![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
Séra Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum ræðir í þessum þáttum við konur sem bjuggju á prestssetrum víðs vegar um landið á síðustu öld. Í viðtölum við konurnar sem flestar eru ekkjur presta, kemur fram mynd af íslenska dreifbýlinu um miðja 20. Öldina. Hægt er að nálgast þættina á hlaðvarpi Ríkisútvarpsins.
Rætt er við Sjöfn Jónsdóttur um ár foreldra hennar í Holti undir Eyjafjöllum.
Umsjón: Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum.
Aðstoð við dagskrárgerð Ævar Kjartansson.
Stef þáttarins er Sælir eru þeir eftir Inga T. Lárusson, leikið af Kristínu Axelsdóttur í Grímstungu á Hólsfjöllum.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Margir kannast við ljóð Jónasar Hallgrímssonar „Illur lækur" sem hefst á orðunum „Nú fór illa, móðir mín". Leikin verða lög við þetta ljóð eftir nokkur íslensk tónskáld. Þar á meðal er Atli Heimir Sveinsson, en lag hans er til í tveimur útgáfum, en Atli Heimir samdi fyrri útgáfu lagsins þegar hann var ekki nema 16 ára. Ljóð Jónasar er byggt á spænsku þjóðkvæði og í þættinum verður sagt frá rannsóknum Sveins Yngva Egilssonar, en honum tókst að finna spænska frumkvæðið eftir nokkra leit. Þegar það er skoðað kemur í ljós að kvæði Jónasar leynir á sér, við fyrstu sýn virðist það vera saga um litla stelpu sem bleytir kjólinn sinn í læknum, en í rauninni hefur ljóðið tvíræða merkingu. Einnig verður flutt hljómsveitarsvíta Páls Ísólfssonar „Úr myndabók Jónasar Hallgrímssonar", en hún kom nýlega út á geislaplötu hjá Chandos. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Anna Marsibil Clausen og Snorri Rafn Hallsson.
Fólk og menning í strandbyggðum á Íslandi.
Umsjón: Pétur Halldórsson.
Rætt er við Jón Björnsson sjómann á Borgarfirði, sem man þar tímana tvenna, var til sjós en vann líka við bátasmíðar. En stundum gaf ekki á sjó og stundum voru lausar stundir. Þá var spilaður lomber. Jón var í annáluðum lomberklúbbi á Borgarfirði og spilaði með nokkrum öðrum. Hann segir frá klúbbi fjögurra lomberspilara sem stundum sátu við spilin kvöld eftir kvöld. Einnig er rætt við Jón Sigmarsson, rekur sauðfjárbú sitt með um fimm hundruð fjár en er líka formaður á litlum fiskibáti, ekki ósvipað því sem var á árum og öldum áður þegar vel megandi menn, oftast bændur, áttu bátinn en réðu til sín formann og aðra áhöfn. Jón Sigmarsson er alinn upp á Desjarmýri en fór fyrst til sjós sextán ára gamall. Umsjón: Pétur Halldórsson.
![Veðurfregnir](/spilari/DarkGray_image.png)
Veðurstofa Íslands.
Fyrir 20 árum lét Atli Fannar Bjarkason sig dreyma um að starfa á fjölmiðlum. Hann flutti til Reykjavíkur með báðar hendur tómar og fékk tækifæri til að skrifa í dagblöð, ritstýra tímaritinu Monitor og koma fram í útvarpi og sjónvarpi. Hann flutti líka fréttainnslög í Vikunni með Gísla Marteini og stofnaði sinn eigin fjölmiðil, Nútímann sem hann tengist ekkert í dag.
Draumurinn rættist sem sagt en þegar hann horfir til baka sér hann að á þessum tíma hafi hann oft verið með bölvuð leiðindi við fólk sem átti það ekkert endilega skilið. Í þessum þáttum hittir hann þetta fólk og leggur spilin á borðið.
Umsjón: Atli Fannar Bjarkason.
