Með okkar augum

Þáttur 4 af 6

Tónlistarmaðurinn Bjarni Ara segir frá lífi sínu og list. Það verður litið inn í stöðvarhús Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal. Við hittum Pálma Sveinsson sem safnar hljóðfærum. Við förum á æfingu með fötluðum fótboltaköppum sem landsliðskonan Gunnhildur Yrsa þjálfar. Hreimur Örn Heimisson leyfir okkur heyra uppáhaldslögin sín. Og við förum í vinnuna með Axel Helgar. Hann er einhverfur og vinnur í skóla fyrir einhverfa. Arna Sigríður Albertsdóttir gefur heilsueflandi ráð.

Frumsýnt

6. sept. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Með okkar augum

Með okkar augum

Þrettánda þáttaröð þessara margverðlaunuðu þátta sem vakið hafa athygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Umsjón: Andri Freyr Hilmarsson, Ásgeir Tómas Arnarson, Elva Björg Gunnarsdóttir, Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Magnús Orri Arnarson og Steinunn Ása Þorvaldsdóttir. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.

Þættir

,