Í þættinum er dreginn fram samanburður á verkum eftir Halldór Laxness og prentuðum heimildum um Jökuldalsheiði frá svipuðu tímaskeiði.
Sigþór Marinósson les kaflann Skammdegisnótt í Jökuldalsheiði úr Dagleið á fjöllum eftir Halldór Laxness.
Hjörtur Pálsson les kaflana: Þurkur, Stórviðburðir, Bygging, Skógarför og Gesturinn úr Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness.
Klemenz Jónsson les kaflana Búskapur minn á Jökuldalsheiði og Silungsveiðin úr bókinni
Frá Valdastöðum til Veturhúsa eftir Björn Jóhannsson.
Guðrún Birna Hannesdóttir les kaflann Möðrudalsþátt úr bókinni Á fjalla og dalaslóðum eftir Pál Guðmundsson.
Umsjón: Gunnar Valdimarsson
Þátturinn var fyrst á dagskrá 10. júlí 1977.