Hemmi og Guðný mæta í stúdíóið á hestakerru og kynna fjölbreyttan skemmtiþátt. Bossanova-bandið flytur lagið Tequila, Kristjana Skúladóttir syngur L.O.V.E., og sýnt er brot úr sýningunni Skilaboðaskjóðan. Aðalgestur kvöldsins er Magnús Scheving, sem ræðir við Hemma og sýnir fimleikakúnstir. Einnig koma fram þátttakendur í Ungfrú Reykjavík með Batú-dansflokknum, innslag úr faldri myndavél er sýnt og nemendur úr MR flytja skemmtiatriði.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 9. mars 1994
Birt
14. okt. 2020
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Á tali hjá Hemma Gunn 1993-1994
Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.