Það er óhætt að segja að samband Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og þeirra fjölmiðla sem hann átti á sínum tíma hafi verið flókið. Árið 2009 hóf ég störf hjá Fréttablaðinu og í fyrstu vikunni minni í starfi tókst mér að fara verulega í taugarnar á honum með færslu á Facebook. Við Jón Ásgeir höfum aldrei talað saman um skrifin sem urðu til þess að hann vildi að ég yrði rekinn. Þar til nú.
Guðsþjónusta.
Séra Jón Ómar Gunnarsson predikar og þjónar fyrir altari.
Organisti og stjórnandi: Arnhildur Valgarðsdóttir.
Kór Fella- og Hólakirkju syngur.
Fiðluleikur: Matthías Stefánsson.
Fyrir predikun:
Forspil: Með bæninni kemur ljósið. Írskt þjóðlag. Texti: Páll Óskar og Brynhildur Björnsdóttir.
Sálmur 738: Ég trúi og til þín flý. Lag: Gísli Magna Sigríðarson. Texti: Ólína Andrésdóttir.
Sálmur 136: Nú hljómi lofsöngslag. Lag: Jacob Regnart. Texti: Bjarni Jónsson.
149: Nú máttu María ekki gráta. Lag: Þorkell Sigurbjörnsson. Texti: Ylva Eggehorn. Íslenskur texti: Sigurbjörn Einarsson.
Næturljóð úr fjörðum. Lag og texti: Böðvar Guðmundsson.
Eftir predikun:
Sálmur 146: Fullar hendur af blómum þú hefur. Lag: Marcello Gombini. Texti: Lilja S. Kristjánsdóttir.
Sálmur 156: Ég á mér hirði hér á jörð. Lag: Jessie S. Irvine. Texti: Svavar A Jónsson / Davíðssálmur 23.
Eftirspil: Orgel- og fiðluleikur.
Útvarpsfréttir.
Sakborningar í manndrápsmálinu sem upp kom á Suðurlandi í gær hafa í morgun verið leiddir fyrir dómara á Selfossi þar sem farið er fram á gæsluvarðhald yfir þeim.
Zelensky Úkraínuforseti þakkar Bandaríkjamönnum fyrir þann fjárhagsstuðning sem fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöld. Hann segir ákvörðunina bjarga fjölda mannslífa.
Stærsti jarðskjálftinn í Bárðarbungu frá því eldgosinu í Holuhrauni lauk 2015 reið yfir í morgun. Fólk á Norðurlandi fann fyrir hristingnum.
Starfsmenn vinnustaðar á Þórshöfn og fólk sem sótti fjölmenningarhátíð á Vopnafirði síðustu helgi er beðið um að vera vakandi fyrir mislingaeinkennum næstu þrjár vikur. Einstaklingur á miðjum aldri er með staðfest smit og grunur er um annað.
Varað er við hvössum vindhviðum á Norðurlandi í dag og varasömu ferðaveðri. Gular viðvaranir eru í gildi.
Heilbrigðisráðherra hefur boðað fulltrúa félags íslenskra heimilislækna á fund á þriðjudag vegna gagnrýni lækna á mikilli pappírsvinnu sem kemur niður á tíma þeirra með skjólstæðingum.
Sinfóníuhljómsveit Austurlands frumflytur í dag nýtt tónverk sem var sérsamið fyrir hljómsveitina. Uppátækjasamur sundlaugarvörður á Egilsstöðum samdi verkið en hann er reyndar líka doktor í tónsmíðum og hámenntaður víoluleikari.
Keppni hefst í Bestu deild kvenna í fótbolta í dag, þegar Íslandsmeistarar Vals taka á móti Þór/KA.
Átta þættir um kalda stríðið sem Páll Heiðar Jónsson og Dagur Þorleifsson gerðu á árunum 1987 til 1988.
Umsjón: Páll Heiðar Jónsson og Dagur Þorleifsson.
Ýmislegt þýskt efni um loftbrúna til Berlínar úr dagskrá Hans Ulrich Engel um það efni.
