Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Sunna Dóra Möller flytur.
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Í byrjun þáttar var rifjað upp að fimmtíu ár eru í dag síðan landhelgi Íslands var færð út í 50 mílur.
Umfjöllun Guðrúnar Hálfdánardóttur um málefni útlendinga hélt áfram. Rætt var um atvinnu- og dvalarmál við Guðmund Inga Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, og þingkonurnar Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, Helgu Völu Helgadóttur og Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur.
Í Heimsglugga dagsinsins fjallaði Bogi Ágústsson m.a. um kosningabaráttu í Svíþjóð og Brasilíu og nýja vindmyllugarða í Norðursjó.
50 ár eru í dag síðan Bobby Fischer varð heimsmeistari í skák. Þá gaf Boris Spassky lokaskákina og þar með var ljóst að hann næði ekki Fischer að vinningum. Helgi Ólafsson stórmeistari rifjaði lokaskákina og aðrar upp og ræddi vítt og breitt um einvígið.
Tónlist:
Perhaps love - John Denver,
Í landhelginni - Haukur Morthens,
Autumn sun - Emilíana Torrini,
Landgrunnið allt - Ómar Ragnarsson.
Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Útvarpsfréttir.
Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Hinrik segist alltaf vera að segja sögur, bæði sem leikari og leiðsögumaður. Hann er að fara að standa á svið ÞJóðleikhússin í vetur í söngleiknum Sem á himni.
Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Útvarpsfréttir.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Fyrsti sérfræðingur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Jenný Ýr Jóhannsdóttir deildarstjóri hjá Lífeyrissjóði Verslunarmanna. Lífeyrismál snerta okkur öll, en ekki er víst að við vitum öll nógu mikið um þau, enda getur margt verið flókið hvað þeim viðkemur. Við gáfum hlustendum tækifæri að nýta sér sérfræðing í lífeyrismálum og fengum sendar talsvert margar spurningar sem Jenný Ýr gerði sitt besta til að svara í þættinum. Spurningarnar frá hlustendum voru m.a. tengdar skattamálum og lífeyri, erfðamál og lífeyri, viðbótarlífeyrissparnaði, tilgreindri séreign, mismunandi nýtingaleiðir og fleira og fleira.
Árið 2012 sendi tónlistarkonan Hafdís Huld frá sér plötuna Vögguvísur. Plötuna vann hún með eiginmanni sínum Alisdair Wright en hugmyndin að verkefninu kviknaði þegar þau áttu von á sínu fyrsta barni. Vögguvísur fékk strax góðar móttökur hjá börnum og foreldrum og nú, 10 árum síðar, hefur þessi hugljúfa plata náð tvöfaldri platínusölu og er orðin mest streymda íslenska platan á streymisveitum á hér á landi.Í tilefni af 10 ára afmæli Vögguvísna hafa Hafdís og Alisdair gefið út 5 nýjar vísur og Hafdís Huld kom í þáttinn og sagði okkur frá þeim og þessu mikla ævintýri sem velgengni plötunnar er.
Tónlist í þættinum í. dag:
Ættin mín / Ragnar Bjarnason og Bjarni Arason (Bjarni Hafþór Helgason)
María Ísabel / Helena Eyjólfsdóttir og Hljómsveit Ingimars Eydal (J. Moreno, L. Moreno og Ásta Sigurðardóttir)
Litla skott / Hafdís Huld Þrastardóttir (Hafdís Huld og Alisdair Wright)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON
Dánarfregnir.
Útvarpsfréttir.
Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Umsjón hefur Karl Frímannsson skólameistari Menntaskólans á Akureyri.
Íslenskt lag eða tónverk.
Útvarpsfréttir.
Yfir tvö þúsund og fimm hundruð hafa leitað hælis hér á landi það sem af er ári og hafa aldrei verið fleiri. Langflestir komu frá Úkraínu, meira en fimmtán hundruð. Félagsmálaráðherra vill að fleiri sveitarfélög taki á móti flóttafólki.
Skjólstæðingar sérgreinalækna greiddu fullt verð fyrir þjónustuna í morgun. Reglugerð um niðurgreiðslu rann út fyrir mistök. Formaður Læknafélags Íslands segir óþolandi að enn sé ósamið við sérgreinalækna.
