Með okkar augum

Þáttur 3 af 6

Keramiklistakonan Kogga segir frá lífi sínu og list. Það verður farið í Hernámssetrið í Hvalfirði. Við kynnum okkur listiðkun Daníels Björnssonar. Við förum á golfæfingu fyrir fatlað fólk hjá Keili. Elín Hall leyfir okkur heyra uppáhaldslögin sín. Við förum í vinnuna með Björgvin Axel Ólafssyni hjá Innnesi. Arna Sigríður Albertsdóttir gefur heilsueflandi ráð.

Frumsýnt

30. ágúst 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Með okkar augum

Með okkar augum

Þrettánda þáttaröð þessara margverðlaunuðu þátta sem vakið hafa athygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Umsjón: Andri Freyr Hilmarsson, Ásgeir Tómas Arnarson, Elva Björg Gunnarsdóttir, Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Magnús Orri Arnarson og Steinunn Ása Þorvaldsdóttir. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.

Þættir

,