Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

28. desember 1988

Í þættinum ræðir Hemmi Gunn við stjörnuspekinginn Gunnlaug Guðmundsson, og félagar úr Fóstbræðrum syngja við Reykjavíkurtjörn. Pétur Þorleifsson tekur þátt í spurningaleik, Hermann Ólafsson flytur jólarokk og keppt er í brandarakeppni. Hljómsveitin Mezzoforte leikur eitt lag og falin myndavél er á sínum stað. Katla María syngur spænskt rokk og Edda Björgvinsdóttir kemur fram sem „sérfræðingur“ með gríninnslagi. Einnig er sýnt sýnishorn úr væntanlegum áramótaþætti með Elsu Lund og fleirum, og lokum syngja Hemmi og Sigga Beinteins íslensk jólalög.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 28. desember 1988.

Birt

1. maí 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,