12:40
Heimskviður
265 - Úkraínumenn leiðandi í hergagnaiðnaði og aðstoðaði norskt símafyrirtæki herforingjastjórnina í Mjanmar?

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Norski fjarskiptarisinn Telenor er í vandræðum. Lögreglan gerði húsleit í höfuðstöðvum þess vegna gruns um hlutdeild í glæpum gegn mannkyni með því að láta herforingjastjórninni í Mjanmar í té upplýsingar um viðskiptavini þar eftir valdarán hersins árið 2021. Leiðtogi landsins fyrir valdaránið var meðal þessara viðskiptavina. Fyrirtækið segist ekki hafa átt annarra kosta völ, en mannréttindasamtök eru því ekki sammála. Hallgrímur Indriðason kynnti sér þetta áhugaverða mál, og ræddi einnig við forsprakka einna þessara samtaka sem gagnrýna Telenor.

Valerí Salúsný, sendiherra Úkraínu í Bretlandi og fyrrum yfirmaður Úkraínuhers, lét þau orð falla að Úkraína væri langt á undan NATO-ríkjum í nýjungum í hernaði. Innan NATO væri einblínt á hugmyndafræði seinni heimsstyrjaldar og menn þar svifaseinir að tileinka sér nýjungar. Því væri ólíklegt að Úkraína ætti nokkurn tíma eftir að ganga þangað inn. Tíminn verður að leiða í ljós hvort Úkraína gangi einn daginn í NATO, en við ætlum nú að kynna okkur nýsköpun Úkraínumanna í hernaði, sem hefur verið töluverð síðan Rússlandsher hóf allsherjarinnrás í landið 2022. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 39 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,