• 00:01:01Stýrivaxtahækkanir Seðlabankans
  • 00:09:26Föstur og heilsufarsleg áhrif þeirra

Kastljós

Stýrivaxtahækkanir, föstur

Seðlabankastjóri hefur hlotið gagnrýni fyrir rökstuðning ákvörðunar um stýrivaxtahækkun í gær og trúverðugleiki hans er sagður hafa beðið hnekki. Ein af skýringum seðlabankastjóra var nýgerðir kjarasamningar fælu í sér meiri launahækkanir en ráð var fyrir gert. Hvaða áhrif koma stýrivaxtahækkanirnar til með hafa á efnahag bæði ríkisins og ekki síður landsmanna. Róbert Farestveit, hagfræðingur ASÍ, og Konráð Guðjónsson, hagfræðingur SA, eru gestir Kastljóss.

Áhugi á föstum hefur aukist mikið undanförnu og hafa heilsufarsleg áhrif þess fasta verið mikið til umræðu í samfélaginu. Þekktar eru svokallaðar lotuföstur þar sem fólk neytir ekki matar í ákveðinn tíma á hverjum sólarhring, jafnvel sextán klukkustundir. Svo eru föstur sem standa yfir í lengri tíma, en í fréttum nýverið var sagt frá manni sem fastaði í heilan mánuð. Tekla Hrund Karlsdottir læknir og Anna Sigríður Ólafsdóttir næringarfræðingur fóru yfir málið.

Frumsýnt

9. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Kastljós

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,