18:00
Kvöldfréttir útvarps
Spænska þingið felldi tillögur um umbætur í húsnæðismálum, gjaldtaka við Hornarfjörð, búsetuóskir og það sem er byggt, Hákon VIII ávarpar stórþingið

Fréttir

Fréttir

Spænska þingið felldi í dag tillögur ríkisstjórnarinnar um umbætur í húsnæðismálum. Niðurstaðan er mikið áfall fyrir stjórnina og eykur þrýsting á að boðað verði til kosninga fljótlega.

Íbúar á Hornafirði fengu margir svimandi háa reikninga í heimabanka sinn þegar gjaldtaka hófst fyrir nýja hringveginn um Hornafjörð. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir mistök hafa verið gerð sem verði leiðrétt.

Samkvæmt könnun HMS vilja einungis 8% búa í stórum fjölbýlishúsum, en um 80% af húsnæði í byggingu á höfuðborgarsvæðinu með 17 íbúðum eða fleiri.

Í ræðu sinni við setningu norska stórþingsins sagði Hákon Noregskonungur að Noregur, og Evrópa öll, stæði frammi fyrir alvarlegustu öryggisógn frá lokum síðari heimsstyrjaldar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 10 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,