Forstjóri Matvælastofnunar segir mikilvægt að aðgerðir vegna dýravelferðarmála haldi fyrir dómi. Rannsókn geti reynst erfið þegar eigendur dýra reyni að hindra hana. Tugum vanhirtra hrossa í hesthúsi við Borgarnes var komið undan í skjóli nætur.
Kínversk stjórnvöld fordæma nýja skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem þau eru sökuð um gróf brot á mannréttindum minnihlutahópa í Xinjiang.
Eftirlitssveit á vegum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar er komin í kjarnorkuverið í Zaporizhzhia í Úkraínu til að leggja mat á öryggi þess. Árásir voru gerðar í grennd við kjarnorkuverið í morgun.
Formaður Skotveiðifélags Íslands segir það mikil vonbrigði ef ekki megi veiða meira en sex rjúpur á mann í vetur, eins og Náttúrufræðistofnun leggur til. Hann bendir þó á að ástand rjúpunnar sé misgott eftir landshlutum.
Hálf öld er í dag frá lokum skákeinvígis Bobbys Fischers og Boris Spasskys í Laugardalshöll. Þennan dag gaf Spassky tuttugustu og fyrstu skák einvígisins og Fischer var nokkrum dögum síðar krýndur heimsmeistari.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Mjaldrasysturnar Litla Grá og Litla Hvít flytja ekki í sjókvína í Klettsvík í Vestmannaeyjum í ár, eftir að bátur sökk við kvína um miðjan ágúst. Flutningur mjaldranna úr sérstakri hvalalaug yfir í sjókvína hefur ítrekað tafist, en þrjú ár voru í sumar síðan mjaldrarnir fluttu til Íslands frá Kína. Þetta helst rekur sögu og ferðalag mjaldrasystranna, sem og annars og dularfyllri mjaldurs sem komst í heimsfréttirnar um svipað leyti og Litla Grá og Litla Hvít.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Ágúst Torfi Hauksson stjórnarformaður landssamtaka sláturleyfishafa og framkvæmdastjóri Kjarnafæði Norðlenska: Brátt verður fé rekið af fjalli, og flest þaðan og í sláturhúsin. Það er komin sláturtíð, rætt um afurðaverð og framboð, fallþunga dilka, mönnun í komandi vertíð og ýmislegt fleira.
Bandaríska alríkislögreglan rannsakar nú hvort, og í hvaða mæli, Donald Trump fyrrverandi forseti hélt eftir ýmsum skjölum tengdum embættinu eftir að hann hætti sem forseti. Birta Björnsdóttir fréttamaður ætlar að segja okkur frá rannsókn bandarísku alríkislögreglunnar sem bendir til þess að sum þessara skjala hafi verið háleynileg.
Ruslarabb
Finnur Ricart Andrason: Umhverfispistill um eyjur sem sökkva í sæ.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Henryk Wieniawski, sem fæddist í Lublin í Póllandi 1835, var einn af snjöllustu fiðluleikurum 19. aldar og samdi mikið fyrir hljóðfærið. Dóttir hans, Régine Wieniawski, sem fæddist 1879, var einnig tónskáld og samdi einkum tónsmíðar undir tveimur listamannsnöfnum: Irène Wieniawska og Poldowski. Í þættinum "Á tónsviðinu" fim. 1. sept. verður flutt tónlist eftir feðginin. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.
Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni hefur verið brennidepli frétta hér undanfarna daga. Sveitastjórn Bláskógarbyggðar hefur ákveðið að leigja ekki út land lengur fyrir byggðina og allir verði að pakka saman og fara. Það ríkir sorg hjá fólkinu sem hefur haft sína litlu húsvagna, sumir jafnvel á fimmta tug ára. Ég heimsótti byggðina á Flakkinu sumarið 2014 í blíðskapar veðri og heilsaði uppá fólk. Rætt er við Guðberg Ástráðsson þáverandi formann, íbúa í hjólhýsabyggðinni á Laugarvatni og Hrafnhildi Bjarnadóttur núverandi formann Samhjól.
Útvarpsfréttir.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Á krefjandi tímum er mikilvægt að halda í vonina, bjartsýnina og trúna á mannkynið, samtalið og umbreytingarmátt listarinnar. Nokkurnvegin svona er inntakið í Goethe morph, menningarviðburði fullum af sýningum og málstofum sem hefjast um helgina og fara fram í Norræna húsinu í samstarfi við Goethe Institut. Arnbjörg María Daníelsen, sýningarstjóri, segir frá fjölbreyttri dagskrá í Norræna húsinu næstu tvær vikurnar.
