10:15
Hver sprengdi hafmeyjuna?
Þriðji þáttur: Vanskaplingurinn í Tjörninni

Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í þessari sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum.

Hvað gerðist eftir sprenginguna og hverjir tjáðu sig í ræðu og riti? Voru þetta strákapör eða þaulskipulagður verknaður? Hvað segja málfræðingur og listfræðingar um yfirlýsingu meints geranda og af hverju fjaraði rannsóknin út? Við sögu koma Jón Pétursson sem var fyrstur á vettvang glæpsins, Ásmundur Sveinsson og Ragnar í Smára.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 40 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,