Umsjónarmenn flytja meginmál þáttarins en auk þess komu fram:
Sir John Killick fyrrverandi sendiherra í Moskvu og hjá NATO.
Sir Alec Douglas Home, fyrrum forsætisráðherra.
Sir Frank Roberts fyrrverandi sendiherra í Moskvu hjá NATO.
Dieter Fuss blaðamaður í Munchen
Hermann Höcherl fyrrum innanríkisráðherra
Lestur: Þröstur Leó Gunnarsson, Þorgeir Ólafsson, Einar Kristjánsson, Kristján Franklín Magnúss og Gunnar Stefánsson.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Tónhjólið
21. apríl 2024
Umsjón; Guðni Tómasson
Í Tóonhjólinu þessa vikuna koma m.a. fyrir Lise Davidsen, Shabaka og Peter Eötvös.
Tónlistin í þættinum:
- Lise Davidsen syngur Morgen! úr Fjórum söngvum op. 27 eftir Richard Strauss. Fílharmoníusveitin í Lundúnum leikur undir stjórn Esa-Pekka Salonen.
- Shabaka og hljómsveit hans leika þrjú lög af plötunni Perceive Its Beauty, Acknowledge Its Grace. Lögin eru: End of Innocence, Insecurities og Breathing.
- Kim Kashkashian leikur einleik á víólu í verkinu Replica eftir Peter Eötvös. Kammersveit Hollenska útvarpsins leikur undir stjórn tónskáldsins.
- András Schiff og Bruno Canino á píanó og Zoltan Rácz,og Zoltan Váczi á slagverk leika þirðja kafla (Allegro non troppo) úr Sónötu fyrir tvö píanó og slagverk eftir Bela Bartók.
- Ágúst Davíð Steinarsson (fimmtán ára 2022) - Vals í c-moll op. 1 - Verk sem varð til í tónsmíðða verkefninu Upptaktinum árið 2022. Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir á fiðlu, Kristján Hrannar Pálsson á píanó, Baldvin Ingvar Tryggvason á klarinett og Gunnlaugur Torfi Stefánsson á bassa.
- Lise Davidsen syngur Im Abendrot úr Vier letzte lieder eftir Richard Strauss. Fílharmoníusveitin í Lundúnum leikur undir stjórn Esa-Pekka Salonen.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir, Atli Sigþórsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Stafsetningin á bókum Halldórs Laxness þykir mörgum erfið. Hún hefur verið talin handahófskennd og órökrétt en Halldór sýndi fram á hið gagnstæða í greininni Málið sem birtist í Tímariti Máls og menningar 1941.
Kvöldfréttir útvarps
Fjórir menn sem voru handteknir vegna rannsóknar á manndrápsmáli í sumarbústað á Suðurlandi voru í dag úrskurðaðir í gæsluvarðhald og einangrun.
Tugir líka hafa fundist í fjöldagröfum í nágrenni sjúkrahúss í Khan Younis. Yfirvöld á Gaza kenna Ísraelsher um að hafa pyntað og drepið fólkið. Ísraelsher segist rannsaka málið.
Bæjarstjóri Ölfuss segir sveitarfélagið vel í stakk búið að taka á móti Grindvíkingum. Þeir njóta nú forgangs í íbúðalóðakaupum í nýju hverfi í Þorlákshöfn.
Nýr forsætisráðherra ætlar að halda áfram vinnu við stjórnarskrárbreytingar og stefnir á að setja fram frumvarp þess efnis, inn í þingið, fyrir árslok.
Í þáttunum rannsökum við reiðina, hvernig hún birtist og hvernig eigi að túlka hana. Er reiðin alltaf slæm, getur hún gert gott og verður pláss fyrir reiði í framtíðarsamfélaginu?
Umsjón: Rósa María Hjörvar.
Í þessum þætti ræðum við um reiðistjórnun. Í hverju hún felst, hvernig hugmyndir um hana hafa þróast og hvernig reiðistjórnun er notuð í dag.
![Veðurfregnir](/spilari/DarkGray_image.png)
Veðurstofa Íslands.