Í kvöld verður frumflutt í Gamla bíó ný íslensk ópera eftir gömlu ævintýri, Mærþöll. Þórunn Guðmundsdóttir er höfundur bæði tónlistar og libretto, en hún hefur skrifað fjölda leikrita, söngleikja og ópera síðustu ár. Tónverk eftir Þórunni verður líka frumflutt á tónleikum í Langholtskirkju næstkomandi sunnudag, sem Íslenski flautukórinn heldur utan um og haldnir eru í minningu flautuleikarans Hallfríðar Ólafsdóttur, sem lést fyrir réttum tveimur árum, langt fyrir aldur fram. Þórunn kemur í hljóðstofu og segir okkur frá óperunni og tónverkinu Hafblik.
Þegar best tekst til getur hausinn á lesandanum stækkað jafnmikið við að lesa eina örsögu eins og eina skáldsögu. Þessa tilvitnun í Elísabetu Jökulsdóttur er að finna í bók sem kom út í vikunni: Með flugur í höfðinu, sýnisbók íslenskra prósaljóða og örsagna 1922-2012. Safnritið er yfirlit um íslensk prósaljóð og örsögur, eftir tugi skálda sem hafa fengist við þessi heillandi en vandmeðförnu bókmenntaform. Kristín Guðrún Jónsdóttir, prófessor í spænsku, og Óskar Árni Óskarsson, skáld, önnuðust útgáfuna og eru gestir dagsins í Víðsjá.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Útvarpsfréttir.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir horfði á nýja raunveruleikaþætti úr smiðju Ketchup Creative. Þætti sem stæra sig af því að vera ekki með neinu handriti og sýna frá raunveruleika vinkvennahóps sem var myndaður í kringum #samstarf á samfélagsmiðlum.
Lestin kynnir sér tónlistarmanninn Húgó, huldumann sem hefur gefið út 3 lög en virðist vera vel úthugsuð markaðsherferð dulbúin sem tónlistarmaður.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Umsjón: Ásgeir Tómasson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Ríkisstjórnarflokkarnir missa meirihluta sinn, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Fylgi Samfylkingarinnar eykst mest og flokkurinn fengi fjórum þingmönnum fleiri nú en hann fékk í síðustu alþingiskosningum. Sjálfstæðisflokkur er enn stærstur en fylgið minnkar milli kannana. Bjarni Pétur Jónsson sagði frá.
Hluti eftirlitssveitar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar verður eftir í kjarnorkuverinu í Zaporizhzhia í Úkraínu til að tryggja öryggi þess og koma í veg fyrir kjarnorkuslys. Rafael Grossi, framkvæmdastjóri stofnunarinnar og leiðtogi sveitarinnar, greindi frá þessu að heimsókn lokinni í dag. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá.
Félagsmálaráðuneytið vinnur að samningum við þrjátíu sveitarfélög til viðbótar um samræmda móttöku flóttafólks sem léttir á álagi á sveitarfélögin sem hafa tekið á móti flestum hingað til, það er Reykjavík Hafnarfjörl og Reykjanesbæ. Eitt af þessum sveitarfélögum er Fljótsdalshérað. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir talaði við Guðmund Inga Guðbrandsson félagsmálaráðherra.
Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvetur Kínverja til að taka alvarlega þær upplýsingar sem birtust í nýrri skýrslu mannréttindaráðsins. Þar eru Kínverjar sakaðir um ofsóknir gegn Úígúrum og öðrum minnihlutahópum í Xinjiang-héraði.
Mikill minnihluti þolenda kynferðisofbeldis tilkynnir brotið til lögreglu. Þolendaskömm og vantrausti á lögreglunni er um að kenna. Þetta er meðal þess sem kom fram í viðtali Hafdísar Helgu Helgadóttur við Margréti Valdimarsdóttur og Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttur.
Ríkisendurskoðun ætlar að hefja frumkvæðisúttekt á eftirliti Matvælastofnunar með velferð dýra. Niðurstaða úttektarinnar verður birt í opinberri skýrslu til Alþingis. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá.
