Magnúsar Eiríkssonar e. Tómas Hermannsson
Boy on Fire um Nick Cave e. Matt Mordue
The Big Midwwk, Life inside the Fall e. Steve Hanley
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Endalok verða rauður þráður í Heimskviðum í dag. Það eru vægast sagt umdeild endalok þáttaraðarinnar Stranger things, en óhætt að segja að það séu margir ósáttir við þau. Svo eru það möguleg endalok almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum.
Það er stefna bandaríkjastjórnar að draga úr umfangi þessara miðla sem reka staðbundnar útvarps- og sjónvarpsstöðvar um öll Bandaríkin. Núna séu komnir fjöldi sjálfstæðra miðla og það sé ekki aðeins úrelt fyrirkomulag að ríkið fjármagni miðlana heldur spilli það fyrir sjálfstæðri blaðamennsku. Við tölum við Ingibjörgu Þórðardóttur sem er fyrrverandi fréttastjóri BBC og CNN í Bandaríkjunum. Hún segir umræðuna um að ríkismiðlar hafi of mikil áhrif á fjölmiðlamarkaðinn góða og gilda en hún eigi ekki við Bandaríkjunum. Almannaþjónustumiðlarnir, NPR og PBS, eigi ekki roð í stærstu einkamiðlana og hvarf þeirra hefði lítil eða engin áhrif á þá. En það myndi hins vegar gera fjölmiðlalandslandslagið bæði einhæfara og fátæklegra.
Svo er það eitt helsta flaggskip Netflix-streymisveitunnar - Stranger Things. Aðdáendur þáttanna eru margir hverjir vægast sagt ósáttir við hvernig þættirnir enduðu. Sprottið hafa upp ýmsar samsæriskenningar meðal annars um hvort endalokin séu raunveruleg.
Duffer-bræður, skaparar þáttanna, eru sagðir hafa misst boltann í blálokin - eða er þetta kannski bara snilldar markaðssetning? Það hlýtur alla vega að vera ákveðin snilld að fá fólk til þess að vera enn að tala um þættina og jafnvel að horfa á þá aftur og aftur, til að finna vísbendingar og lesa milli línanna.
Að „sampla“ í tónlist merkir að fá að láni hljóðbrot úr eldra lagi. Þessi aðferð hefur tíðkast í rúm fjörutíu ár, sérstaklega í hipphoppi, þar sem bassalínur og hljómar úr eldri diskólögum og fönki voru lengi grunnurinn að tónlistinni sem var rappað við, en er útbreidd í nær allri popptónlist samtímans.
Í þessari þáttaröð segir Atli Bollason sögu þessarar aðferðar - tónklippilistarinnar -
frá árdögum hennar í módernískri tónlist fimmta áratugarins, gegnum hipphopp níunda áratugarins
Velt er upp lögfræðilegum álitamálum, en tónklippilistin hefur reynt mjög á
höfundarréttarlög. Tónklippilistin er einnig sett í samhengi við póstmódernískar kenningar um textatengsl og spurt hvort endurvinnsla af þessu tagi sé leikur að innantómum vísunum
sem endurspegli óhæfi til að fást við eigin samtíma, eða hvort hún komi á hugmyndafræðilegum tengslum við verkin sem á undan fóru í því skyni að varpa nýju, fersku og merkingarbæru ljósi á nútíðina.
Hvernig kallast tónklippilistin á við sambærilegar aðferðir í myndlist og bókmenntum? Hver er munurinn á því að nota þekkt hljóðbrot og óþekkt? Hver er framtíð tónklippilistar þegar hægt er að framleiða „ímynduð hljóðbrot“ í einni svipan með aðstoð gervigreindar?
Hugmyndin um fundin hljóð kom upp í akademískri samtímatónlist fljótlega eftir seinna stríð og kallast á við „ready-made“ hugmynd Marcels Duchamps. Verk fyrir hljómsveitir og segulband. Dúkkaði líka upp síðar í hápródúseraðri popptónlist Bítlanna og Beach Boys.