Þátturinn fjallar um Írland. Umsjónarmaður ræðir við Donnchadah O'Corrain, prófessor í sagnfræði við University College í Cork um Írland fyrir tíma víkinganna og breytingar við komu þeirra. Einnig er rætt við Patrick Wallace, þjóðminjavörð Íra, um uppgröft í Dyflinni 1961-81 og hverju hann bætti við sögu Írlands.
Umsjón: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir.
Í þættinum er fjallað um norræna menn í Normandí. Umsjónarmaður ræðir við norrænufræðingana Regis Boyer og Jean Renaud .
Lesari með umsjónarmanni er Ingvar E. Sigurðsson.
Umsjón: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir.
Frá 1994.
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Bergrún Andradóttir, skrifstofustýra hjá Samtökunum 78. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Bergrún talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Bath Haus e. P.J. Vernon
Inverse Cowgirl e. Alicia Roth Weigel
One Last Stop e. Casey McQuiston
Girls Can Kiss Now e. Jill Gutowitz
Light from Uncommon Stars e. Ryka Aoki
Mávahlátur e. Kristínu Marju Baldursdóttur
Þórarinn Björnsson kennari fer víða og spjallar við fólk.
Þórarinn Björnsson heimsækir Þórnýju Þórarinsdóttur Kennara.
Þórný heldur áfram að rekja minningar sínar. Þau Haukur Eiríksson gifta sig 30. ágúst 1951 og eignast sitt fyrsta barn. Fyrstu hjúskaparárin búa þau á Akureyri og flytja síðar til Reykjavíkur. Og sagan heldur áfram...
Tónlistin í þáttunum um líf og ævi Þórnýjar, er flutt og leikin af sonum hennar, Haraldi, Eiríki og Hauki. Lokalagið syngur eiginmaður hennar, Haukur Eiríksson, sem lést árið 1963
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga.
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn: segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga.
Hljómsveitin Sucks to be you Nigel hefur getið sér gott orð í íslensku samfélagi síðastliðin 3 ár en síðan þá hafa margir reynt að finna út hver þessi Nigel er. Á reiki eru margar mismunandi sögur en í þessum þætti verður hljómsveitin krafin svara í einkaviðtölum og vonandi verður komist til botns í því hver þessi dularfulli Nigel er.
Viðmælendur: Vigfús Eiríksson, Ernir Ómarsson, Krummi Uggason og Silja Rún Högnadóttir.
Umsjón: Tryggvi Jóhönnuson Thayer.
![Veðurfregnir](/spilari/DarkGray_image.png)
Veðurstofa Íslands.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-04-15
Voces 8 - Atomos XI (Arr. Lawson).
Delgani String Quartet - String quaret No.6 W.399 : I. Poco animato.
Delgani String Quartet - String quaret No.6 W.399 : II. Allegretto.
Delgani String Quartet - String quaret No.6 W.399 : III. Andante, quasi adagio.
Delgani String Quartet - String quaret No.6 W.399 : IV. Allegro vivace.
Skólakór Kársness - Salutatio Mariae.
Jónas Ásgeir Ásgeirsson - Accordion concerto (2020) : I. A dream about flying.
Jónas Ásgeir Ásgeirsson - Accordion concerto (2020) : II. One and a.
Jónas Ásgeir Ásgeirsson - Accordion concerto (2020) : III. Thread / Longed For.
Jónas Ásgeir Ásgeirsson - Accordion concerto (2020) : IV. Two and A.
Jónas Ásgeir Ásgeirsson - Accordion concerto (2020) : V. Bontempi?s Ghost.
Jónas Ásgeir Ásgeirsson - Accordion concerto (2020) : VI. Three and A.
Jónas Ásgeir Ásgeirsson - Accordion concerto (2020) : VII. Et cetera.
