Í þættinum er dreginn fram samanburður á verkum eftir Halldór Laxness og prentuðum heimildum um Jökuldalsheiði frá svipuðu tímaskeiði.
Hjörtur Pálsson les nokkra kafla úr Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness: Heimkoman, Útirauðsmýri, Dagur, Gæðingurinn og Hundurinn og sál o.fl.
Guðrún Birna Hannesdóttir les úr Völuskjóðu eftir Guðfinnu Þorsteinsdóttur (Erlu).
Baldvin Halldórsson les úr Tímariti Máls og menningar 1955 - Heiðin, bókmenntagrein eftir Peter Hallberg.
Rúrik Haraldsson les kaflann Pólitísk sápa úr Ævisögu Benedikts Gíslasonar frá Hoftegi.
Umsjón: Gunnar Valdimarsson
Þátturinn var fyrst á dagskrá 24. júlí 1977.