Í forföllum Hemma stýrir Valgerður Matthíasdóttir þættinum þar sem fjölbreytt skemmtiatriði eru á dagskrá. Nemendur úr Hlíðaskóla, Vinir Dóra, Bong, Gauragangur og Borgardætur flytja tónlist, en Bubbi Morthens kemur í settið og syngur lagið Atvinnuleysi er komið til að fara. Aðalgestur kvöldsins er Guðrún G. Bergmann, sem ræðir við Völu. Í leiknum Loftkastalanum safnast fé til góðgerðarmála.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 6. apríl 1994
Birt
28. okt. 2020
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Á tali hjá Hemma Gunn 1993-1994
Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.