Víðsjá

Brenninetla, Villistrákar og Henry Threadgill

Við mælum okkur mót við meðlimi tríósins Brenninetlu; hljómsveit sem leikur djass og frjálsan spuna, en sækir líka áhrif í ýmsar aðrar áttir. Brenninetla lenti í örðu sæti í Músíktilraunum í vor og vinnur hörðum höndum gerð sinnar fyrstu breiðskífu. En þeir félagar munu koma fram á tónleikum í Jazz Sunday Reykjavík tónleikaröðinni í Iðnó á sunnudag. Við ræðum við tríóið í þættinum.

Gauti Kristmannsson bókmenntarýnir fjallar um þýðingu á bókinni Villistrákum eftir bandaríska rithöfundinn Williams S. Burroughs en hún segir frá dulrænum skæruher hömlulausra hinseginn ungmenna sem segja siðmenningu Vesturlanda stríð á hendur.

Og gefnu tilefni rifjum við upp umfjöllun um tónlistarmanninn Henry Threadgill og heyrum af óþægilegum samskiptum hans við Sikileysku mafíuna.

Birt

23. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,