Raforkuverð heldur áfram að hækka í Noregi. Það kostar Norðmann af meðalskrokkstærð þúsund krónur íslenskar að fara í sturtu og fólk ekur í heimsóknir til nágranna til að hlaða rafbílinn þar. Gísli Kristjánsson, fréttaritari Osló sagði okkur af raforkumartröðum Norðmanna.
Útsýnispallurinn á Bolafjalli ofan Bolungavíkur var formlega opnaður í dag að viðstaddri allri ríkisstjórn landsins. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir ræddi við Jón Pál Hreinsson, bæjarstjóra í Bolungarvík.
Ævar vísindamaður setur allt milli himins og jarðar undir smásjána og rannsakar eins og honum einum er lagið. Fróðleikur og skemmtun fyrir forvitna krakka á öllum aldri.
Umsjón: Ævar Þór Benediktsson.
Í dag fær Ævar bestu vinkonu sína í heimsókn, hana Katrínu Lilju - betur þekkta sem Sprengju-Kötu. Hann spyr hana um allt milli himins og jarðar, en þó sérstaklega út í það hvernig maður verður vísindamaður.
Veðurstofa Íslands.
Dánarfregnir.
Sumartónleikar frá Sambandi evrópskra útvarpsstöðva.
Hljóðritun frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í Granada sem fram fóru á tónlistarhátíðinni í Granada 16. júní s.l.
Á efnisskrá eru verk eftir Claude Debussy, Maurice Ravel og Igor Stravinskíj.
Einleikari: Juan Pérez Floristán píanóleikari.
Stjórnandi: Josep Pons.
Umsjón: Friðrik Margrétar Guðmundsson.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Ágúst Torfi Hauksson stjórnarformaður landssamtaka sláturleyfishafa og framkvæmdastjóri Kjarnafæði Norðlenska: Brátt verður fé rekið af fjalli, og flest þaðan og í sláturhúsin. Það er komin sláturtíð, rætt um afurðaverð og framboð, fallþunga dilka, mönnun í komandi vertíð og ýmislegt fleira.
Bandaríska alríkislögreglan rannsakar nú hvort, og í hvaða mæli, Donald Trump fyrrverandi forseti hélt eftir ýmsum skjölum tengdum embættinu eftir að hann hætti sem forseti. Birta Björnsdóttir fréttamaður ætlar að segja okkur frá rannsókn bandarísku alríkislögreglunnar sem bendir til þess að sum þessara skjala hafi verið háleynileg.
Ruslarabb
Finnur Ricart Andrason: Umhverfispistill um eyjur sem sökkva í sæ.
Saga Ólafs Tryggvasonar Noregskonung eftir Snorra Sturluson.
Tinna Gunnlaugsdóttir les.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Fyrsti sérfræðingur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Jenný Ýr Jóhannsdóttir deildarstjóri hjá Lífeyrissjóði Verslunarmanna. Lífeyrismál snerta okkur öll, en ekki er víst að við vitum öll nógu mikið um þau, enda getur margt verið flókið hvað þeim viðkemur. Við gáfum hlustendum tækifæri að nýta sér sérfræðing í lífeyrismálum og fengum sendar talsvert margar spurningar sem Jenný Ýr gerði sitt besta til að svara í þættinum. Spurningarnar frá hlustendum voru m.a. tengdar skattamálum og lífeyri, erfðamál og lífeyri, viðbótarlífeyrissparnaði, tilgreindri séreign, mismunandi nýtingaleiðir og fleira og fleira.
Árið 2012 sendi tónlistarkonan Hafdís Huld frá sér plötuna Vögguvísur. Plötuna vann hún með eiginmanni sínum Alisdair Wright en hugmyndin að verkefninu kviknaði þegar þau áttu von á sínu fyrsta barni. Vögguvísur fékk strax góðar móttökur hjá börnum og foreldrum og nú, 10 árum síðar, hefur þessi hugljúfa plata náð tvöfaldri platínusölu og er orðin mest streymda íslenska platan á streymisveitum á hér á landi.Í tilefni af 10 ára afmæli Vögguvísna hafa Hafdís og Alisdair gefið út 5 nýjar vísur og Hafdís Huld kom í þáttinn og sagði okkur frá þeim og þessu mikla ævintýri sem velgengni plötunnar er.