New York Philharmonic - Dansa brasileira.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hér víkur sögu eins og stundum áður til Úkraínumannsins Viktors Kravténkos og sjálfsævisögu hans, Ég kaus frelsið. Þegar þarna er komið sögu á 4. áratug 20. aldar er Kravténko óðum að komast í röð hinnar kommúnísku yfirstéttar í Sovétríkjunum, en honum er þó ekki að öllu leyti rótt. Þegar hann kynnist konu að nafni Jelana renna enn á hann nokkrar grímur.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Það hefur verið venjan í þáttunum hingað til að ræða fyrirbæri eða hluti sem er kannski auðvelt að festa fingur á hvað eru nákvæmlega. Eða hvernig þeir eru skilgreindir. Flugvélar, bensín, vegakerfið og þar fram eftir götunum. Í þetta skiptið breytum við aðeins til og skoðum aðeins lífsstíl. Þó það sé ekki einu sinni gott orð til að lýsa efni þáttarins heldur. Ég þarf nefnilega að segja eina sögu áður en við byrjum á þættinum. Þannig er mál með vexti að ég var að labba heim til mín að kvöldi til fyrir einhverju siðan, og kem þá að gönguljósum. Við erum tveir öðru megin og hinu megin við okkur bíður blindur maður með hund með sér. Ég hafði gert þú veist betur þátt um umferðaljós en áttaði mig á því þarna að ég hafði aldrei séð virkni þeirra áður. Ég fylgdist því með ferlinu, bæði af forvitni og einhverjum áhyggjum. Ég ímyndaði mér hversu óþægilegt það væri fyrir mig að labba yfir umferðargötu með lokuð augun. Þegar allir voru komnir yfir götuna þurfti ég samt að tékka mig smá af, af hverju var ég svona áhyggjufullur? Var ég hugsanlega að nálgast þetta allt saman frá stað sem einkennist fyrst og fremst af vanþekkingu. Ég ákvað þá að reyna að læra meira og fræðast um það hvernig það er að vera blind eða blindur og var svo heppinn að fá tvo viðmælendur til mín, þau Ivu og Þorkel, sem voru tilbúin til að ræða þetta allt saman með mér, sem var svo áhugavert og skemmtilegt að ég átti ekki annan kost en að hafa þættina tvo,þannig að það er framhald væntanlegt eftir viku. Þess má geta að það kom svo í ljós að sá sem ég fylgdist með ganga yfir götuna var einmitt Þorkell, svo þetta hafði allt fallega tengingu. Ég lærði heilan helling af þessu samtali sem ég leyfi að flæða bara í gegnum þáttinn án þess að brjóta það neitt sérstaklega upp, en við byrjum eins og alltaf á kynningu frá viðmælendunum sjálfum áður en við förum í sögu þeirra beggja.
Jón eigrar um akra tónlistarinnar, léttstígur og viljugur með skemmtilega fróðleiksmola í farteskinu.
Íslensk tónlist spilar yfirleitt stórt hlutverk. Þægilegur og laufléttur morgunþáttur í umsjón frumherja Rásar 2.
Umsjón: Jón Ólafsson
Tíðindalítið af vesturvígstöðvunum svo sem en þó skyldi ekki vanmeta öll þessi góðu lög sem fengu að óma, hlustendum til hagsældar. Bandaríska tónlistarkonan Iris DeMent fékk stutta kynningu sem og tónlist hennar. Það sama má segja um aðra sólóplötu Jóhanns G. Jóhannssonar, Mannlíf, sem kom út árið 1976. Stutt og laggóð kynning á fínni plötu.
Útvarpsfréttir.
Sakborningar í manndrápsmálinu sem upp kom á Suðurlandi í gær hafa í morgun verið leiddir fyrir dómara á Selfossi þar sem farið er fram á gæsluvarðhald yfir þeim.
Zelensky Úkraínuforseti þakkar Bandaríkjamönnum fyrir þann fjárhagsstuðning sem fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöld. Hann segir ákvörðunina bjarga fjölda mannslífa.
Stærsti jarðskjálftinn í Bárðarbungu frá því eldgosinu í Holuhrauni lauk 2015 reið yfir í morgun. Fólk á Norðurlandi fann fyrir hristingnum.
