14:03
Á tónsviðinu
György Kurtág 100 ára

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Þátturinn er tileinkaður ungverska tónskáldinu György Kurtág sem heldur upp á 100 ára afmæli sitt 19. febrúar. Kurtág fæddist í Rúmeníu árið 1926, en foreldrar hans voru ungverskir og hann hefur búið í Ungverjalandi frá árinu 1946. Hann er eitt af merkustu tónskáldum samtímans og hefur samið verk af ýmsu tagi, bæði hljóðfæraverk og söngverk. Í þættinum verða flutt stutt píanóverk úr safninu "Leikir" eftir Kurtág, einnig verður leikinn Þáttur fyrir víólu og hljómsveit og flutt verða 16 sönglög úr söngvaflokknum "Kafka-fragmente" sem Kurtág samdi við texta eftir Franz Kafka. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Kristján Guðjónsson og Melkorka Ólafsdóttir.

Er aðgengilegt til 20. maí 2026.
Lengd: 50 mín.
,