Sumarlandinn

Þáttur 6 af 9

Við kynnum okkur kofabyggð í Grundarfirði þar sem kornungir smiðir hafa reist heilt þorp.

Við fylgjumst með vegagerð í Refasveit á Vestfjörðum.

Við brögðum á ýmsum kræsingum sem framleiddar eru á Djúpavogi undir yfirskriftinni Matur úr héraði.

Við skoðum vélsleðasafn í Neskaupstað sem stillt er upp úti í garði á hverju sumri þegar sleðafæri er yfirleitt ekkert.

Við kynnum okkur líka garðrækt í Hafnarfirði.

Frumsýnt

23. júlí 2023

Aðgengilegt til

23. júlí 2024
Sumarlandinn

Sumarlandinn

Sumarlandinn svífur yfir landið í sumar og drepur niður fæti hvar sem eitthvað skemmtilegt er gerast. Sem fyrr verður farið út og suður, vítt og breitt, langt yfir skammt og allt þar á milli. Umsjón: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Þórgunnur Oddsdóttir, Elsa María Drífudóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Halla Ólafsdóttir, Þórdís Claessen, Jóhann Alfreð Kristinsson og Steiney Skúladóttir. Tónlistarkonan Árný Margrét sér um tónlistina. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Elvar Örn Egilsson, Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson og Karl Sigtryggsson. Ritstjóri: Gísli Einarsson.

Þættir

,