12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 3. október 2026

Útvarpsfréttir.

Fjölmennt viðbragðslið, meðal annars björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar, er á leið á Jökuldal vestur af Egilsstöðum vegna umferðarslyss sem varð þar á tólfta tímanum. Fjórir bílar lentu í slysinu og óvíst er hversu margir eru slasaðir og hversu alvarlega.

Húsnæðismarkaðnum er mótmælt í meira 50 borgum og bæjum á Spáni í dag. Tillögur ríkisstjórnarinnar um að leysa húsnæðiskreppuna voru felldar á spænska þinginu í gær.

Langtímaatvinnuleysi er að aukast, segir forseti ASÍ sem telur stýrivexti Seðlabankans koma niður á samfélaginu öllu. Formaður efnahags- og atvinnuveganefndar segir mikilvægt að stefna áfram að hallalausum ríkisrekstri og styðja við peningastefnuna.

Flugmaður FlyDubai réðst á flugstjóra í miðju flugi með exi og ætlaði að fremja hryðjuverk. Þetta segir saksóknari í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem rannsakar málið.

Menningarmálaráðherra segir ekki viðeigandi að hann lýsi skoðun sinni á því hvort Ísland eigi að taka þátt í Eurovision og skipti sér þannig af dagskrárgerð RÚV.

Rauði krossinn um land allt æfir í dag viðbragð við því ef rafmagn færi af öllu Íslandi. Í höfuðstöðvum Rauða krossins er búið að koma upp fjöldahjálparstöð í æfingarskyni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 20 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,