Hemmi Gunn kemur inn í stúdíóið á súkkulaðilest. Fjórir áhorfendur eru sendir í æfingastúdíó til að læra fatafelludans, sem þeir sýna síðar úti í bæ. Grunaðir um tónlist, Mosfellskórinn og dansarar frá Dansskóla Auðar Haralds koma fram, en aðalgestur kvöldsins er Egill Ólafsson, sem syngur og spjallar við Hemma. Í leiknum Loftkastalanum safnast fé til góðgerðarmála þegar Sigurbjörn Bárðarson ríður inn á hesti. Þættinum lýkur með Grease-syrpu í flutningi nemenda úr Menntaskólanum í Kópavogi þar sem allir taka þátt í lokafjöri.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 23. mars 1994
Birt
21. okt. 2020
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Á tali hjá Hemma Gunn 1993-1994
Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.