Víðsjá

Aldrei las ég Laxness / Úngfrúin góða og Húsið

Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga mánaðarins er Úngfrúin góða og Húsið en hún er stutt verk sem Halldór skrifar um efri stétt í þorpinu Eyvík og tilraunum hennar til stjórna narratífunni um sjálft sig. Sagan er talin byggð á raunverulegum atburðum sem og upplifunum Halldórs sjálfs þegar hann sigldi ungur til Kaupmannahafnar. Sögumaður verksins er fjarlægur persónunum, samtöl og senur eru fáar og lesandi þarf sífellt vera púsla atburðunum saman í gegnum óbeinar upplýsingar héðan og þaðan svo erfitt er ákveða hverju maður trúir og hverju ekki.

Samlesari klúbbsins þessu sinni er Elínborg Una Einarsdóttir, blaðamaður hjá Morgunblaðinu, sviðshöfundur og samfélagsrýnir. En síðasta haust birti hún grein í Morgunblaðinu með titilinn „Laxness hverfur úr skólum landsins“ og olli hún nokkru fjaðrafoki í samfélaginu og átti sinn þátt í kveikja á þessum bókaklúbbi.

Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta verk sem tekið verður fyrir í bókaklúbbnum verður Heimsljós; dagsetning verður nánar auglýst síðar.

Grafík; Silvía Sif Ólafsdóttir

Birt

10. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,