Víðsjá

Við Djúpið, Óður til gleðinnar og fuglar í Flatey

Í þættinum sláum á þráðinn til Flateyjar og ræðum við, rithöfundinn og bókaútgefandann, Ragnar Helga Ólafsson sem siglir þar milli eyja, klifrar í klettum og vitjar fugla með fuglafræðingum.

Við kynnum einnig til leiks nýjan myndlistarrýni. Vala Sigþrúðar Jónsdóttir verður reglulega með okkur fram á sumarið og næsta vetur, og deilir með okkur upplifun sinni af sýningum sem okkur þykja einstaklega spennandi. Í dag heyrum við af sýningu sem sett var upp í Nýlistasafninu í tengslum við Listahátíð. Hún kallast Óður til gleðinnar og baki henni stendur úkraínski listahópurinn Open Group.

Við hugum einnig Tónlistarhátíðinni Við Djúpið. Hátíðin hefst í næstu viku á Ísafirði og vanda verður flutt fjölbreytt klassísk tónlist úr ólíkum áttum. Greipur Gíslason er stjórnandi hátíðarinnar í ár og Sæunn Þorsteinsdóttir er listrænn stjórnandi. Við ræðum við Greip um hátíðinaí þættinum.

Birt

11. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,