* Musique concréte, ítalski fútúrisminn, Pierre Schaeffer, Karlheinz Stockhausen, John Cage,
Bítlarnir, Beach Boys, ready-made, collage
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Viðtal við tvíburasysturnar Laufeyju og Björk Björnsdætur þar sem kafað er ofan í upplifun þeirra af því að vera eineggja tvíburasystur og hvaða kröfum þær mæta af samfélaginu, fyrir það eitt að vera tvíburar. Inn í þetta flétta ég fróðleik um eineggja tvíbura út frá rannsóknum sem ég kannaði og sagði einnig frá minni upplifun af því að vera eineggja tvíburi.
Umsjón: Brynhildur Yrsa Valkyrja

frá Veðurstofu Íslands
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Sónata nr. 4 í a moll op. 23 eftir Ludwig van Beethoven.
Verkið er í 3 þáttum:
I. Presto
II. Andante scherzoso, piu allegretto
III. Allegro molto
Flytjendur eru Isabelle Faust fiðluleikari og Alexander Melnikov píanóleikari.
Útgefið árði 2009 á plötunni Complete sonatas for piano and violin.
Söngljóð úr ljóðaflokknum Liederkreis op. 24 eftir Robert Schumann við ljóð eftir Heinrich Heine. Ljóðin í flokknum eru alls níu en leikin eru fjögur þeirra:
Nr. 3 Ich wandelte under den Bäumen
Nr. 5 Schöne Wiege meiner Leiden
Nr. 6 Warte, warte wilder Schiffmann
Nr. 9 Mit Myrten und Rosen
Andri Björn Róbertsson bassabaríton syngur, Ástríður Alda Sigurðardóttir leikur á píanó.
Hljóðritað í Salnum, Kópavogi 12.-15. apríl 2021.
Horn konsert nr. 1 í D-dúr eftir Franz Joseph Haydn.
Verkið er í þremur þáttum:
1. Allegro
2. Adagio
3. Allegro
Barry Tuckwell leikur einleik á horn ásamt hljómsveitinni Academy of St. Martin-in-the-Fields-sveitinni undir stjórn Neville Marriner.
Útgefið á plötunni Haydn concertos : trumpet, horn, cello árið 1967.
To fleeting pleasures make your court úr óratóríunni Samson eftir Georg Friedrich Händel. Renée Fleming sópran syngur, Hljómsveit upplýsingaaldarinnar leikur undir stjórn Harry Bicket.
Útgefið á plötunni Renée Fleming : Händel árið 2004.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Árið 1944 gaf Ólafur Jóhann Sigurðsson út skáldsöguna Fjallið og drauminn sem hlaut yfirleitt mjög góða dóma, þótt sumir væru upp og ofan, t.d. dómur Halldórs Laxness. En ein persóna bókarinnar, niðursetningurinn Ásta vitlausa, varð sérlega umdeild enda lýsing á ævi hennar sérlega ofboðsleg. Undir lok þáttar víkur svo að alþýðukonunni Önnu frá Moldnúpi sem nánar segir af í næsta þætti.

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Salka Sól Eyfeld.
Lagalistinn:
Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar, Baldur Hólmgeirsson - Konuvísur.
Melanie - Brand new key.
Bjarni Böðvarsson - Konuvísur.
Melanie - Lay down (candles in the rain).
Stuðmenn - Út í veður og vind.
Siffre, Labi - Crying, laughing, loving, lying.
Beatles, The - Hello, goodbye.
TRÚBROT - Hush-a-bye.
Haukur Morthens og hljómsveit hans, Fríða Bergsdóttir, Hjördís Bergsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir - Lífsgleði.
Mancini, Henry and his orchestra - Baby elephant walk.
Norma E. Samúelsdóttir - Lífsgleði.
Charles, Ray - Bye bye love.
Waits, Tom - I hope that I don't fall in love with you.
Bush, Kate - Army Dreamers.
Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar, Karl Sigurðsson, Bjarni Böðvarsson - Piparsveinaharmagrátur.
Ladysmith Black Mambazo - Homeless.
Carpenters - Goodbye to Love.
