09:03
Fram og til baka
Ragnar Jónasson, lönd og leyndardómar

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

glæpasagnahöfundurinn Ragnar Jónasson hefur náð frábærum árangri heima og heiman og selt ótrúlegan fjölda af bókum. Þessum ferli hafa fylgt ferðalög og Ragnar segir hlustendum Fram og til baka af fimm löndum sem hafa haft áhrif á hann og líf hans. Þar kennir sannarlega margra grasa þegar við förum frá Bútan til Seychelles eyja með viðkomu í heimalandi Agöthu Christie

Í síðari hlutanum hyllum við afmælisbarnið Jake Shears og heyrum sögu glyshljomsveitarinnar Scissor Sisters.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 1 klst. 57 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,