12:42
Þetta helst
Sjálfsákvörðunarréttur fólks með þroskahömlun - seinni þáttur

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Er hægt að banna fólki með þroskahömlun að taka ákvarðanir sem geta valdið því skaða? Um þetta er fjallað í þætti dagsins en þar er rætt við Guðmund Ármann Pétursson, formann Þroskahjálpar, og Guðrúnu Valgerði Stefánsdóttur, prófessor emiritus í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands. Einnig er rætt um Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og stöðuna í réttindabaráttu Þroskahjálpar sem í ár fagnar 50 ára afmæli.

Í þætti gærdagsins sagði Ásta María Jensen frá syni sínum sem hefur þyngst mikið eftir að hann flutti frá henni. Starfsfólk í þjónustukjarnanum sem hann býr í vísí í reglur sem kveði á um sjálfsákvörðunarrétt hans og því myndi það teljast nauðung að banna honum að borða meiri mat.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 16 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,