Starfsmenn vinnustaðar á Þórshöfn og fólk sem sótti fjölmenningarhátíð á Vopnafirði síðustu helgi er beðið um að vera vakandi fyrir mislingaeinkennum næstu þrjár vikur. Einstaklingur á miðjum aldri er með staðfest smit og grunur er um annað.
Varað er við hvössum vindhviðum á Norðurlandi í dag og varasömu ferðaveðri. Gular viðvaranir eru í gildi.
Heilbrigðisráðherra hefur boðað fulltrúa félags íslenskra heimilislækna á fund á þriðjudag vegna gagnrýni lækna á mikilli pappírsvinnu sem kemur niður á tíma þeirra með skjólstæðingum.
Sinfóníuhljómsveit Austurlands frumflytur í dag nýtt tónverk sem var sérsamið fyrir hljómsveitina. Uppátækjasamur sundlaugarvörður á Egilsstöðum samdi verkið en hann er reyndar líka doktor í tónsmíðum og hámenntaður víoluleikari.
Keppni hefst í Bestu deild kvenna í fótbolta í dag, þegar Íslandsmeistarar Vals taka á móti Þór/KA.
Rúnar Róberts í huggulegum helgargír og spyr hvernig var helgin og hvernig verður vikan framundan?
Við heyrðum topplagið í Bandaríkjunum á þessum degi, 21. apríl árið 1982, sem var lagið I love rock and roll með Joan Jett & Blackhearts. Eitís plata vikunnar var It's my life frá 1984 með Talk Talk. Nýjan ellismell vikunnar átti Prince með lagið United states of division. Þá var Eitís 12 tomma vikunnar lagið The sun always shines on TV (Extended version) með A-ha. Þá var viðtal við Kathy Slegde en hún er að koma til landsins með hljómsveit og spilar í Hörpu 9. ágúst nk.
Lagalisti:
14:00
Sálin hans Jóns míns og Pétur Kristjánsson - Krókurinn
U2 - Sweetest Thing
Stjórnin - Sumarlag
Joan Jett & Blackhearts - I Love Rock'n'roll (Topplagið í Bandaríkjunum 1982)
GDRN - Þú sagðir
Sister Sledge - He's the greatest dancer
Sister Sledge - Thinking Of You
A-Ha - The Sun Always Shines On T.V. (Extended Version) (Eitís 12" vikunnar)
Á móti sól - Okkur líður samt vel
15:00
Kaleo - Lonely Cowboy
ABC - The Look of Love
Talk Talk - It's My Life (Eitís plata vikunnar)
Talk Talk - Such a shame (Eitís plata vikunnar)
Big Country - Wonderland
Olivia Rodrigo - Obsessed
Hall & Oates - Out Of Touch
Joe Cocker - Summer in the city
Prince - United States Of Division (Nýr ellismellur vikunnar)
Bee Gees - Too Much Heaven
Fra Lippo Lippi - Shouldn't have to be like that
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.
Kvöldfréttir útvarps
Fjórir menn sem voru handteknir vegna rannsóknar á manndrápsmáli í sumarbústað á Suðurlandi voru í dag úrskurðaðir í gæsluvarðhald og einangrun.
Tugir líka hafa fundist í fjöldagröfum í nágrenni sjúkrahúss í Khan Younis. Yfirvöld á Gaza kenna Ísraelsher um að hafa pyntað og drepið fólkið. Ísraelsher segist rannsaka málið.
Bæjarstjóri Ölfuss segir sveitarfélagið vel í stakk búið að taka á móti Grindvíkingum. Þeir njóta nú forgangs í íbúðalóðakaupum í nýju hverfi í Þorlákshöfn.
Nýr forsætisráðherra ætlar að halda áfram vinnu við stjórnarskrárbreytingar og stefnir á að setja fram frumvarp þess efnis, inn í þingið, fyrir árslok.
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 14. - 21. apríl 2024.
![Sjónvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Fréttastofa RÚV.
Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Dikta þakkar fyrir sig, Baggalútur fer á slóðir Vestur-Íslendinga, Eberg tekur eitt skref í einu og Feldberg dúettinn slær í gegn. Hafdís Huld syngur um franskan ofurhuga, Elíza Newman tekur upp í London, hljómsveitin Leaves fær sparkið og gerist plötuútgefandi og Ívar Bjarklind er með nesti og nýja skó. Hljómsveitin Ske gefur út sína þriðju breiðskífu, Snorri Helgason fer í sóló, Bloodgroup þyngir hljóminn og Gus Gus er að allan sólarhringinn. Stjörnubjartur drengur fær Liljurós frá Ellen Kristjáns og Pétri Ben, Þórunn Antonía syngur Velvet Underground með Beck og þetta reddast allt hjá Björgvini Halldórssyni.
Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
Meðal viðmælenda í 39. þættinum, í öðrum hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2009, eru Haukur Heiðar Hauksson, Þorkell Máni Pétursson, Bragi Valdimar Skúlason, Hafdís Huld Þrastardóttir, Bjarki Sigurðsson, Daði Birgisson, Frank Hall, Guðmundur Steingrímsson, Höskuldur Ólafsson, Elíza Newman, Snorri Helgason, Ívar Bjarklind, Einar Tönsberg, Birgir Þórarinsson, Daníel Ágúst Haraldsson, Janus Rasmussen, Hallur Kr. Jónsson, Arnar Guðjónsson, Ellen Kristjánsdóttir, Pétur Þór Benediktsson, Þórunn Antonía Magnúsdóttir, Björgvin Halldórsson, Hannes Friðbjarnarson, Pétur Örn Guðmundsson og Páll Óskar Hjálmtýsson.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Lagalisti:
Dikta - Just Getting Started
Dikta - From Now On
Dikta - Let Go
Dikta - Thank You
Dikta - Goodbye
Dikta - Hotel Feelings (eða Let Go)
Baggalútur - Sólskinið í Dakota
Baggalútur og Gylfi Ægisson - Dansinn
Baggalútur og Megas - Æfintýr
Hafdís Huld - Synchronised Swimmers
Hafdís Huld - Kónguló
Hafdís Huld - Action Man
B.Sig - Evening Brakes / All Is Lost
B.Sig - Far Away
Ske - My Lo
Ske - You Can’t Help Me (We Are In This For Russia)
Ske - Know By Now
Elíza Newman - Ukulele Song (Pie In The Sky)
Elíza Newman - Hopeless Case
Elíza Newman - Hopeless Case
Snorri Helgason - Carol
Snorri Helgason - Mockingbird
Snorri Helgason - Freeze-out
Ívar Bjarklind - Fyrr en þig grunar
Ívar Bjarklind - Nesti og nýjir skór
Feldberg - Running Around
Feldberg - Don’t Be Stranger
Feldberg - Dreamin’
Eberg - One Step At The Time
Gus Gus - Add This Song
GusGus - Thin Ice
Bloodgroup - My Arms
Bloodgroup - This Heart
Leaves - Aeronaut
Leaves - All The Streets Are Gold
Ellen Kristjáns - Liljurós
Ellen Kristjáns - Stjörnubjarti drengur
Þórunn Antónía & Beck’s Record Club - All Tomorrow's Parties
Jack London - Self Drown Count
Jack London - Why Can’t We All
Jack London - Life Spin
Jet Black Joe - Jamming
Þorvaldur Davíð - Sumarsaga
Bjarni Hall - The Long Way Home
Sigurjón Brink - Brosið þitt lýsir mér leið
Gunnar Þórðarson & Buff - Íslands barn
Svavar Knútur ásamt Gunnari Þórðar - Ástarsæla
Gunnar Þórðarson - Nú blánar yfir berjamó
Rúnar Júlíusson - Ég þrái að lifa
Páll Óskar Hjálmtýrsson- Söngur um lífið
Fjölskylda Rúnars Júl - Það þarf fólk eins og þig