Íslendingar

Guðrún Jónsdóttir

Guðrún fæddist árið 1935 á Blönduósi. Hún lauk námi í arkitektúr frá Konunglegu listaakademíunni í Kaupmannahöfn 1963 og starfaði um skeið þar í borg en fluttist búferlum heim 1966 og hóf rekstur teiknistofunnar Höfða. Hún var forstöðumaður Borgarskipulags Reykjavíkur um skeið og stofnaði síðar teiknistofu undir eigin nafni og átti mikinn þátt í skipuleggja Seljahverfi í Reykjavík.

Frumsýnt

4. ágúst 2019

Aðgengilegt til

4. júní 2024
Íslendingar

Íslendingar

Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.

Þættir

,