Á tali hjá Hemma Gunn 1993-1994

24. nóvember 1993

Hemmi Gunn kemur akandi inn á mótorhjóli með Guðnýju í hliðarvagni og kynnir fjölbreyttan skemmtiþátt. Írska hljómsveitin Gan Ainm, P.S. & Co, Nýdönsk og Bubbleflies flytja tónlist, en Leikhópurinn Hugleikur sýnir atriði úr leikriti. Aðalgestur kvöldsins er Jóhann Pétur Sveinsson, sem ræðir við Hemma og syngur lagið Undir bláum himni. Einnig er sýnt innslag úr faldri myndavél, leikurinn Loftkastalinn fer fram með þátttöku Magnúsar Ver Magnússonar, og brúðhjón taka þátt í skemmtilegum hjónaleik. Í lok þáttar flytur Stefán Hilmarsson lagið Líf áður en Hemmi kveður.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 24. nóvember 1993.

Birt

2. sept. 2020

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1993-1994

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.

Þættir

,