Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Skúli Helgason borgarfulltrúi Samfylkingarinnar vill að spretthópur verði skipaður til að skoða hvernig hægt sé að koma til móts við listamennina sem eru að missa rýmin sín vegna leigusamninga sem borgin hefur sagt upp. Málið var tekið fyrir á fundi menningarráðs Reykjavíkur í hádeginu í dag. Skúli kom til okkar og sagði okkur nánar frá tillögunni.
Flokkur fólksins tekur í handbremsuna. Þetta skrifaði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra í aðsendri grein á Vísi þar sem hann fjallar um nýja reglugerð um leigubifreiðaþjónustu sem er ætlað að efla eftirlit með faginu. Meðal breytinga sem hafa þegar tekið gildi er að próftaka fer fram án utanaðkomandi aðstoðar og ítarlegri kröfur eru gerðar um framsetningu á verðskrá og sýnileika leyfisskírteina í leigubílum. Ráðherra var á línunni.
Á morgun opnar Hlemmur.haus dyr sínar fyrir almenningi í húsnæði sem hýsti áður Tryggingastofnun við Laugaveg. Punktur haus er stærsta skapandi samfélag Íslands og rekur tvær skapandi miðstöðvar í miðborg Reykjavíkur með samtals yfir 6.500 fermetra af sameiginlegri vinnuaðstöðu fyrir meira en 500 meðlimi. Við fengum Maddý Hauth framkvæmdastýru Hlemmur.Haus til okkar.
Hjólaskautafélag Íslands er 15 ára um þessar mundir. Innan þess er félagið Ragnarök sem stundar svokallað Roller derby. Á morgun keppa þær við tvö erlend lið í íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði, við lið frá Þýskalandi og Englandi. Í boði verður heill dagur af hjólaskautaati. Kolfinna Jónsdóttir og Guðný Jónsdóttir fræddu okkur um félagið og hljólaskautaat helgarinnar.
Einar Geir Þorsteinsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði, óttast að tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk, sem fyrirhugað er í bænum, verði einsleitt og félagslega einangrað frá nærsamfélaginu. Málið var tekið fyrir á bæjarstjórnarfundi í vikunni en Hafnarfjarðarbær hefur þegar hafið samstarf við Stólpa um uppbyggingu hverfisins. Einar mætti til okkar.
Og í lok þáttar komu þau Ingvar Þór Björnsson og Sigurlaug Margrét Jónasdóttir og sögðu okkur frá annars vegar efnistökum Vikulokanna í fyrramálið og hins vegar fjáröflunarþættinum á RÚV í kvöld fyrir Reykjalund.