Tónlist í þættinum í. dag:
Ættin mín / Ragnar Bjarnason og Bjarni Arason (Bjarni Hafþór Helgason)
María Ísabel / Helena Eyjólfsdóttir og Hljómsveit Ingimars Eydal (J. Moreno, L. Moreno og Ásta Sigurðardóttir)
Litla skott / Hafdís Huld Þrastardóttir (Hafdís Huld og Alisdair Wright)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir horfði á nýja raunveruleikaþætti úr smiðju Ketchup Creative. Þætti sem stæra sig af því að vera ekki með neinu handriti og sýna frá raunveruleika vinkvennahóps sem var myndaður í kringum #samstarf á samfélagsmiðlum.
Lestin kynnir sér tónlistarmanninn Húgó, huldumann sem hefur gefið út 3 lög en virðist vera vel úthugsuð markaðsherferð dulbúin sem tónlistarmaður.
Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Rúnar Róbertsson.
Nokkur hópur stórhuga fólks á Djúpavogi hefur tekið sig saman og skorað á bæjaryfirvöld að koma upp ylströnd við Búlandshöfn en fyrir áratug síðan fannst heitt vatn á svæðinu sem nú er leitt í ker sem hafa orðið vinsæl hjá ferðafólki. Eiður Ragnarsson fulltrúi fulltrúi sveitarstjóra Múlaþings á Djúpavogi var á línunni.
Ný rannsókn við Háskóla Íslands sýnir að almennt upplifi feður sem hitti börn sín lítið, þ.e. minna en aðra hverja helgi, mikla sorg en jafnframt að þeir hafi almennt átt sögu um ágreining við móður eða stjórnsýsluna. Nína Eck, nemi við Félagsráðgjafadeild HÍ, vann rannsóknina og kom til okkar.
Nýjar tölur frá Landlæknisembættinu sýna að notkun ADHD lyfja jókst um heil 20% á milli áranna 2020 og 2021 - í miðjum heimsfaraldri. Rúm 16 prósent drengja á aldrinum 10-14 ára eru á þessum tegundum lyfja en þó má merkja aukna notkun kvenna á lyfinu undanfarin ár. Við ræddum þessa aukningu og almennt um notkun geðlyfja við Héðinn Unnsteinsson formann Geðhjálpar.
Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti Alþýðusambands Íslands, telur að leigubremsa á húsnæðismarkaði sé bæði raunhæf og skynsamleg. Við ræddum leiguþak, leigubremsu og aðgerðir á leigumarkaði við Kristján og Jóhannes Stefánsson, lögfræðing Viðskiptaráðs Íslands, sem segir leiguþak feita pælingu sem gengur ekki upp - leiguþak Berlínarbúa hafi til að mynda verið lestarslys í beinni útsendingu.
Í gær var greint frá því að bandaríska dómsmálaráðuneytið telji líklegt að leyniskjöl hafi verið falin á heimili Donalds Trump, fyrrverandi forseta, í Flórída. Það hafi verið gert til þess að hindra rannsókn alríkislögreglunnar. Þá var samfélagsmiðlinn Trumps, Truth Social, fjarlægður af forritinu Google Play. Mikið hefur verið fjallað um sundrungu í bandarískum stjórnmálum og samfélagi undanfarið en samkvæmt niðurstöður nýrrar könnunar búast 40 prósent íbúa Bandaríkjanna við einhvers konar borgarastríði á næstu árum. Við ræddum við Silju Báru Ómarsdóttur, prófessor í stjórnmálafræði, um stöðuna í Bandaríkjunum.
Tæplega tveggja ára barn lést og tugir slösuðust í Katalóníu á Spáni í gær þegar mikið haglél féll þar. Höglin voru stór og þungt - þau stærstu um tíu sentímetrar að þvermáli - og rafmagnslínur, þök og rúður eyðilögðust. Við ræddum við Elínu Björk Jónasdóttur, veðurfræðing, um þetta veðurfyrirbæri.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Útvarpsfréttir.
Morgunverkin er fyrst og fremst tónlistarþáttur þar sem Þórður Helgi spilar bara það besta sem heimurinn hefur alið af sér síðustu 30-40 árin.