Screamin' Jay Hawkins - Voodoo.
Hljómar - Bless á meðan.
Haukur Morthens og hljómsveit hans - Lífsgleði njóttu.
Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.
Syndum í bjórsundlaug í appelsínugulum viðvörunum og myrkri.
Una Torfadóttir - Appelsínugult myrkur.
Faces - Oh la la la
Guðmundur Pétursson - No Reality
Valdimar - Lungu.
Kate Bush - Army Dreamers.
Björk & Rosalia - Berghain.
RADIOHEAD - All I Need.
THE WHO - I Can´t Explain.
MANU CHAO - Me Gustas Tu.
Beatles, The - Sexy Sadie.
Lou Reed - Walk on the wild side
U2 - Songs Of The Future.
Elín Hall - Tachylite.
Útvarpsfréttir.
Stjórnvöld í Íran hóta Bandaríkjunum og Ísrael hefndum eftir dráp á æðstaklerk landsins, Khamenei, í gær. Íranir komu saman í nótt og í morgun, ýmist til að syrgja hann eða fagna falli hans. Við ræðum við utanríkisráðherra í hádegisfréttum.
Norðvestan hríð eða stórhríð er spáð norðaustanverðu landinu eftir hádegi á morgun. Færð spillist líklega á fjallvegum. Appelsínugular og gular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út.
Dómsmálaráðherra segir ótímabært að segja hvort lögreglustjóranum á Vestfjörðum verði vikið frá störfum, eftir að kvartað var undan hegðun hans á þorrablóti Flateyringa
Haukar urðu í gærkvöld bikarmeistarar karla í handbolta eftir öruggan sigur á ÍR.
Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!
Doddi var á sínum stað með Sportrásina á Rás 2.
Gunnlaugur Jónsson mætti með sitt innslag, Góð íþrótt Gulli betri.
Í dag var viðmælandinn, Eygló Fanndal lyftingakona og íþróttamaður ársins 2025.
Benedikt Guðmundsson körfuboltaþjálfari og spekingur mætti og ræddi ótrúlega körfuboltaleik sem fór fram í Laugardalshöll á föstudaginn og framtíð landsliðsins.
Helga Margrét Höskuldsdóttir gerði upp handboltaviku HSÍ.
Að endingu heyrðum við í Birni Berg Gunnarssyini, fjármálaráðgjafa um peningahliðina á HM í fótbolta í sumar.
Lagalisti dagsins
EMILÍANA TORRINI - Baby Blue.
Portugal. The man - Tanana.
Valdimar - Tenerife.
HURTS - Stay.
sombr - Homewrecker.
The Temper Trap - Sweet Disposition.
Sanchez, Stephen - SWEET LOVE.
The Smiths - Stop Me If You Think You've Heard This One Before.
GEORGE MICHAEL & ASTRID GILBERTO - Desafinado.
Izleifur, Elín Hall - Hugsa alltof mikið um þig.
Snorri Helgason, Bríet - Mexico.
DANIIL, JOEY CHRIST - Ef their vilja beef.
Warmland - All for All.
Lykke Li - Lucky Again.
HJALTALÍN - Baronesse.
Una Torfadóttir - Yfir strikið.
Addison Rae - Headphones On.
Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Eitt af blómunum.
Genesis - Follow you, follow me.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
U2 fær stærsta plássið í Rokklandi vikunnar en þessi gamla og merkilega hljómsveit frá Dublin sem á hvorki meira né minna en 50 ára afmæli í ár sendi algjörlega óvænt frá sér sér 6 laga plötu á Öskudag sem heitir einmity Days of Ash. Þessi plata er mikil fríðar-pólitík og ekki veitir okkur nú af þessa dagana en að berjast fyrir friði – tala fyrir honum og syngja um hann.
U2 aðdáendur skoða plötuna með umsjónarmanni lag fyrir lag: Hildur Eir Bolladóttir prestur á Akureyri, Jón Knútur Ásmundsson á Reyðarfirði, Illugi Jökulsson, Helga Vala Helgadóttir og Arnar Eggert Thoroddsen.
