Með okkar augum

Þáttur 2 af 6

Ingvar E. Sigurðsson leikari kemur í viðtal. Við skoðum Hallormsstaðaskóla. Það verður litið inn í Liztvinnsluna sem er fyrir fatlað listafólk. Emmsjé Gauti leyfir okkur heyra uppáhaldslögin sín. Svo förum við í sitjandi blak. Við kynnum okkur atvinnuátak Íslenska gámafélagsins fyrir fatlað fólk. Arna Sigríður Albertsdóttir gefur heilsueflandi ráð.

Frumsýnt

23. ágúst 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Með okkar augum

Með okkar augum

Þrettánda þáttaröð þessara margverðlaunuðu þátta sem vakið hafa athygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Umsjón: Andri Freyr Hilmarsson, Ásgeir Tómas Arnarson, Elva Björg Gunnarsdóttir, Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Magnús Orri Arnarson og Steinunn Ása Þorvaldsdóttir. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.

Þættir

,