Morgunverkin 1. september 2022
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson
Sváfnir Sig - Gítarinn
Earth Wind & Fire - September
Killers - boy
Madness - Embarresment
Bríet - Dýrð í dauðaþögn
Dennis Edwards - don?t look any further
Björgvin halldórs - Ég skal syngja fyrir þig
Pj Harvey - Who by fire
Emilíana torrini - Baby blue
Police - De do do do
Lights on the highway - Ólgusjór
Reverend and the makers - Heatwave in the cold north
Spiller - Groovejet
10:00
Rebekka Blöndal - Sólarsamban
U2 - Desire
Lorde - Royals
Sonic youth - sugar kane
Bran Van 3000 - Drinking in LA
Benni Hemm Hemm & Urður & Kött Grá Pjé - Á óvart
GDRN - Af og til
Stefán Hilmars - Heimur allur hlær
Mylo - Drop the pressure
Paul Simon - Diamonds on the souls of her shoes
Confidence man - Holiday
Phoenix - Alpha Zulu
Arcade fire - Everything now
11:00
Ásgeir Trausti - Snowblind
Jamirquai - Virtual insanity
G. Logi & Anita - Memory
Simple Minds - Promised a miracle
Weeknd - I feel it coming Ft. Daft Punk
Markéta Irglová - Girl from a movie
Todmobile - Tryllt
America - I need you
Laufey - Above the Chinese restaurant (Plata vikunnar)
Lizzo - 2 be loved (Am I ready)
Terence Trent D?arby - Delacate
LF System - Afraid to feel
12:00
Ampop - Clown
Violent Femmes - Blister in the sun
David Sylvian - September
Hugrún - Big City
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Yfir tvö þúsund og fimm hundruð hafa leitað hælis hér á landi það sem af er ári og hafa aldrei verið fleiri. Langflestir komu frá Úkraínu, meira en fimmtán hundruð. Félagsmálaráðherra vill að fleiri sveitarfélög taki á móti flóttafólki.
Skjólstæðingar sérgreinalækna greiddu fullt verð fyrir þjónustuna í morgun. Reglugerð um niðurgreiðslu rann út fyrir mistök. Formaður Læknafélags Íslands segir óþolandi að enn sé ósamið við sérgreinalækna.
Forstjóri Matvælastofnunar segir mikilvægt að aðgerðir vegna dýravelferðarmála haldi fyrir dómi. Rannsókn geti reynst erfið þegar eigendur dýra reyni að hindra hana. Tugum vanhirtra hrossa í hesthúsi við Borgarnes var komið undan í skjóli nætur.
Kínversk stjórnvöld fordæma nýja skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem þau eru sökuð um gróf brot á mannréttindum minnihlutahópa í Xinjiang.
Eftirlitssveit á vegum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar er komin í kjarnorkuverið í Zaporizhzhia í Úkraínu til að leggja mat á öryggi þess. Árásir voru gerðar í grennd við kjarnorkuverið í morgun.
Formaður Skotveiðifélags Íslands segir það mikil vonbrigði ef ekki megi veiða meira en sex rjúpur á mann í vetur, eins og Náttúrufræðistofnun leggur til. Hann bendir þó á að ástand rjúpunnar sé misgott eftir landshlutum.
Hálf öld er í dag frá lokum skákeinvígis Bobbys Fischers og Boris Spasskys í Laugardalshöll. Þennan dag gaf Spassky tuttugustu og fyrstu skák einvígisins og Fischer var nokkrum dögum síðar krýndur heimsmeistari.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Þau Siggi Gunnars og Rósa Ísfeld stýrðu fjölbreyttu Popplandi í dag.
