Á tali hjá Hemma Gunn 1993-1994

26. janúar 1994

Hemmi Gunn mætir á fjórhjóli í upphafi þáttar þar sem fjölbreytt skemmtiatriði taka við. Unglingar úr Leikfélagi Hafnarfjarðar flytja lag úr Bugsy Malone og Friðrik Páll Ágústsson dáleiðir áhorfendur í salnum. Aðalgestur kvöldsins er Hanna Frímannsdóttir, sem ræðir við Hemma í sófanum. Einnig koma fram Borghildur Sverrisdóttir, Björgvin Halldórsson, JJ Soul Band og dansarar úr dansskóla Hermanns Ragnars. Hemmi fer í heimsókn á Barnaspítala Hringsins, innslag úr falinni myndavél er sýnt og í leiknum Loftkastalanum safnast til góðgerðarmála. Þættinum lýkur með söng úr Jesus Christ Superstar

Þátturinn var fyrst á dagskrá 26. janúar 1994.

Birt

23. sept. 2020

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1993-1994

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.

Þættir

,