Svo ætlum við að skoða Fela Kuti sem hlaut dögunum Grammy verðlaun fyirr avistarfið - Lifetime Achievement Award fyrstur Afríkumanna og næstum 30 árum eftir að hann lést.
Við beinum sjónum að Elvis myndinni sem er verið að sýna í kvikmyndahúsum í borginni þessa dagana – td. í kvöld. Baz Luhrman gerði þessa mynd sem er byggð upp á áður óséði efni frá árunum 1970-1972 að mestu.
Olivia Dean var sigursælust á Bresku tónlistarverðlaununum (Brit Awards) sem voru afhent í Manchester í gærkvöldi. Björk var á svæðinu og steig á svið með vinkonu sinni Rosaliu sem hluta verðlaun sem „alþjóðlegur listamaður ársins“.

Útvarpsfréttir.

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.
Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.
Glænýr Suðupottur, yfirfullur af nýrri tónlist alls staðar að. Plata þáttarins er Garip með Hollensku/ Tyrknesku Íslandsvinunum í Altin Gün
Rebekka Blöndal - Kannski
Altin Gün - Neredesin Sen
Snorri Helgason & Bríet - Mexico
Snuggle - Woman Lake
1000 Rabbits - Virgin Soil
Fatoumata Diawara - Djanne
Bebel Gilberto - Agora
Tinariwen feat José Gonzales - Imidiwan Takydam
Antibalas - La Ceiba
Teitur Magnússon - Gullauga
The Womack Sisters - You went away too long
Gorillaz - Orange County
Altin Gün - Sucum Nedir
Gabriel Richardson - Italian moreneta
Apparat - Glimmerine
Noga Erez - Dumb
Mælginn - Úlpa
Flowklorikos - Por amor al odio
Jurassic 5 - The Influence
Da Beatminerz - Extreme Situation
Massive Attack - I against I
John Beltran - I want what I want
Roberta Flack - Tryin Times
Amor Vincit Omnia - Drain me
Grace Ives - Stupid Bitches
Wet Leg - Mangetout (the Dare Remix )
Robyn - Talk to me
Qveen Herby - The Fool
Geoblu - Wait
Hichkas - Rooye Jenazat Mira
Kase O - Pavos Reales
Rósalía, Björk - Berghain ( Conrad Taylor Remix )
Sassy 009 - Edges
Fred Again - Ok Ok Hamdi remix
idontcare - Se organize
Gyða Valtýsdóttir - Checking in
Oxis - Piranha
hero.created - Cocoa
Of Monsters and men - Mouse Parade
Spennandi tónar bergmála um göngugötuna í Mjóddinni. Indírokk, alternative, lo-fi, dreampop og margt annað áhugavert. Verið velkomin í Mjóddina, þar sem hjartað slær.
Umsjón: Björn Þór Björnsson
Lagalisti:
Supersport - Allt fólkið í kringum mig
Requisit - Also With Each Other
Freak Heat Waves - Nothing Lasts Forever
Dråpe - French Canada
Clothesline From Hell - Truest Sound
King Tuff - Tell Me
Drugdealer & Kate Bollinger - Pictures of You
Hannah Cohen - Earthstar
Adrianne Lenker - Forwards Beckon Rebound
Cameron Winter - Nausicaa
BRONCHO - Sandman
Drengurinn Fengurinn - Grand Vitara myrti lamb
Cindy Lee - dreams of you
Mutual Benefit - Getting Gone
Angel Olsen - Unfucktheworld
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Joey Christ lýkur hér plötuþríleik sem hófst með gríðarlegum vinsældum árið 2017. Joey 3 er sögð vera hans persónulegasta verk til þessa. Á meðan fyrri plöturnar einkenndust af krafti næturlífsins, er þessi plata afrakstur þroska og sjálfsskoðunar. Joey stígur hér fram sem reyndari listamaður og tónlistarframleiðandi sem þarf ekki lengur að hækka róstuna til að láta heyra í sér. Við setjumst niður og ræðum ferilinn en hlustum líka á plötuna alla með kynningum.