12.40 til 14.00
Klassart - Gamli grafreiturinn
Harry Styles - Matilda
Stevie Wonder - Signed, Sealed, Delivered
Cuco, Adriel Favela og Kacy Musgraves - Sitting In The Corner
John Mayer - Daughters
Madonna - Like A Prayer
Beyonce - Break My Soul
Mugison - Haustdansinn
Moses Hightower - Lífsgleði
Stuðmenn - Komdu með
*Umfjöllun um plötu vikunnar með Laufey*
Laufey - Beautiful Stranger
Stefán Hilmarsson - Þakka þér fyrir
Rebekka Blöndal - Sólarsamba
14.00 til 16.00
Karl Orgeltríó - Bréfbátar
Thom Yorke - The Eraser
Angus & Julia Stone - A Heartbreak
The Meters - The handclapping song
The Cardigans - Rise and Shine
Rosa Linn - Snap
Gerry Rafferty - Right down the line
Coldplay - Speed of sound
Elton John ft Britney Spears - Hold Me closer
Santigold - L.E.S. Artistes
Mánar - Leikur að vonum
Bríet - Dýrð í Dauðaþögn
Moses Hightower - Nýfallið Regn
Blazroca & Ásgeir Trausti - Hvítir skór
Manu Chao - Me Gustas tu
Kylie Minogue - Slow
Vök - Headlights
Eels - Bus Stop Boxer
Lucy Pearl - Dance Tonight
Portugal the man - What me worry
Amy Winehouse - Rehab
Milky Chance - Synchronize
Weezer - Undone ( the sweater song)
Beyonce - Cozy
40 Thieves ft Qzen - Don?t turn it off
Ellen Kristjánsdóttir & Þorssteinn Einarsson - Hluthafi í heiminum
Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson og Rósa Birgitta Ísfeld
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Í dag klukkan fimm verður haldið útgáfuhóf í Sjóminjasafni Reykjavíkur þegar útgáfu bókarinnar Stund milli stríða. Saga landhelgismálsins, 1961- 1971 eftir Guðna Th. Jóhannesson sagnfræðing og forseta Íslands. Guðni hóf rannsóknir sínar á sögu landhelgismálsins og þorskastríðanna fyrir um aldarfjórðungi og hann ætlar að vera á línunni hjá okkur á eftir og segja okkur frá þessari merkilegu sögu í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar.
Fyrstu réttir haustsins eru um helgina á hinum ýmsu stöðum á landinu. Við ætlum að hringja norður í Mývatnssveit og heyra í Sigurbirni Árna Arngrímssyni bónda en í Mývatnssveit verður líf og fjör á sunnudaginn bæði í Hlíðarétt og Baldursheimsrétt.
Og svo er það Meme vikunnar sem er nýr vikulegur dagskrárliður í Síðdegisútvarpinu í umsjón Atla Fannars Bjarkasonar samfélagsmiðlastjóra RÚV. En í Meme vikunnar segir hann okkur frá því helsta sem er að slá í gegn á internetinu hverju sinni.
Við ætlum líka að kynna okkur sveifludansa sem eru hvað ? Bragi í Sveiflustöðinni er sá sem allt veit um það og hann kemur til okkar í síðdegisútvarpið í dag.
Sjöunda árið í röð bjóða RÚV og Sinfóníuhljómsveit Íslands upp á tónlistarveislu í beinni útsendingu frá Hörpu þar sem landsmönnum hefur gefist kostur á að hafa áhrif á val verka á efnisskránni. Kynnar og umsjónarmenn eru Guðni Tómasson og Halla Oddný Magnúsdóttir og þau koma til okkar og segja okkur frá Klassíkinni okkar.
Um miðjan febrúar á þessu ári veitti Seðlabanki Íslands Indó leyfi til þess að starfa sem sparisjóður. En Indó tryggði sér tæplega 600 milljóna króna fjármögnun síðastliðið haust og var það hluti af lokaskrefunum til að tryggja samþykki á starfsleyfisumsókn Indó. Á heimasíðu Indó er að finna markmið sparisjóðsins en þar segir: "Indó er nýr staður fyrir peningana þína. Við erum ekki einn af gömlu bönkunum heldur sparisjóður og við ætlum að vera betri en bankarnir." En hver staðan á Indó nú, hvenar er stefnt á að opna eða er búið að opna og hvernig virkar þetta allt saman. Haukur Skúlason einn stofnandi Indó er mættur hingað til okkar.
Útvarpsfréttir.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Umsjón: Ásgeir Tómasson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Ríkisstjórnarflokkarnir missa meirihluta sinn, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Fylgi Samfylkingarinnar eykst mest og flokkurinn fengi fjórum þingmönnum fleiri nú en hann fékk í síðustu alþingiskosningum. Sjálfstæðisflokkur er enn stærstur en fylgið minnkar milli kannana. Bjarni Pétur Jónsson sagði frá.
Hluti eftirlitssveitar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar verður eftir í kjarnorkuverinu í Zaporizhzhia í Úkraínu til að tryggja öryggi þess og koma í veg fyrir kjarnorkuslys. Rafael Grossi, framkvæmdastjóri stofnunarinnar og leiðtogi sveitarinnar, greindi frá þessu að heimsókn lokinni í dag. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá.
Félagsmálaráðuneytið vinnur að samningum við þrjátíu sveitarfélög til viðbótar um samræmda móttöku flóttafólks sem léttir á álagi á sveitarfélögin sem hafa tekið á móti flestum hingað til, það er Reykjavík Hafnarfjörl og Reykjanesbæ. Eitt af þessum sveitarfélögum er Fljótsdalshérað. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir talaði við Guðmund Inga Guðbrandsson félagsmálaráðherra.
Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvetur Kínverja til að taka alvarlega þær upplýsingar sem birtust í nýrri skýrslu mannréttindaráðsins. Þar eru Kínverjar sakaðir um ofsóknir gegn Úígúrum og öðrum minnihlutahópum í Xinjiang-héraði.
Mikill minnihluti þolenda kynferðisofbeldis tilkynnir brotið til lögreglu. Þolendaskömm og vantrausti á lögreglunni er um að kenna. Þetta er meðal þess sem kom fram í viðtali Hafdísar Helgu Helgadóttur við Margréti Valdimarsdóttur og Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttur.
Ríkisendurskoðun ætlar að hefja frumkvæðisúttekt á eftirliti Matvælastofnunar með velferð dýra. Niðurstaða úttektarinnar verður birt í opinberri skýrslu til Alþingis. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá.
Raforkuverð heldur áfram að hækka í Noregi. Það kostar Norðmann af meðalskrokkstærð þúsund krónur íslenskar að fara í sturtu og fólk ekur í heimsóknir til nágranna til að hlaða rafbílinn þar. Gísli Kristjánsson, fréttaritari Osló sagði okkur af raforkumartröðum Norðmanna.
Útsýnispallurinn á Bolafjalli ofan Bolungavíkur var formlega opnaður í dag að viðstaddri allri ríkisstjórn landsins. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir ræddi við Jón Pál Hreinsson, bæjarstjóra í Bolungarvík.
Glæný íslensk tónlist úr ýmsum áttum.
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Það eru tölvur og trommuheilar sem teka sviðið í rafpoppaðri Undiröldu kvöldsins þar sem tónlistarfólkið í Major Pink, Ateria, Mavelus, deep.serene, Gusgus og THØR tekur sviðið með gestainnkomum frá John Grant og Inga Bauer.
Lagalistinn
Major Pink - Move
Ateria - Órói (Bistro Boy Remix)
Mavelus - My love song
deep.serene - Tough
Gusgus, John Grant - Hold Me In Your Arms Again (Ali Schwarz Remix)
THØR, Ingi Bauer - Í larí lei (Remix)
Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson
Headlights - Vök
Leader Of The Pack - Wunderhorse
Carry The World - Stefanie Heinzmann
Hardlight - Spacey Jane
2 Die 4 - Tove Lo
Hold Me In Your Arms Again - GusGus & John Grant
L.E.S. Artistes - Santigold
Supersonic - Oasis
Nowhere To Hide - Aluna, Prettyboy D-O & Kooldrink
I'm Just High - Pixey
Á óvart - Benni Hemm Hemm, Urður & Kött Grá Pjé
Hér er ég kominn - Baggalútur
2 Be Loved - Lizzo
We Own The Night - Sophie And The Giants
Free Yourself - Jessie Ware
Bad Dad - PVA
Snowblind - Ásgeir
Night Fever - Bee Gee's
The Wall - Kasabian
Týnumst - Hin
Diamond In The Dark (Live At Knebworth) - Liam Gallagher
Dýrð í dauðaþögn - Bríet
Hvað er frétta? - Emmsjé Gauti
Picture In My Mind - PinkPantheress
Threat - Rex Orange County
NO! - Poppy Ajudah
Manhattan Youth - Been Stellar
The Game - Sports Team
Eins og er - Plasticboy
Spaceman - MO
Surprise Me - Mallrat & Azelia Banks
No One Else - Weezer
Oh, Lover - Röyksopp
We Are It - Embrace
93' Til Infinty - Souls Of Mischief
Titanic - Stella & Redinho
R U Mine - Arctic Monkeys
Terminator - Asake
Sprawl II - Arcade Fire
Feel It - Crooked Colours
Helena Beat - Foster The People
A Madman From Manhattan - Jack White
Útvarpsfréttir.
Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.